náttúru- og innviðagjald.
Virðulegi forseti. Nei, það liggur náttúrlega í augum uppi að það að hækka skatta og gjöld eykur ekki samkeppnishæfni. Það dregur úr samkeppnishæfni og við erum nú þegar í harðri samkeppni við bæði Norðmenn og Finna að einhverju leyti sem hafa verið að setja meiri peninga í markaðsmál og kynningar vegna efnahagsstöðunnar þar. Við höfum kannski ekki haft þörf á því, efnahagsstaðan á Íslandi er búin að vera frábærlega góð undanfarin ár þangað til þessi ríkisstjórn kom og ætlaði að fara að laga Ísland frá því að vera efst á lífskjaralista Sameinuðu þjóðanna í lok árs 2024.
Þá ætlaði ríkisstjórnin að fara að laga Ísland, ég veit ekki hvernig það er gert, jú, það er hægt að viðhalda stöðunni í fyrsta sætinu en ég er mjög efins um að ríkisstjórnin sé að því, ég er hræddur um að hún sé að fara í aðra átt þannig að ég ætlaði bara að segja að mér finnst þetta vanhugsað hjá ríkisstjórninni. Ég hefði kosið að menn hefðu sest niður með greininni og þetta svæði þar sem áhrifin verða, það verður auðvitað miklu stærra heldur en Bláskógabyggð eða uppsveitir. Það er ófyrirséð af því að þetta er ófyrirséður skattur.