notkun ólöglegra peptíða meðal barna og ungmenna.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svarið. Þar kom margt í ljós sem var mjög gott að heyra. Mig langar að fylgja þessu eftir með því að beina sjónum sérstaklega að fræðslu og forvörnum. Eftirlit með innflutningi og sölu skiptir miklu máli en við þurfum líka að huga að því hvaða upplýsingar mæta fólki áður en það ákveður að kaupa þessi efni og nota þau. Á samfélagsmiðlum getur fólk séð frásagnir af skjótum árangri og persónuleg meðmæli sem erfitt getur verið að meta. Þegar sá sem mælir með vöru nýtur trausts fylgjenda sinna geta slík skilaboð haft mikil áhrif, sérstaklega ef lítið fer fyrir upplýsingum um þessa óvissu og áhættu. Ég tel því mikilvægt að almenningur hafi aðgang að skýrum og aðgengilegum upplýsingum. Hvað vitum við um þessi efni og hvað vitum við ekki? Og hvers vegna er varasamt að treysta því að vara innihaldi það sem stendur á umbúðunum þegar framleiðsla hennar og sala er utan við viðurkennt eftirlit? Það þarf sérstaklega að huga að því hvernig við náum til ungs fólks. Það nægir tæplega að birta upplýsingar á vefsíðu og gera ráð fyrir að það skili sér til þeirra sem þurfa á þeim að halda.
Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra hvort til greina komi að efla fræðslu á þeim miðlum þar sem þessum vörum er haldið að fólki og vinna jafnframt með skólum, íþróttafélögum og öðrum sem starfa með ungmennum að fræðslu og forvörnum. Ég veit að ráðherra var búinn að svara einhverju af þessu en mér þætti vænt um að fá restina.