almennar íbúðir.
Virðulegi forseti. Ég fylgdist af athygli með orðaskiptum hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur og hæstv. ráðherra Ragnars Þórs Ingólfssonar vegna þess að við erum á sama stað. Hvað er í gangi? Ég hef reynt að greina hvað hæstv. ráðherra hefur sagt til að útskýra það að við erum hér með mál þar sem ekki hafa verið færð nein rök fyrir að séu einhver tímamörk á eða brýn nauðsyn fyrir. Ef ég skildi málið rétt þá gengur það út á það að í stöðu þar sem 2.500 íbúðir eru óseldar og er ekki hægt að selja þá verða menn að grípa til aðgerða. Menn ætla að setja fjármuni í það að fá framkvæmdir af stað í félögum eins og Bjargi og öðrum slíkum vegna þess að það er vandi á húsnæðismarkaði.
Virðulegi forseti. Ég er ekki sérfræðingur í að byggja hús en þú klárar það ekki á nokkrum vikum. Það liggur alveg fyrir. Ef ég skil málið rétt þá eru, ef allt gengur upp, tvö ár í að það sé byggt. Það hefur að vísu komið fram hjá hæstv. ráðherra að þetta snúist um hagsmuni verktaka sem annars væru í slæmum málum en þetta er ekki eitthvað klukkutímamál. Þetta eru ekki náttúruhamfarir. Það er ekki þannig. Og það er ekki aðeins að þetta mál var ekki sent í samráðsgátt, sem hefði verið eðlilegt, og það er ekki aðeins, virðulegi forseti, að ráðherra talar ekki fyrir málinu þannig að við getum kallað eftir umsögnum og fengið álit sem á að gera frá fjármálaráðuneytinu, um kostnaðarmat og annað slíkt. Það er ekki aðeins það heldur koma hér stjórnarliðar fram og segja: Það verða engar gestakomur. Við fáum ekki neinn til þess að segja álit sitt á þessu máli og að sjálfsögðu engar umsagnir. Hæstv. ráðherra sagði bara: Í alvöru, hverjir kæmu með umsagnir? Bara Samtök atvinnulífsins og verkalýðshreyfingin og Samtök iðnaðarins. Við vitum öll hvað þessu fólki finnst. Þetta voru röksemdir hæstv. ráðherra.
Virðulegur forseti. Hvað er í gangi hérna? Síðan koma stjórnarliðar og hér var haldin af einum stjórnarliða fín ræða í rauninni um að þetta væri slík breyting að þetta myndi bara breyta öllu og maður bara hugsaði: Já, ókei, þetta er svona rosa stórt mál sem enginn sér. Það er nú eins gott að við skoðum það nú vel ef við erum að tala um einhverja grundvallarkerfisbreytingu. Reyndar er þetta kerfi sem var komið af stað á síðasta kjörtímabili og hér er í rauninni verið að flýta því að einhverjir hlutir komist af stað. En ég tek undir með hæstv. ráðherra þegar hann sagði að húsnæðismál eru efnahagsmál. Ég hef mjög miklar áhyggjur af stöðunni á húsnæðismarkaði. Ég held að það sé mjög mikilvægt að ríkisstjórnin komi með útspil í því. En að sama skapi, vegna þess að þetta er svo stórt, þetta er svo mikið hagsmunamál og í grunninn varðar þetta fólk, þetta snýst um fólk, þá eigum við auðvitað að fá sjónarmið þeirra sem best þekkja til og hafa skoðanir á málinu. En stjórnarmeirihlutinn ætlar í fullri alvöru að keyra þetta mál í gegn án þess að það komi neinir gestir, engar umsagnir. Þau eru alveg hörð á því. Halda ræðu um það að ráðuneyti félagsmála, sem hefur nú að vísu gert mistök, oftar en einu sinni, oftar en tvisvar eins og öll ráðuneyti, sé með þetta svo algjörlega á hreinu að menn trúi því ekki upp á stjórnarandstöðuna að hún ætli að ræða þetta, hvað þá meira.
Virðulegi forseti. Hvað ætlar stjórnin að ganga langt í þessari vegferð? Þessi ríkisstjórn hóf sína vegferð á því að brjóta lög um opinber fjármál, lög sem var fullkomin sátt um og voru tíu ár í undirbúningi. Menn vissu að þeir næðu ekki fullkomnun, menn ná auðvitað aldrei fullkomnun í slíkum hlutum en ætluðu að feta sig í rétta átt þar og vinna skipulega að því í þverpólitískri sátt. Þegar það frumvarp var samþykkt komu fulltrúar allra flokka og sögðu: Þetta er ekki bara ríkisstjórnin, þetta erum líka við. Allir flokkar til hægri og vinstri, miðjan, allir, hafa, þangað til þessi ríkisstjórn kom, lagt metnað sinn í að framkvæma þessi lög með sem bestum hætti. Af hverju? Vegna þess að við vorum að reyna að læra af þeim sem gerðu best þegar kom að meðhöndlun opinbers fjár. Ég ætla nú ekki að fara í það allt saman enda mun ræðutíminn ekki duga í það. En þessi ríkisstjórn byrjaði á því að brjóta lögin. Í síðustu fjármálaáætlun, sem var með mörgum göllum, svo maður sé nú bara hógvær og lítillátur, ákvað hún að gera eitthvað sem við höfum ekki séð áður. Hún ákvað að uppfæra hana ekki eftir að ný hagspá kom. Það var bara skrifað út: Við ætlum ekki að gera það. Það er reyndar í andstöðu við lög um opinber fjármál vegna þess að það á alltaf að vinna allar áætlanir út frá bestu mögulegu forsendum.
Ýmislegt annað gæti ég nefnt, virðulegi forseti, sem þessi ríkisstjórn hefur gert sem aðrar ríkisstjórnir hafa ekki gert. Hér hefur verið bent á það, bæði af hálfu ráðherra og sömuleiðis hv. þingmanna, að það hafi verið gert áður að menn taki mál í gegnum nefndir. Það er rétt. En það hefur verið nokkuð almenn regla að góð sátt hefur verið um það og oftast eru menn með lítinn tíma og þá hefur það verið metnaður hjá viðkomandi nefnd að reyna að kalla fram eins góðar upplýsingar og mögulegt er á skömmum tíma, t.d. með því að kalla inn gesti o.s.frv. Hér? Nei. Vér einir vitum, það eru skilaboðin úr þessum stól þegar stjórnarliðar tala. Vér einir vitum og okkur er slétt sama um þessi þingsköp, okkur er bara slétt. Á sama tíma segja þeir að þetta sé svo gríðarlega mikilvægt mál. Ég trúi því. Kannski er þetta gott mál, kannski er þetta slæmt mál, kannski er það bara ekki nógu vel hugsað. Kannski hefur mönnum yfirsést eitthvað þó svo að menn hafi verið með allan besta ásetning í heimi. En ríkisstjórnin ætlar að ganga þannig fram að við munum aldrei fá að komast að því hvað öðrum finnst um þetta. Það er að vísu ekkert sérstaklega trúverðugt. Það er ekkert sérstaklega trúverðugt þegar fólk segir: Við erum búin að undirbúa þetta svo vel, þetta er svo svakalega gott að við viljum alls ekki að neinn fái að segja álit sitt á þessu, þið eigið bara að samþykkja þetta. Það hljómar ekki mjög sannfærandi.
Ég velti því fyrir mér að allt það sem gert er skapar fordæmi. Stundum er það þannig að stjórnarliðar telja sig vera á rosa góðum stað af því að þeir eru að ganga fram og keyra eitthvað í gegn með þeim hætti sem ekki hefur verið gert áður; hlusta ekki á sérfræðinga, hlusta ekki á þá sem best þekkja. Þeir hugsa: Þetta var nú aldeilis gott hjá okkur. Fór nú illa með stjórnarandstöðuna þarna. Ég hvet hv. stjórnarliða að hugsa um það að þetta snýst ekki um daginn í dag. Þetta snýst ekki um núverandi stjórnarandstöðu og núverandi stjórnarmeirihluta. Þetta snýst um það að allt það sem gert er hefur áhrif og skapar fordæmi. Og hér eru stjórnarliðar að skapa fordæmi sem er einfaldlega þetta: Stór og lítil mál er hægt að keyra í gegnum þingið, ekki gegnum hefðbundna þinglega meðferð, þegar þeirri ríkisstjórn, hver sem hún er sem situr, dettur það í hug.
Virðulegi forseti. Það er ekki hægt að skapa verra fordæmi. Það að ráðherra mæli fyrir máli, máli sé dreift þannig að þingmenn geti kynnt sér það, málið fari síðan í gegnum þrjár umræður — það er ekki gert af því að menn voru bara að hugsa: Já, það er búið að kjósa löggjafarþing og það verður bara að hafa eitthvað að gera, sko. Það er ekki gert út af því. Það er gert til þess að vanda málsmeðferð. Þrátt fyrir að menn fari í gegnum þessa ferla alla þá hafa samt orðið mistök. Menn ákváðu t.d. fyrir ekkert svo mjög mörgum árum að senda mál í samráðsgátt þannig að það væru meiri líkur á því þegar ráðherra kæmi fram með málið að öll sjónarmið væru komin fram og ef mönnum hefði yfirsést eitthvað þá væri hægt að laga það áður en það væri komið inn í þingið. Var þetta mál sent í samráðsgátt? Nei, nei, nei. Var þá farið eftir gamla laginu, áður en samráðsgáttin kom, þ.e. ráðuneytið undirbjó málið, ráðherra talaði fyrir því, sendum það út til umsagnar, fáum gesti? Nei, nei, nei. Við erum ekki þar. Það er gott að hæstv. ráðherra sé við umræðuna en í allri þessari umræðu hefur hann ekki getað fært nein rök fyrir því af hverju hann flutti ekki málið, engin. Það að segja að þetta sé í tengslum við kjarasamninga — það er ekkert sem kallar á þessa meðferð þó að það hafi komið yfirlýsing um það í tengslum við kjarasamninga, bara nákvæmlega ekki neitt. Reyndar er það þannig að ef menn væru mjög mikið að hugsa um kjarasamninga þá sitjum við í hv. fjárlaganefnd og erum enn þá að bíða eftir svörum um það hvað þessar yfirlýsingar eða fyrirheit eða loforð ríkisstjórnarinnar kosta ríkissjóð. Við vitum það ekki enn þá. Það var gengið frá þessu 8. október, ef ég skil málið rétt.
Virðulegi forseti. Ég vona að hæstv. ráðherra komi í andsvör og útskýri þetta fyrir okkur vegna þess að honum hefur ekki tekist það. Við erum búin að ræða þetta mál núna, virðulegi forseti, í nokkra klukkutíma. Hæstv. ráðherra hefur farið í andsvör, sem er vel, við alla held ég en hann hefur ekki enn þá útskýrt af hverju það er gengið fram með þessum hætti. Fyrir þá sem ekki þekkja til þá er það mjög oft þannig að bæði hv. alþingismenn í stjórn og stjórnarandstöðu, alla vega hef ég upplifað það þannig og ég held allir sem ég þekki sem hafa verið á þingi — stundum er það þannig að manni líst bara ansi vel á mál. Já, ég held þetta sé gott mál. Svo koma einhverjir sem þekkja ákveðna anga málsins, senda umsögn, eða koma sem gestir og þá áttar maður sig á því að það þarf að hugsa þetta aðeins betur. Svo getur það líka verið öfugt. Það koma mál frá ráðherrum, hvort sem maður hefur verið í stjórn eða stjórnarandstöðu, sem manni líst bara einstaklega illa á. En svo þegar maður skoðar umsagnir frá fólki sem þekkir málin vel þá skiptir maður jafnvel um skoðun. Í þessu tilfelli er ekki neinu slíku að dreifa. Það er einbeittur ásetningur ríkisstjórnarmeirihlutans að við fáum ekki gesti eða umsagnir frá þeim aðilum sem þekkja best til.
Nú myndi ég ætla, virðulegi forseti, og ég held að við fögnum því öll að hér sé verið að koma með einhverja aðgerð í tengslum við þá stöðu sem er uppi á húsnæðismarkaði. Hún er grafalvarleg. Það hvernig mál þróast þegar þú ert með 2.400 eða 2.500 íbúðir sem seljast ekki þrátt fyrir verðlækkanir, það getur ekki komið neitt gott út úr því nema eitthvað hreyfist. Sumir segja að við höfum byggt of mikið. Ég veit ekki hvort það sé rétt. En ég veit það að þetta er eitthvað sem þingið þarf að ræða. Það væri mjög gott að það kæmi mál frá hæstv. ríkisstjórn til þess að reyna að leysa þessa stöðu. (Forseti hringir.) Þetta mál hefur verið kynnt í þessari umræðu allt frá því að vera stórkostlegt og að það breyti öllu í það að vera bara smávægilegt. (Forseti hringir.) Við verðum einhvern veginn að vinna út úr því því að ríkisstjórnin ætlar ekki að leyfa þeim sem best þekkja til að koma með sitt álit.