158. löggjafarþing — 29. fundur,  10. nóv. 2026.

stefna og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna til ársins 2030.

75. mál
[17:53]
Horfa

Ragna Sigurðardóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir sína ræðu. Ég sé að hv. þingmaður er ekki á áliti frá 1. minni hluta velferðarnefndar um frávísun. Auðvitað er alltaf hægt að takast á um þessar upphæðir og þegar litið er til baka hefði að sjálfsögðu mátt gera hlutina betur og öðruvísi og ég hef tekið skýrslu Ríkisendurskoðunar varðandi farsældarlögin mjög alvarlega og úttektina á þeim.

Mig langar að spyrja hv. þingmann: Lög um farsæld barna voru sett 2021. Innleiðingin átti að taka þrjú ár en hvers vegna var hún ekki fullfjármögnuð af fyrri ríkisstjórn undir stjórn Framsóknarflokksins, Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna? Sú ríkisstjórn hafði þrjú ár, innleiðingin átti að taka þrjú ár. Hvers vegna var sú innleiðing ekki fullfjármögnuð? Það hefur verið talað um, eins og ég hef áður sagt í þessari umræðu, að innleiðingin gæti tekið tíu ár. Varðandi úrræðin — það er það sem ég tek með mér sem eina af stærstu athugasemdum ríkisendurskoðanda við farsældarlögin. Mesta gagnrýnin á þau hefur verið um skort á úrræðum og það er bara spurning um pólitíska forgangsröðun og forgangsröðun fjármuna. Tekur hv. þingmaður undir það að úrræðin verði að vera til staðar? Það gengur ekki að innleiða farsældarlög en horfa á sama tíma á það að úrræðin hafa verið lögð niður hvert á fætur öðru, þ.e. úrræði á vegum ríkisins sem þjónusta börn með fjölþættan vanda.