Lagasafn.  Íslensk lög í janúar 2003.  Útgáfa 128a.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að staðfesta fyrir Íslands hönd samning milli Norðurlanda um aðstoð í skattamálum

1990 nr. 46 8. maí



1. gr. Ríkisstjórninni er heimilt að staðfesta fyrir Íslands hönd samning milli Norðurlanda um aðstoð í skattamálum sem undirritaður var í Kaupmannahöfn 7. desember 1989 og prentaður er sem fylgiskjal með lögum þessum. 1)
    1)Sjá Stjtíð. A 1990, bls. 77–84.
2. gr. Þegar samningur sá, er um ræðir í 1. gr., hefur öðlast gildi að því er Ísland varðar skulu ákvæði hans hafa lagagildi hér á landi. …
3. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.