158. löggjafarþing — 21. fundur,  21. okt. 2026.

lyfjalög.

190. mál
[17:51]
Horfa

Flm. (Ingvar Þóroddsson) (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni kærlega fyrir hans góðu ræðu. Það er rétt sem hv. þingmaður segir, hann hefur talsvert meiri þekkingu á rekstri lyfjabúða og sölu lyfja en ég mun nokkurn tímann hafa en ég held að það eigi við um ansi margt sem á sér stað hér á Alþingi Íslendinga, við erum með reynslu úr mismunandi áttum og höfum mismunandi skoðanir og mismunandi gildi og úr þeim suðupotti koma síðan alls konar niðurstöður sem við höfum öll skoðanir á. Þótt ég hafi ekki reynsluna sem hv. þingmaður hefur af því að selja lyf þá hef ég reynslu af því, afsakið, virðulegur forseti, ég vona að ég sé ekki að ganga yfir velsæmismörk en ég hef reynslu af því að vera með niðurgang á Húsavík á sunnudegi og geta ekki keypt Imodium. Ég hef engan áhuga á ofreglusetningu í hvaða atvinnustarfsemi sem það kann að vera. Auðvitað þarf alltaf að vera reglusetning en ég er þeim megin í pólitíkinni að ég vil kannski frekar vera á bremsunni með það. Hún var náttúrlega mjög gagnleg og góð þessi upptalning sem hv. þingmaður kom með á þeim kvöðum sem eru á rekstri apóteka. Mín fyrstu viðbrögð eru þau að það hlýtur mjög mikið af þeim kvöðum sem hv. þingmaður telur upp að vera komið til vegna sölu á einmitt ávísunarskyldu lyfjunum. En auðvitað ætti þetta, ef þetta frumvarp nær fram að ganga — og eins og hefur komið fram í umræðunni í dag þá er nú þegar leyfilegt að selja þessi lyf, það eru ákveðnar verslanir sem selja þau. Auðvitað ættu þær kvaðir sem þessar verslanir undirgangast vegna sölu á Imodium eða parasetamóli að vera þær sömu til að gæta sanngirni. Tími minn er búinn en ég vil bara spyrja: Getum við ekki létt á þessum kvöðum til þess að t.d. apótekin á Patreksfirði eða Húsavík eða Dalvík, svo maður taki þau sem dæmi — gætum við létt á kvöðum og lækkað rekstrarkostnað þessara verslana þannig að þær gætu haldið áfram að starfa og blómstra jafnvel þó að matvöruverslanir á þessum stöðum myndu líka selja einhver lausasölulyf?