158. löggjafarþing — 21. fundur,  21. okt. 2026.

rannsókn á störfum réttarvörslu- og eftirlitsaðila í kjölfar fjármálahrunsins.

219. mál
[14:30]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur kærlega fyrir gott svar. Ég vil líka að það sé skýrt að þetta mál, þessi þingsályktunartillaga sem ég er meðflutningsmaður að, snýr ekki að því að það sé verið að óska eftir því að endurskoða dómana. Það er auðvitað ekki það sem verið er að fara fram á. Ég tilgreini þetta bara af því að ég veit að þessi mál hafa verið viðkvæm og slíkt værum við auðvitað ekki að leggja til hér. Það er fólkið sjálft sem þarf að sækja það ef svo ber undir.

Er mér ekki óhætt að segja — nú spyr ég hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur — að á endanum snúist þetta um að ríkið sjálft fari að lögum þegar það er að beita sínu sterkasta eða mesta valdi og sínum vopnum gegn borgurum landsins? Er það ekki það sem við erum að fara að skoða, hvort það hafi verið gert með löglegum og eðlilegum hætti?