aðlögunarkerfi landamæra vegna kolefnis.
Virðulegur forseti. Já, það er nokkuð ljóst að það er einhver hér í salnum sem á þann draum að vera þingmaður á Evrópuþinginu vegna þess að hér var flutt heil ræða sem fjallaði einungis um hagsmuni evrópsks iðnaðar á meginlandinu. Ég spyr: Hverra hagsmuna er hv. þingmaður að gæta með þessum málflutningi? Ég skil alveg að ef maður talar fyrir málstað þeirra sem eru að framleiða iðnaðarvörur í Þýskalandi með rússnesku gasi þá sé þetta rökréttur málflutningur, en heldur hv. þingmaður að ETS-kerfið og sú uppsetning sé góð eða slæm fyrir íslenskan iðnað? Hvort heldur hv. þingmaður? Heldur hv. þingmaður að Ísland hafi ákveðið að taka þátt í ETS-kerfinu af gæsku sinni einni saman og trú sinni á mannkynið og umhverfisvernd? Það er ekki það eina. ETS-kerfið gengur í grundvallaratriðum út á að verðlauna iðnað sem framleiddur er með minni losun á kostnað iðnaðar sem framleiddur er með meiri losun. ETS-kerfið veitir íslenskum iðnaði nefnilega gríðarlegt samkeppnisforskot innan evrópsks markaðar vegna þess að íslenskur áliðnaður fær sínar losunarheimildir afhentar vegna þess að við notum einungis umhverfisvæna orku til að framleiða okkar ál á meðan evrópskur iðnaður þarf að borga miklu hærri ETS-gjöld vegna þess að þar er framleitt með orkunotkun sem fer fram með óumhverfisvænum hætti. Ég spyr því: Af hverju er hv. þingmaður að koma upp og tala fyrir því að við látum af hendi eitt stærsta samkeppnisforskot íslensks iðnaðar sem er umhverfisvæn orkuframleiðsla?