158. löggjafarþing — 20. fundur,  20. okt. 2026.

aðlögunarkerfi landamæra vegna kolefnis.

233. mál
[15:39]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka enn og aftur fyrir þetta andsvar. Andúð á Evrópusambandinu, nei, alls ekki. Ég kenni svolítið í brjósti um það. Þeir eru fastir í einhvers konar netaflækju sem þeir virðast ekki komast út úr og þetta er mjög gott dæmi um það. Ég held að ég hafi verið að reyna að segja það í minni ræðu hér áðan að þeir eru búnir að búa til regluverk hvað varðar loftslagsmálin á þann hátt að þeir virðast bara ekki komast út úr því og það þarf alltaf að smíða nýtt lag utan um það fyrra eins og þetta frumvarp er dæmi um. Þarna er verið að reyna að laga eitthvað sem menn eru búnir að ganga mjög langt í varðandi loftslagsmál og ég tek undir með þeim þingmönnum sem hafa orðað það þannig hér að ég tel að þetta mál eigi að skoða mjög vel í nefndinni og hvet til þess að menn flýti sér hægt. Nægir að nefna umfangið sem hér um ræðir og hagsmunina sem hér eru undir.