158. löggjafarþing — 21. fundur,  21. okt. 2026.

fjölmiðlar og Fjarskiptastofa.

198. mál
[16:00]
Horfa

Flm. (Bergþór Ólason) (M):

Herra forseti. Hvað þarf til að tveir Íslendingar geti sest niður, rætt málefni líðandi stundar, tekið samtalið upp og birt það á netinu? Þarf til þess leyfi frá ríkinu? Þarf að skrá sig hjá opinberri nefnd? Þarf að gera grein fyrir starfseminni, ábyrgðaraðilum og hugsanlegum fjárhagslegum ávinningi? Og hvað á að gerast ef fólk gerir það ekki? Á Íslandi hefur svarið verið að ríkisvaldið geti bankað upp á með kröfu um skráningu og í kjölfarið stjórnvaldssektir. Þetta er ekki tilbúið dæmi. Í ágúst síðastliðnum lagði fjölmiðlanefnd 500.000 kr. stjórnvaldssekt á stjórnanda hlaðvarpsins Einnar pælingar vegna vanrækslu á skráningu. Ekki vegna þess að maðurinn hefði verið sakfelldur fyrir meiðyrði, ekki vegna þess að hann hefði brotið gegn friðhelgi einkalífsins, ekki vegna þess að hann hefði birt ólöglegt efni heldur vegna þess að hann hafði ekki skráð hljóðvarpið sitt hjá ríkinu, hjá hinu opinbera.

Virðulegur forseti. Hér er eitthvað farið verulega úrskeiðis og það er einmitt ástæðan fyrir því að við þingmenn Miðflokksins, ásamt nokkrum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, leggjum hér fram frumvarp, sem ég mæli hér fyrir, um niðurlagningu fjölmiðlanefndar og breytingu á lögum um fjölmiðla. Markmiðið er einfalt, að færa ríkisvaldið aftur á réttan stað, tryggja nauðsynlegt lögbundið eftirlit en fella niður óþarfakvaðir, óþarfaskráningarskyldu og þá opinberu afskiptasemi sem hefur fengið að vaxa langt umfram eðlileg mörk.

Virðulegur forseti. Þegar fjölmiðlalögin voru samþykkt árið 2011 var fjölmiðlaumhverfið allt annað en það er í dag. Þá var hugsunin að setja sameiginlegan ramma um hefðbundna fjölmiðla og nýjar tegundir miðlunar en tæknin beið ekki eftir löggjafanum frekar en í öðru samhengi. Í dag getur hver sem er tekið upp samtal, birt myndskeið, skrifað pistil eða stofnað hlaðvarp. Það er einmitt eitt af því besta sem tæknibreytingar síðustu ára hafa fært okkur; fleiri raddir, meiri fjölbreytileiki, fleiri sjónarmið. Ekkert af þessu kallar sjálfkrafa á nýjar skrifstofur, skráningarkerfi eða eftirlitsheimildir ríkisins. Við hljótum því að spyrja okkur hvort það geti talist eðlilegt að ríkisstofnun hafi það verkefni að meta hvort samtal tveggja einstaklinga á netinu sé orðið svo skipulagt, reglulegt eða fjárhagslega áhugavert að þeir þurfi að lúta sérstöku fjölmiðlaeftirliti. Hvar liggja mörkin í raun? Ef tveir aðilar ræða stjórnmál einu sinni í viku, eru þeir þá orðnir fjölmiðill? Hvað ef þeir fá styrktaraðila eða ef þeir selja auglýsingu eða ef 100 manns hlusta fyrst en 10.000 síðar? Á hvaða augnabliki breytist venjulegt tjáningarfrelsi borgaranna í skráningarskylda starfsemi undir sérstöku eftirliti ríkisins? Ég tel að löggjafinn hafi ekki dregið þessi mörk sérstaklega skýrt á fyrri stigum og þegar lögin eru óskýr er það borgarinn sem situr uppi með óvissuna en ríkið með valdið eins og staðan er núna. Það er öfug forgangsröðun.

Virðulegur forseti. Frumvarpið er ítarlegra en svo að það snúist eingöngu um eina nefnd eða eitt hlaðvarp. Í fyrsta lagi leggjum við til að fjölmiðlanefnd verði lögð niður, þeirri sérstöku stjórnsýslueiningu verði lokað og þau verkefni sem áfram þurfa að vera á höndum stjórnvalda verði færð til Fjarskiptastofu, Neytendastofu eða annarra viðeigandi aðila. En hér er lykilatriðið: Við ætlum ekki að flytja allt gamla regluverkið óbreytt yfir í nýja stofnun og nýtt húsnæði. Við leggjum til að verkefnum ríkisins verði fækkað. Í öðru lagi leggjum við til að sjálfstæð hlaðvörp falli utan gildissviðs fjölmiðlalaga. Þau lúta áfram almennum lögum landsins eins og önnur starfsemi en ekki sérstöku skráningar- og eftirlitskerfi fjölmiðlalaga. Í þriðja lagi viljum við draga skýrari mörk um eftirlit með ritstjórnarlegu efni. Við teljum ekki að stjórnvöld eigi að hafa almennt hlutverk við að meta fréttamat, hlutlægni, nákvæmni fréttaflutnings eða val fjölmiðla á viðmælendum. Slíkt mat á fyrst og fremst heima í opinberri umræðu, hjá lesendum, áhorfendum og hlustendum og eftir atvikum fyrir dómstólum þegar lög eru brotin. Í fjórða lagi leggjum við til að upplýsingasöfnun og skráningarskylda verði takmörkuð við það sem nauðsynlegt er vegna tiltekinna lögbundinna verkefna. Loks er sérstaklega tryggt að vernd heimildarmanna sé ekki háð því hvort viðkomandi fjölmiðill hafi verið skráður hjá stjórnvöldum. Rétturinn til að vernda heimildarmann á ekki að vera verðlaun fyrir að hafa fyllt út eyðublað hjá ríkinu.

Ég geri ráð fyrir að einhverjir hv. þingmenn muni spyrja hvort við séum með þessu að ganga gegn skuldbindingum samkvæmt EES-samningnum. Svarið við þeirri spurningu er nei. Frumvarpið byggist þvert á móti á því að halda áfram því eftirliti sem Íslandi ber að tryggja samkvæmt EES-reglum um hljóð- og myndmiðlun. Það eftirlit færist til Fjarskiptastofu. Sú stofnun starfar nú þegar á sviði fjarskipta og viðamikillar EES-tengdrar stjórnsýslu og frumvarpið mælir sérstaklega fyrir um sjálfstæði hennar við meðferð þessara verkefna. EES-reglur gera ekki kröfur um að Ísland reki sérstaka fimm manna fjölmiðlanefnd. Það er alveg á hreinu. Það er mikill munur á því að uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar og nota þær sem tilefni til að byggja upp viðbótareftirlit sem þær gera ekki kröfu um. Við þurfum ekki að gullhúða allar reglur sem koma frá Evrópu með íslensku skrifræði.

Virðulegur forseti. Það er athyglisvert að hæstv. ráðherra málaflokksins, Logi Einarsson, hefur að verulegu leyti tekið undir gagnrýni á fyrirkomulag skráningar hlaðvarpa. Í júní kom fram að vinna væri hafin í ráðuneyti hans við breytingar á fjölmiðlalögum sem miðuðu að því að hlaðvörp yrðu ekki lengur skráningarskyld. Þegar málið var rætt hér á Alþingi í september benti ráðherrann sjálfur á að Norðurlöndin væru ekki að eltast við skráningu hlaðvarpa. Hann tók jafnframt undir mikilvægi þess að eftirlit yrði ekki svo íþyngjandi að það kæfði nýja starfsemi. Þetta eru skynsamleg sjónarmið en það hreyfist mjög hægt í skynsemisátt í þessum efnum, því miður.

En hvers vegna hefur þá ekkert verið brugðist við, hlýtur maður að spyrja sig. Af hverju þurfa borgarar áfram að búa við óvissuna og hvers vegna hefur ráðherrann ekki lagt fram þá lagabreytingu sem boðuð var í sumar? Það má auðvitað segja að þetta mál sé flókið, það þurfi frekari skoðun, samráð og nefndavinnu. Ég ætla ekki að gera lítið úr nauðsyn vandaðrar lagasetningar, alls ekki, en hér liggur fyrir fullbúið þingmannafrumvarp sem tekur á málinu og ef hæstv. ráðherra er sammála því að skráningarskylda hlaðvarpa sé óþörf ætti hann að geta fagnað því að þingmenn hafi nú tekið af skarið.

Virðulegur forseti. Minna ríkisvald er ekki minna frelsi. Þegar lagt er til að leggja niður ríkisstofnun er yfirleitt stutt í þau andmæli að verið sé að veikja eftirlit, draga úr réttindavernd eða stofna einhverjum mikilvægum samfélagslegum verðmætum í hættu en við verðum að geta gert greinarmun á mikilvægu verkefni og þeirri stofnun sem hefur verið falin framkvæmd þess. Það að fjölmiðlar gegni mikilvægu lýðræðislegu hlutverki þýðir ekki sjálfkrafa að ríkisvaldið eigi að hafa sem víðtækast eftirlit með þeim. Ég myndi raunar halda því fram að þessu væri að mörgu leyti öfugt farið. Staðreyndin er sú að því mikilvægari sem frjáls fjölmiðlun er fyrir lýðræðið, þeim mun ríkari ástæða er til að gæta að mörkum ríkisvaldsins gagnvart henni. Við eigum að standa vörð um tjáningarfrelsið, ekki búa til sífellt fleiri stjórnsýsluleg skilyrði fyrir beitingu þess og við eigum að hafa hugrekki til að spyrja hvort verkefni sem einu sinni var ákveðið að fela ríkinu sé enn þá nauðsynlegt. Það eru engin náttúrulögmál að stofnun sem sett var á fót árið 2011 verði að vera til um alla framtíð.

Virðulegur forseti. Að lokum: Það kann að þykja lítið mál í stóru samhengi ríkisrekstrarins hvort tvær manneskjur þurfi að skrá hlaðvarp sitt hjá ríkisstofnun en það er einmitt í slíkum málum sem grundvallarafstaða okkar til frelsis borgaranna birtist. Eigum við að ganga út frá því að fólki sé frjálst að tala saman, birta skoðanir sínar og miðla efni nema skýrar og málefnalegar ástæður réttlæti afskipti ríkisins eða eigum við að ganga út frá því að ríkið hafi almennt eftirlitshlutverk sem borgararnir þurfa að laga sig að? Ég vil fyrri leiðina.

Við þurfum ekki fjölmiðlanefnd til að Íslendingar geti talað saman. Við þurfum hins vegar skýr lög, hófstillt ríkisvald og öfluga vernd tjáningarfrelsisins. Það er inntak þessa frumvarps og ég vona að þingmenn geti sameinast um það markmið jafnvel þótt þeir kunni að hafa ólíkar hugmyndir um einstaka útfærslu. Ég óska eftir málefnalegri umræðu um frumvarpið og að því verði að henni lokinni vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar.

Virðulegur forseti. Látum fólkið tala og látum ríkið vita hvenær það á að þegja.