rannsókn á störfum réttarvörslu- og eftirlitsaðila í kjölfar fjármálahrunsins.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Ég vil líka taka fram að hér er krafa um sanngirni og réttaröryggi og hún verður að gilda um þá sem rannsóknin tekur til. Starfsmenn stofnana eiga nefnilega líka rétt á að störf þeirra séu metin á traustum grundvelli og að sjónarmið þeirra fái að koma fram. Þannig að nefndin þarf að skoða aðstæður þeirra, fyrirmæli og þau úrræði sem þessir starfsmenn höfðu til ráðstöfunar á sínum tíma. Það mun styrkja réttmæti þessarar rannsóknar og gera niðurstöðurnar þar með gagnlegri.
Það er rétt sem hv. þingmaður nefnir í máli sínu að við þurfum að skoða mjög gaumgæfilega hvernig ákvarðanir og ábyrgð tengdust, t.d. á milli stofnana, hvaða verklag var viðhaft yfir lengri tíma, hvernig var brugðist við athugasemdum og hvort veikleikar hafi verið í eftirlitinu sjálfu. Til að geta skoðað þetta þarf mjög vítt umboð sem nær yfir þetta breiða svið. Þess vegna erum við, ég og þingflokkur Sjálfstæðisflokksins, að leggja til þessa umfangsmiklu rannsókn, vegna þess að við teljum að hún muni verða til mikilla bóta, hún muni auka traust og líka skilning á því sem þarna fór fram. Eins og ég nefndi í máli mínu áðan eru þetta ekki fá mál. Sérstakur saksóknari var með um 806 mál á sínum starfstíma og þar af voru 208 sem tengdust upphaflegu verkefni embættisins. Þannig að þetta er gríðarlega umfangsmikið verkefni sem þarna myndi fara af stað.