158. löggjafarþing — 21. fundur,  21. okt. 2026.

lyfjalög.

190. mál
[17:56]
Horfa

Flm. (Ingvar Þóroddsson) (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans svör og bara svo það sé alveg á hreinu þá er ég ekki að setja út á matseld Húsvíkinga, frekar bara mína eigin meltingu. Ég er kannski að segja of mikið hér í þessum ræðustól. Eins og ég sé þetta fyrir mér, eins og ég myndi vilja sjá þetta, þá væru aðstæður þannig að lyfjaútibúið á Patreksfirði myndi enn þá vera til staðar til að tryggja aðgengi að ávísunarskyldum lyfjum þótt það væri kannski ekki opið um helgar o.s.frv. og síðan væri matvöruverslunin að tryggja ákveðið aðgengi að lausasölulyfjum um helgar o.s.frv. Þess vegna held ég að það sé mjög mikilvægt — mér fannst dýrmætt innlegg hv. þingmanns sem sneri einmitt að þessum kvöðum. Og ég vil kannski endurtaka spurninguna: Hvernig lítur þessi listi sem hv. þingmaður las upp í sinni ræðu yfir allar þessar kvaðir, sem sumar hverjar hljóma kannski óþarflega íþyngjandi, til að mynda í Noregi þar sem þú getur verslað Paratabs, Íbúfen, Imodium og allt þetta á t.d. bensínstöðvum? Hvernig lítur þessi listi út þar, þekkir hv. þingmaður til þess? Í greinargerð frumvarpsins erum við mikið að horfa til Norðurlandanna en mér finnst sjálfsagt að við horfum líka til Norðurlandanna og mögulega léttum kvöðum af apótekum þannig að það þurfi einmitt ekki að verða til þess að lyfjaútibúum eða apótekum fækki með því að það sé aukin samkeppni við matvöruverslanir þegar kemur að lausasölulyfjum.