158. löggjafarþing — 23. fundur,  22. okt. 2026.

notkun ólöglegra peptíða meðal barna og ungmenna.

245. mál
[14:57]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Sigurður Helgi Pálmason) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. heilbrigðisráðherra Ölmu Möller fyrir að vera hér í dag og ræða þær áskoranir sem fylgja innflutningi, sölu og notkun ólöglegra peptíða hér á landi. Á síðustu misserum hefur tollgæslan lagt hald á rúmlega 5.000 glös af ólöglegum peptíðum sem tengjast m.a. þyngdarstjórnun, húð-, hár- og vöðvauppbyggingu. Í öllum tilfellum koma peptíðin frá Kína og voru send hingað til lands með póst- og hraðsendingum. Sérstakar áhyggjur vekur að margar þeirra tegunda peptíða sem haldlagðar hafa verið hér á landi hafa lítið verið prófaðar á mönnum. Langtímaáhrif þeirra eru því óþekkt. Oft er heldur ekki ljóst hver framleiðir efnin, við hvaða aðstæður þau eru framleidd eða hvort framleiðslan sé undir nokkru gæðaeftirliti. Fólk er því að sprauta þessum efnum í sig án þess að vita í raun hvað þau innihalda eða hvaða áhrif þau geta haft á heilsuna.

Ég þurfti ekki að leita langt á samfélagsmiðlum til að sjá hvernig þessum vörum er haldið að fólki. Þar eru gefin fyrirheit um skjótan árangur, hvort sem markmiðið er að vera grennri, sterkari eða bæta útlitið. Oft er notkunin kynnt sem sjálfsagður hluti af því að hugsa vel um líkamann þótt óvissa sé um innihald efnanna og áhrif þeirra. Þessi skilaboð geta haft sérstaklega mikil áhrif á ungt fólk sem enn er að móta sjálfsmynd sína og upplifir þrýsting vegna óraunhæfra útlitskrafna. Til að geta brugðist við þurfum við skýra mynd af því hversu útbreidd notkunin er, hvaða hópar nota efnin og hvaða heilsufarsáhætta fylgir notkun þeirra. Á þeim grundvelli getum við metið hvort núverandi aðgerðir dugi eða hvort gera þurfi meira, sérstaklega til að vernda börn okkar og ungmenni.

Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra: Hvaða upplýsingar liggja fyrir um umfang notkunarinnar hér á landi, einkum meðal barna og ungmenna, og þá heilsufarsáhættu sem hún getur haft í för með sér? Í öðru lagi spyr ég hvernig eftirliti með innflutningi og dreifingu þessara efna sé háttað og loks spyr ég hvort ráðherra hyggist grípa til frekari aðgerða til að sporna gegn innflutningi og dreifingu þessara efna. Ef svo er, hvaða aðgerðir eru fyrirhugaðar og hvenær má vænta þeirra?