Loftslagsmál.
Virðulegi forseti. Ég ætla að byrja þar sem hv. þm. Sigríður Á. Andersen endaði og taka undir að við þurfum að beina sjónum okkar sérstaklega að því að vera með innleiðingu sem er skynsamleg. Þar á ég bara við að við séum að innleiða tæknilausnir sem eru tilbúnar eða við getum tekið þátt í að þróa á skynsamlega vegu. Það er það sem mér finnst vanta núna þegar við erum t.d. að horfa á að draga úr losun í stórum flokkum eins og sjávarútvegi, að við byrjum þar sem tæknin er tiltölulega langt komin og við eigum möguleika á að fara í umbreytingu og að stjórnvöld séu að hraða slíkri þróun. Ég get tekið undir mikilvægi þess að við fjárfestum þar. Ég vona að við séum með áþreifanlegum hætti að passa upp á að við séum að ná árangri t.d. þegar kemur að strandveiðiflotanum.
Síðan vil ég líka taka undir að það skiptir máli að við séum með færa sérfræðinga eins og hv. þm. Ása Berglind Hjálmarsdóttir kom inn á. Það á við hjá stofnunum okkar, Veðurstofunni, Íslenskum orkurannsóknum og öðrum. Það er ekki bara vegna þess að það skipti máli fyrir okkur að leitast við að spá hvernig hlutirnir verði eftir tíu, 20, 30 ár út frá hlýnun eða ekki hlýnun. Það skiptir máli vegna þess að það hvernig þessir þættir þróast hefur grundvallaráhrif á allar okkar kjarnaatvinnugreinar. Það er þess vegna sem við þurfum að fjárfesta vel í því að skilja hvernig áhrifin verða svo við getum passað upp á atvinnugreinar, passað upp á öryggi okkar, því að auðvitað er það líka tengt öryggismálum, t.d. hvernig hægt er að reikna hvernig hafís í kringum landið mun þróast og annað slíkt. Þetta heildarsamhengi skiptir okkur gríðarlega miklu máli hvað varðar þessa umræðu.
Ég ætla að enda þessa umræðu þar sem ég byrjaði. Við þurfum að búta þessa umræðu niður og við þurfum að halda fast í okkar trúverðugleika þegar kemur að orkuskiptum og (Forseti hringir.) þegar kemur að því að vera fremst í flokki. Þar eru nýsköpun og raunhæfar aðgerðir í innleiðingu eins og hvað varðar sjávarútveginn mikilvægar.