14.12.1978
Efri deild: 27. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1545 í B-deild Alþingistíðinda. (1028)

7. mál, ráðstafanir vegna breytingar á gengi íslenskrar krónu

Alexander Stefánsson:

Herra forseti. Því miður var ég kallaður annað meðan þessi umr. stóð yfir, en vegna þess, sem kom fram hjá hv. síðasta ræðumanni, vil ég láta koma fram, að nú fyrir fáum dögum voru fulltrúar úr sjútvn. Alþ. ásamt þm. Suðurnesja kallaðir á fund hæstv. sjútvrh. þar sem hann var að gera grein fyrir þeim málum sem hér er um rætt, þ.e.a.s. úttekt á stöðu fiskiðnaðarins, sérstaklega á Suðurnesjum, og þeim ráðstöfunum sem nú á að gera í sambandi við gengishagnaðarsjóð. Það, sem vakti athygli mína á þessum fundi, var að mér fannst að þarna væri um sams konar aðgerðir að ræða og höfðu áður farið fram, eftir þeim upplýsingum sem fyrrv. sjútvrh. og sjútvrh. þar áður gáfu á þessum fundi, en tiltölulega stutt er síðan helmingurinn af gengishagnaði, sem varð um 700 millj. kr., var varið til aðila á Suðurnesjum. Okkur virtist nokkrum þarna að ekki væri nógu skýrt afmarkað hvernig þessu fjármagni yrði varið, þannig að það væri hægt að eygja möguleika á því að það kæmi að því gagni sem allir virðast sammála um að þurfi að vera. En það, sem ég vildi koma að, er að það verði að vera alveg ákveðin áætlun um þetta, þannig að úttektin nái yfir alla hluta landsins að því er varðar fiskiðnaðinn. Þó ástandið sé slæmt á Suðurnesjum, að sjálfsögðu er ég ekki að vefengja það, eru víðar í landinu fiskvinnslustöðvar sem gegna jafnvel enn þá þýðingarmeira hlutverki en sumar fiskvinnslustöðvarnar þarna suður frá, og þurfa vissulega á aðstoð að halda. Vil ég undirstrika að ég tel að það verði að leggja á það þunga áherslu að þessar aðgerðir og þessi athugun, sem fram fer, sem ber að fagna, nái yfir alla landshluta.

Hitt vil ég segja, að það kemur mér á óvart ef eftir hraðfrystihúsaáætluninni, þ.e. endurbyggingu og uppbyggingu hraðfrystihúsanna í landinu, hefur ekki verið unnið á Suðurnesjum. Ég hef aldrei heyrt það fyrr en nú, að fiskvinnslustöðvar á Suðurnesjum hafi ekki átt aðgang að þessari áætlun og því fjármagni sem hefur verið veitt. Það hlýtur að vera einhver misskilningur ef svo hefur verið. Alla vega er ég sammála því, ekki má misskilja það, að það sé fyrst lagt til atlögu við það að koma frystihúsunum eða fiskiðnaði á Suðurnesjum í betra ástand. En ég vek athygli á því enn, að það er illa ástatt víðar, m.a. hefur komið fram núna að svo er í Vestmannaeyjum, og sjálfsagt eiga margir landshlutar við þetta sama vandamál að glíma, eins og nefnt hefur verið í þessum umr.