158. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2026.

Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.

314. mál
[17:51]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Mér er örlítill vandi á höndum. Ég er ekki viss um að hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson hafi farið alveg rétt með eða vitnað rétt í hv. þm. Jens Garðar Helgason en látum það liggja á milli hluta. Ég held reyndar að þær breytingar sem er verið að gera samhliða þessu máli hér, þessari framkvæmdaáætlun, og varða færslu á lífeyrisskuldbindingum Ríkisútvarpsins, muni gera að verkum að Ríkisútvarpið standi sterkar á eftir en nú er, jafnvel þrátt fyrir þetta 10% markmið sem liggur nú fyrir, þannig að ég túlka það ekki eins og hv. þingmaður að verið sé að draga úr fjárhagslegri getu Ríkisútvarpsins. Þegar þessi tvö mál verða skoðuð samhliða þá held ég að Ríkisútvarpið standi sterkar á eftir. Reynist ég ósannspár skal ég gjarnan koma seinna upp í þessa pontu og draga það til baka en mér sýnist það vera myndin sem er að teiknast upp.

Varðandi seinni vangaveltur hv. þingmanns um hvort ég sé ekki sammála hv. þingmanni um að við viljum hafa annars vegar opinbera miðilinn og hins vegar einkareknu miðlana blómlega þá er þetta nú ákaflega ónákvæm mælieining, þ.e. hugtakið blómlegt, en ég held að ég skilji alveg hvert hv. þingmaður er að fara. Ég hef engar áhyggjur af því að Ríkisútvarpinu verði gert svo erfitt fyrir í náinni framtíð að það teljist vera á hættulegri leið. Ég hef hins vegar ítrekað hér margsinnis í bæði ræðu og svo í andsvörum við hv. þm. Jens Garðar Helgason að ég held að við séum komin langt, langt út fyrir það hlutverk sem skrifað er inn í lögin um RÚV. En ég ítreka aftur það sem ég sagði í ræðu minni og hv. þingmaður vitnaði til: Vissulega hefur RÚV verið í gegnum tíðina ákveðinn varðhundur og verndari gagnvart íslenskri tungu og það ber ekki að gera lítið úr því. En við getum hugsanlega styrkt einkareknu miðlana (Forseti hringir.) með einhvers konar kerfi til þess að vera með íslenskuna sína í góðu lagi.