rannsókn á störfum réttarvörslu- og eftirlitsaðila í kjölfar fjármálahrunsins.
Virðulegi forseti. Já, það er þetta með umhyggjuna og umhyggjuna fyrir heimilunum. Hún hefur bara aldrei verið áþreifanleg í þessari baráttu sem ég hef meira og minna staðið í frá hruni. Við höfum orðið lítið vör við umhyggju Sjálfstæðisflokksins. Það verður bara að segjast eins og er. Og ég skal alveg trúa því að hv. þingmaður finni til með öllum þessum heimilum, ég held að hún finni bara meira til með bankamönnunum. Jú, við búum í réttarríki og við eigum að standa jöfn gegn valdinu. Það hefur bara ekki verið reyndin, ekki fyrir heimili landsins sem lentu í þessu, þar á ég sjálf ljóta sögu og það er ekki sú eina.
Dregnir fram dómar götunnar. Eitt af því fyrsta sem var sagt eftir hrun var að það mætti ekki persónugera þetta, mætti ekki persónugera hrunið alveg eins og þetta hefði allt saman gerst svona úps, allt í einu varð hrun. Það varð ekkert hrun alveg óvart hérna. Það var ýmislegt búið að gerast á undan og það gerist ekki án þess að einhverjir hafi gert eitthvað. Það er alveg þannig. Hrunið var hins vegar rækilega persónugert í heimilum landsins, í fólkinu sem var varnarlaus fórnarlömb fjármálaglæpa. Sá dómur var mun harðari en dómstóll götunnar gat nokkurn tíma verið.