158. löggjafarþing — 21. fundur,  21. okt. 2026.

rannsókn á störfum réttarvörslu- og eftirlitsaðila í kjölfar fjármálahrunsins.

219. mál
[14:34]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir að koma fram með þessa þingsályktunartillögu sem sá sem hér stendur hefur einnig skrifað undir. Ástæðan er einföld. Réttarríkið er ekki aðeins til fyrir þá sem njóta samúðar almennings og þegar samfélagið er rólegt, þegar menn eru sammála og auðvelt er að fylgja reglunum. Það reynir einmitt mest á réttarríkið þegar það þarf að verja borgarana. Þegar mest á reynir, þegar það er mikil reiði, mikill þrýstingur og þung krafa samfélagsins um að einhverjum sé refsað. Ég held að við könnumst öll við þetta andrúmsloft en þá kemur einmitt í ljós hvort við búum í réttarríki eða ekki. Við munum öll andrúmsloftið rétt eftir fjármálahrun. Fólk hafði misst vinnuna, sparnaður fokinn út í veður og vind, eignir og framtíðaröryggi. Fjölskyldur stóðu frammi fyrir gríðarlegri óvissu. Traust til fjármálakerfisins og stjórnmálamanna hafði beðið alvarlegan hnekki, réttilega. Reiðin var skiljanleg og krafan um rannsókn og ábyrgð fullkomlega réttmæt, en það er mikill munur á því að krefjast réttlætis og krefjast sakfellinga. Réttlætið felst í því að rannsaka brot, leiða sannleikann í ljós og refsa viðkomandi ef brotin hafa sannast. Það felst líka í því að sýkna þá ef sekt er ekki sönnuð og virða réttindi allra sem sæta rannsókn. Réttlætið felst í því að rannsaka brot, leiða sannleikann í ljós og refsa þar sem brotin hafa sannast. Það má aldrei vera þannig að niðurstaðan sé í raun ákveðin í hugum almennings áður en rannsókn hefst og að hlutverk réttarkerfisins verði síðan að staðfesta þá niðurstöðu.

Virðulegi forseti. Við verðum að þora að spyrja óþægilegra spurninga um þennan tíma. Hafði sú gríðarlega reiði sem ríkti í samfélaginu áhrif á ákvarðanir þeirra sem fóru með rannsóknar- og ákæruvald? Var þrýstingurinn slíkur að erfiðara varð að gæta þeirrar hlutlægni sem lögin krefjast? Voru þvingunarráðstafanir alltaf nauðsynlegar og hóflegar og var jafn vandlega leitað að gögnum sem gátu sýnt fram á sakleysi og gögnum sem gátu stutt ákæru? Og enn fremur: Hafði þetta andrúmsloft áhrif á meðferð mála fyrir dómstólum? Sjálfur er ég ekki að fullyrða að slíkt hafi gerst, að dómarar hafi látið undan almenningsálitinu, en þarna voru tímar sem voru erfiðir fyrir alla, þar á meðal dómara. En það væri alvarleg ásökun ef það væri og hún verður að byggjast á sönnunargögnum. En það er fullkomlega réttmætt að spyrja hvort óvenjulegar samfélagsaðstæður hafi skapað hættu fyrir hlutleysi og réttlæta málsmeðferð, fullkomlega eðlilegt. Dómstólar eiga að vera sjálfstæðir og óvilhallir. Ákæruvaldið á að gæta hlutlægni. Þessar kröfur eru ekki hátíðleg orð á blaði heldur grundvallarskilyrði þess að borgararnir geti treyst réttarríkinu. Í 70. gr. stjórnarskrárinnar er rétturinn til réttlátrar málsmeðferðar tryggður. Þar er einnig kveðið á um að sá sem er borinn sökum um refsiverða háttsemi skuli talinn saklaus uns sekt hans er sönnuð. Ég held að þetta séu réttindi sem við allir borgararnir viljum að gildi. Þessi réttindi eru ekki bara fyrir einhverja góða hegðun, þau eru ekki háð vinsældum og ekki stöðu eða hvað almenningi finnst um viðkomandi, þau gilda líka um skrímslavædda einstaklinga eftir alls konar hrun.

Virðulegur forseti. Í greinargerð með tillögunni er bent á að embætti sérstaks saksóknara hafi tekið um 806 mál til rannsóknar á starfstíma sínum. Þetta er samkvæmt skýrslu Ríkisendurskoðunar frá árinu 2016. Þetta er gríðarlegt umfang. Embættið starfaði við fordæmalausar aðstæður og fékk það erfiða verkefni, óöfundsverða, að rannsaka mögulega refsiverða háttsemi sem tengdist hruni fjármálakerfisins og rispaði verulega sjálfsmynd heillar þjóðar. Enginn ætti að gera lítið úr því verkefni og þeirri vinnu sem þar var unnin en einmitt vegna umfangsins, aðstæðnanna og þeirra miklu valdheimilda sem embættið hafði er nauðsynlegt að rannsaka hvort framkvæmdin hafi í öllum meginatriðum staðist þær kröfur sem réttarríkið gerir.

Í greinargerðinni kemur fram að lögfræðingar og lögmenn hafi gagnrýnt ýmsa þætti starfseminnar, m.a. símhlustanir, handtökur og aðrar þvingunarráðstafanir, varðveislu gagna og lengd rannsókna. Þetta eru ekki smávægileg stjórnsýsluatriði, herra forseti. Þegar ríkið hlerar síma, handtekur einstaklinga eða heldur þeim árum saman undir grun um refsiverða háttsemi er það að beita einhverju mesta valdi sem því er falið. Ég vona að almenningur reyni að setja sig í þessi spor, að liggja undir grun mögulega saklaus árum saman, og hvaða áhrif það getur haft á einstaklinginn, fjölskyldu, vini og allt samfélagið í kringum þessa einstaklinga. Slíkt vald verður að lúta ströngum skilyrðum. Það verður að vera lögmætt, nauðsynlegt og hóflegt. Það verður að vera hægt að kalla þá til ábyrgðar sem fara með valdið, öll völd. Það verður að vera hægt að kalla þá til ábyrgðar. Við skulum ekki gleyma því að rannsókn sakamáls getur haft gríðarleg áhrif á líf fólks, jafnvel þótt hún leiði ekki til sakfellingar. Orðspor getur beðið óbætanlegan hnekki, atvinna getur tapast og fjölskyldur geta liðið fyrir áralanga óvissu, eins og dæmin sanna. Það er ekki nægilegt að segja að allt hafi farið vel að lokum ef menn eru sýknaðir eða mál felld niður. Það hafa skapast sár sem sum gróa aldrei.

Virðulegi forseti. Hér er líka mikilvægt að líta í eigin barm. Alþingi stofnaði embætti sérstaks saksóknara, Alþingi setti lagaramma þess. Stjórnmálamenn tóku þátt í þeirri hörðu umræðu sem hér skapaðist eftir hrunið. Þess vegna getur Alþingi ekki látið eins og það standi fyrir utan þessa sögu. Við þurfum að spyrja hvort stjórnmálamenn hafi með orðum sínum og kröfum skapað væntingar um að tilteknir einstaklingar yrðu að sæta refsingu óháð því hvað rannsókn leiddi í ljós. Það væri alvarlegt ef stjórnmálalegur þrýstingur hefði orðið svo mikill að þeir sem fóru með rannsóknar- og ákæruvald hefðu upplifað að niðurfelling máls eða sýkna væri samfélagslegur ósigur því niðurfelling máls er ekki endilega mistök, sýkna er ekki endilega ósigur réttarkerfisins. Stundum er það einmitt sönnun þess að kerfið virkar. Réttarríki sem getur aðeins sakfellt en á erfitt með að sýkna er ekki sterkt réttarríki. Það er réttarríki sem hefur misst sjónar á hlutverki sínu. Við eigum jafnframt að gæta þess að rannsóknarnefnd Alþingis verði ekki notuð til að endurskrifa dóma eða draga úr ábyrgð þeirra sem voru réttilega sakfelldir. Það er ekki tilgangur þessarar tillögu. Hlutverk nefndarinnar verði að rannsaka vinnubrögð og ákvarðanir, verklag og virðingu fyrir réttindum sakborninga. Hún á að leiða í ljós hvort annmarkar hafi verið á starfseminni og hvaða úrbætur séu nauðsynlegar.

Virðulegi forseti. Tillagan gerir ráð fyrir þriggja manna rannsóknarnefnd sem samkvæmt lögum virkar um aðrar rannsóknarnefndir. Hún á ekki aðeins að skoða embætti sérstaks saksóknara heldur líka aðkomu annarra réttarvörslu- og eftirlitsaðila að rannsóknunum. Nefndin á að skila Alþingi niðurstöðum og tillögum að úrbótum innan árs frá skipun hennar. Þetta er skýr og afmörkuð leið til að fá heildstæða rannsókn sem hingað til hefur skort annan þennan árafjölda. Ef niðurstaðan verður sú að vinnubrögð hafi almennt verið vönduð og réttindi virt þá er mikilvægt að fá það staðfest. En ef hins vegar kemur í ljós að mistök hafi verið gerð, að réttindi hafi verið skert eða að þrýstingur hafi haft óeðlileg áhrif á ákvarðanir þá verðum við að hafa kjark til að horfast í augu við það, ekki til að hefna okkar á einhverjum öðrum heldur til að tryggja að slíkt endurtaki sig ekki.

Virðulegi forseti. Við getum ekki metið gæði réttarríkisins eingöngu út frá því hvernig það kemur fram við þá sem samfélagið hefur samúð með. Raunverulegir mælikvarðar um það eru hvernig það kemur fram við þá sem standa einir, eru óvinsælir og sæta þungum ásökunum. Þegar samfélagið hrópar á refsingar á réttarríkið að svara með lögum, sönnunargögnum og yfirvegun. Þegar þrýstingur verður sem mestur eiga reglurnar ekki að vera sveigjanlegar, þær eiga að vera mikilvægari. Þetta er kjarninn í þeirri tillögu sem við ræðum hér í dag. Við eigum ekki að óttast rannsókn á því hvort réttarríkið hafi staðist sitt erfiðasta próf. Við eigum ekki að óttast það og láta hjá líða að rannsaka það. Sagan er til þess að læra af henni.