Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.
Virðulegi forseti. Ég tek hér til máls um þetta mál, Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, eins og yfirskriftin er. Þetta er auðvitað stærra mál að því leyti að þetta snýr að innlendri fjölmiðlun í heild sinni og í samhengi við alþjóðlega fjölmiðlun sem hefur áhrif á stöðuna á innlendum markaði. RÚV er auðvitað fjölmiðill sem starfar í almannaþágu, eins og ég sagði áðan, og er sem slíkur menningarstofnun sem gegnir mikilvægu hlutverki, m.a. fyrir íslenska tungu, listir og menningu í landinu og síðast en ekki síst fyrir lýðræðislega umræðu. Það á að mínu mati að leitast við að styðja við innlenda dagskrárgerð eins og kostur er og búa til rými fyrir fjölbreyttar raddir í samfélaginu sem er að sönnu mikilvægt fyrir sameiginlegan menningararf þjóðarinnar, eins og það er gjarnan kallað.
Það breytir ekki því að staðan á íslenskum fjölmiðlamarkaði er snúin og erfið og er í raun og veru alvarleg. Einkareknum fjölmiðlum hefur fækkað enda hafa rekstrarskilyrði þeirra versnað mjög á undanförnum árum. Auglýsingatekjur fjölmiðla voru til að mynda 36% minni á síðasta ári en þær voru þegar þær voru hæstar árið 2016 og 8% minni en þær voru árið 2010. Það er ljóst að hlutdeild alþjóðlegra tæknirisa og streymisveitna í þessum tekjum hefur aukist verulega og þær tóku til sín um 51% af auglýsingafjármagni árið 2024. Á sama tíma hefur hlutdeild RÚV í auglýsingatekjum innlendra fjölmiðla einnig aukist milli ára. Hún var 20% árið 2022 og 29% árið 2024. Ýmsir aðilar hafa lýst því sem skoðun sinni og komið því á framfæri að starfsemi RÚV á auglýsingamarkaði hafi neikvæð áhrif á rekstur og fjárhag annarra fjölmiðla en á móti má segja að það komi skýrt fram að fulltrúar auglýsingastofa og framleiðendur kvikmyndaðra auglýsinga segja RÚV vera mjög mikilvægan vettvang fyrir auglýsendur á íslenskum markaði.
Með frumvarpi hæstv. menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra er lagt til að reyna að takmarka umsvif RÚV á auglýsingamarkaði með þeim hætti að dregið verði úr fjárframlagi ríkisins til RÚV sem nemi 10% af auglýsingatekjum RÚV. Þetta tengist auðvitað líka áformum ríkisstjórnarinnar um að fjárframlög til einkarekinna fjölmiðla verði hækkuð um samsvarandi fjárhæð. En eins og áður sagði er staðan á íslenskum fjölmiðlamarkaði mjög erfið og hún er snúin. Þar kemur margt til að mínu mati, m.a. smæð markaðarins, eins og kom fram í máli hæstv. ráðherra hér áðan, og alþjóðlegt umhverfi þar sem erlendir tæknirisar og streymisveitur taka sífellt stærri hlutdeild af auglýsingatekjum til sín. Þessir tveir þættir, því verður ekki á móti mælt, þ.e. smæð markaðarins og þetta alþjóðlega umhverfi sem ég nefndi, magna auðvitað upp áhrif RÚV á markaðnum og því er nauðsynlegt að taka tillit til þess eins og kostur er.
Á sama tíma finnst mér mjög mikilvægt að við reynum að styðja við RÚV eins og við getum þannig að Ríkisútvarpið, sem er fjölmiðill í almannaþágu, geti rækt hlutverk sitt og staðið við skyldur sínar, sem mér finnst ótvíræðar, t.d. gagnvart tungumálinu okkar, menningunni, gagnrýninni umfjöllun með öflugri fréttastofu, innlendri dagskrárgerð o.s.frv. Á sama tíma tel ég mikilvægt að við reynum að styðja við einkarekna fjölmiðlun í landinu því að hún er mikilvæg. Það var reiðarslag, eins og allnokkuð oft hefur komið fram í umræðunni hér í dag, þegar fréttastofa Sýnar hætti sjónvarpsútsendingum í línulegri dagskrá. Þó að fréttastofa RÚV sé gríðarlega mikilvæg fyrir innlenda umfjöllun og fréttir þá er líka mikilvægt, að mínu mati, að hún hafi virka samkeppni. Þess vegna tel ég nú að með þessu frumvarpi hæstv. menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, þótt sitt sýnist hverjum um það og menn hafi mismunandi skoðanir á því, sé reynt að sætta ólík sjónarmið í þeim efnum og ólíka hagsmuni eins og kostur er. Hér er verið að gera tilraun til þess að tryggja að breytingar á tekjuöflun RÚV leiði ekki til þess að meira auglýsingafé renni úr landi en nú þegar er orðið, að breytingarnar skili sér til annarra íslenskra fjölmiðla og styrki þá í sessi eins og hægt er og að RÚV verði áfram auglýsingavettvangur sem bæði auglýsendur og framleiðendur telja mikilvægan. Einnig tel ég, sem mér finnst ekki minnst um vert, að hér sé líka verið að tryggja að RÚV geti áfram sinnt hlutverki sínu sem fjölmiðill í almannaþágu, sem er að mínu mati gríðarlega mikilvægt í núverandi fjölmiðlaumhverfi. Sem dæmi þá er fréttastofa RÚV auðvitað eina fréttastofan í dag sem starfar í sjónvarpi og ég tel ekki að það sé til bóta fyrir íslenskan fjölmiðlamarkað að draga tennurnar úr þeim rekstri eða því hlutverki RÚV. Þess vegna held ég að þetta frumvarp hæstv. ráðherra reyni eins og kostur er að leiða saman þessi ólíku sjónarmið og gera hvort tveggja í senn að styrkja við hlutverk RÚV sem og að reyna að styðja við það að efla innlenda einkarekna fjölmiðlun.