Lyfjagjöf á hjúkrunarheimilum og umönnun aldraðra.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. málshefjanda og hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir þessa mikilvægu umræðu. Það segir mikið um hvert samfélag hvernig þar er hugsað um aldraða. Okkur ber að tryggja að fólk sem hefur unnið langa starfsævi, alið upp börn og lagt mikið af mörkum til samfélagsins fái góða umönnun á ævikvöldi sínu. Þegar fólk flytur á hjúkrunarheimili er starfsfólki falin mikil ábyrgð. Þetta er stórt skref fyrir aldraða og aðstandendur þeirra. Aðstandendur eiga að geta farið heim að lokinni heimsókn til aldraðra ættingja í þeirri vissu að þeirra nánustu séu í góðum höndum, að á hjúkrunarheimilinu gefi starfsfólk sér tíma til samtals, veiti nauðsynlega aðstoð og taki eftir því ef eitthvað bjátar á.
Þess vegna vekur umfjöllun um lyfjagjöf á hjúkrunarheimilum áhyggjur. Lyf geta að sjálfsögðu verið nauðsynleg og bætt líðan fólks en við verðum að geta treyst því að meðferðin taki mið af þörfum hvers og eins, fylgst sé með áhrifum hennar og hún endurmetin reglulega. Við megum aldrei sætta okkur við að lyf komi í stað umönnunar og nærveru. Ef einstaklingur er órólegur þarf að spyrja hvað veldur. Eru það verkir, ótti eða einmanaleiki? Vantar viðkomandi aðstoð eða einfaldlega nærveru? Það þarf að gefa sér tíma til að skilja hvað býr að baki og bregðast við því.
Ég veit að á hjúkrunarheimilum starfar margt gott og hæft fólk sem sinnir krefjandi starfi af alúð, oft við mikið álag og erfiðar aðstæður. Velferð aldraðra verður þó alltaf að vera í fyrirrúmi. Það er sameiginlegt verkefni starfsfólks, stjórnenda, aðstandenda og stjórnvalda að tryggja það. Þess vegna verður að leggja við hlustir þegar bent er á að eitthvað megi betur fara og bregðast við með viðeigandi úrbótum. Þetta á sérstaklega við þegar aðstandendur lýsa áhyggjum enda þekkja þeir oft best sögu, venjur og líðan sinna nánustu. Aðstandendur verða að geta komið ábendingum á framfæri, fengið svör og treyst því að brugðist sé við þegar þörf er á. Ég styð heilbrigðisráðherra og aðra í að gera betur í þessum málum. Við eigum að gera miklar kröfur fyrir hönd eldri borgara. Þetta eru mál sem snerta okkur öll því við vonumst væntanlega öll eftir því að njóta þess að eiga áhyggjulaust ævikvöld. Við viljum því öll geta treyst því að allir okkar eldri borgarar á hjúkrunarheimilum fái góða umönnun og mæti hlýju, þolinmæði og virðingu á hverjum degi.