158. löggjafarþing — 22. fundur,  22. okt. 2026.

losun og binding kolefnis.

[14:02]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Ég vil fagna þessari góðu fyrirspurn og þeim stuðningi sem ég fæ hér frá Framsóknarflokknum við endurheimt votlendis sem er gríðarlega mikilvægt verkefni. Eins og hv. þingmaður kemur að er svo margt, margt annað sem skiptir líka máli, svo margt annað sem skilar loftslagsávinningi. Við erum auðvitað stöðugt að öðlast betri og betri þekkingargrunn þegar kemur að því að skilja kolefnisbindingu í jarðvegi sem styður líka við faglega og ígrundaða ákvarðanatöku og stefnumótun í þessum efnum. Það eru t.d. að koma fram rannsóknir, sem hv. þingmaður nefnir, sem benda til marktækt meiri kolefnisbindingar í beittu landi heldur en óbeittu. Þetta er í samræmi við rannsóknir sem hafa verið gerðar erlendis, mjög athyglisverðar niðurstöður sem við vöktum sérstaklega í ráðuneytinu og ég veit að Land og skógur fylgist líka með. Þetta minnir okkur auðvitað á það að bændur og landbúnaður gegna algerlega ómissandi hlutverki í glímunni við loftslagsvandann og bændur eru okkar bestu bandamenn þegar kemur að því að ná þar árangri, hvort sem það hefur að gera með verndun kolefnisríkra vistkerfa eða þegar kemur að endurheimt votlendis. Þar er heilmikið að gerast og svo eru það líka þessar rannsóknir sem hv. þingmaður bendir á sem sýna einmitt ávinninginn af beitinni sjálfri.

Með hliðsjón af öllu þessu hefur núverandi ríkisstjórn lagt mjög ríka áherslu á loftslagsaðgerðir sem styðja við landbúnað um leið, styðja við til að mynda rekstrarsparnað í búrekstri, aukna framleiðni. Þess vegna erum við að styðja t.d. markvissari áburðardreifingu sem er aðgerð sem skilar mjög miklum loftslagsávinningi, miklu meiri loftslagsávinningi heldur en t.d. rafbílastyrkir, sem kemur þá ofan á það sem við erum að gera fyrir t.d. garðyrkjubændur. Þannig að það er mjög margt spennandi í gangi og ég fagna þessari umræðu.