158. löggjafarþing — 21. fundur,  21. okt. 2026.

rannsókn á störfum réttarvörslu- og eftirlitsaðila í kjölfar fjármálahrunsins.

219. mál
[15:48]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér þykir ástæða til þess að benda á að rannsóknarskýrsla Alþingis, eins og verið er að fara fram á hérna, kostar peninga, hún er gríðarlega dýr. Það er dýrt að fara í svona rannsóknir. Ég myndi frekar vilja að þeir fjármunir væru veittir í það að rannsaka afdrif heimilanna og ég get alveg lagt það fram. Ég hef reyndar lagt það fram. Það fékk ekki stuðning Sjálfstæðisflokksins á sínum tíma. Það skiptir líka máli í þessu tilfelli að þetta er dýrt, að stofna þriggja manna nefnd, vera með hana í vinnu í heilt ár til þess að rannsaka rannsókn á einhverju. Það er bara eitthvað sem mér finnst ekkert endilega sjálfgefið að sé gert. Ég tel að aðrar rannsóknir væru mikilvægari heldur en þessi.