23.10.1978
Efri deild: 7. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 95 í B-deild Alþingistíðinda. (107)
24. mál, félagsheimili
Flm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. um breyt. á l. um félagsheimili. Flm. auk mín er Alexander Stefánsson.
Þetta mál er ákaflega einfalt. Þó 1. gr. laganna sé tekin hér upp í heild, þá er breytingin aðeins sú sem greinir í síðasta málslið: Sjómannastofur skulu eftirleiðis falla undir ákvæði þessara laga, en það þýðir fyrst og fremst, að þær skulu fá greiddan styrk úr félagsheimilasjóði til að standa straum af stofnkostnaði af húsnæði og búnaði.
Þegar meta skal réttmæti þess sem hér er lagt til, þá hygg ég að það sé einkum á tvennt að líta, annars vegar hvort slík ráðstöfun samrýmist efni og anda laganna um félagsheimili og svo hins vegar hvort þörf er á að hvetja til stofnunar og rekstrar sjómannastofa með fyrirgreiðslu af þessu tagi.
Ef við lítum fyrst á gildandi lagaákvæði og þá starfsemi sem fram fer í félagsheimilunum nú, þá segir í 1. gr. laganna, að þau nái til húsa, „sem ungmennafélög, verkalýðsfélög, íþróttafélög, lestrarfélög, bindindisfélög, skátafélög, kvenfélög, búnaðarfélög og hvers konar önnur menningarfélög, er standa almenningi opin án tillits til stjórnmálaskoðana, eiga og nota til fundarhalda eða annarrar félagsstarfsemi“. Sama gildir um samkomuhús sveitarfélaga. Það leynir sér ekki á þessari upptalningu, að lögunum er ætlað að ná til allrar frjálsrar félagsstarfsemi, bæði á vegum ýmissa félaga og svo sveitarfélaga.
Að þessi hefur orðið raunin tel ég að sjáist nokkuð glöggt á því, hversu starfsemi sú, sem fram fer í félagsheimilunum, er orðin fjölþætt. Hún hefur stundum í skýrslum verið flokkuð í fimm flokka. Þá er gjarnan fyrst nefnt félagslegt starf, þ.e. fundir nefnda og stjórna og almennir fundir. Í annan stað er dægrastytting: leiksýningar, söngskemmtanir, hljómlistarflutningur, kvikmyndasýningar, málfundir, spil og töfl, kvöldvökur, diskótek, bingó, dansleikir, saumaklúbbar, bændaklúbbar og aðrir slíkir, barnasamkomur, skemmtanir aldraðra og starfsemi bókasafna.
Í þriðja lagi eru svo nefndar æfingar ýmsar: söng- og leikæfingar, námskeið félaga, íþróttaæfingar annarra en skóla, dansæfingar o.s.frv. Í fjórða lagi eru svo talin skólaafnot sem sums staðar eru nokkuð mikil, svo sem fyrir samkomur eins og skólasetningar og skólaslit, litlujól, árshátíðir, íþróttamót skóla og íþróttaæfingar þeirra. Loks eru í þessari upptalningu eða skilgreiningu talin einkaafnot og þá nefndar erfisdrykkjur, afmælishóf, brúðkaupsveislur og svo manntalsþing og sölusýningar eða markaðir.
Með þessari skilgreiningu hefur verið reynt að meta, hvernig notkun félagsheimilanna skiptist á hina ýmsu starfsþætti, og þá miðað við klukkustundarafnot. Verður sá þátturinn fyrirferðarmestur sem er nefndur dægrastytting og talið að hann taki yfir 40% árlegrar notkunar félagsheimilanna, en þar eru innifaldir dansleikir. Í þeirri skýrslu, sem ég hafði fyrir framan mig þegar ég punktaði niður þessi orð, taka þeir 9% af notkuninni. Auk þessa er svo í allmörgum félagsheimilum eins og hv. dm. er kunnugt, seld gisting á sumrin fyrir flokka eða einstaka ferðamenn. Sums staðar er einnig um formlegt svefnpláss að ræða. Matsala er í allmörgum félagsheimilum landsins. Þessi notkun félagsheimilanna fer í vöxt.
Starfsemi sjómannastofa getur, þar sem það hentar, ágætavel fallið inn í þessa fjölbreytilegu mynd. Sú starfsemi er, ef litið er á nefnda flokkun, sambland af dægrastyttingu: böð, spil, töfl o.s.frv. og einkanotum bréfaskriftir, sími, blöð o.fl., enda eru sjómannastofur sóttar þegar hlé verður á skyldustörfum um borð og skipið liggur í höfn. Þær eru því í raun afdrep fyrir sjómenn í tómstundum þeirra. Að þessu leyti fer ekkert á milli mála. Starfsemi sjómannastofa í tengslum við aðra starfsemi félagsheimila er alls ekki skothent á nokkurn hátt.
Þá er það hin spurningin: Er þörf á að ýta undir rekstur sjómannastofa hér á landi með formbundnum beinum fjárframlögum til stofnkostnaðar? Á allar hafnir sigla vissulega fleiri skip en þau sem heimahöfn eiga á hverjum stað. Allir vita að þegar skip eru í höfn gefast einhverjar lausar stundir frá skylduverkum um borð. Að sjálfsögðu leitar sjómaðurinn þá frá borði. Hann þarf eins og aðrir borgarar á margvíslegri þjónustu að halda. Að nokkru er sú aðstoð til reiðu fyrir aðkomusjómenn rétt eins og staðarfólk en þó ekki að öllu leyti, vegna þess að þarfir gestsins eru um margt sérstæðar einmitt vegna þess að hann er gestur og svo vegna þess að vinnustaður hans, skipið, er að nokkru frábrugðinn vinnustöðum í landi.
Ég tel starfsemi sjómannastofa raunar svo nauðsynlega, að mér sýnist satt að segja hálfbroslegt að vera að rökstyðja það atriði í löngu máli, og ég held að ég láti það hreinlega vera. Mér segja margsigldir menn úr sjómannastétt, að mikil áhersla sé lögð á sjómannastofurnar hvarvetna erlendis, ekki aðeins í stórum hafnarborgum, heldur einnig í fámennari byggðarlögum, og hafa þá vitnað í Færeyjar og Noreg. Mun þá jafnan vera um einhvern áhugasaman og drífandi félagsskap að ræða sem stendur að rekstrinum ellegar þá að hann er kostaður af sveitarfélögunum.
Rekstur sjómannastofa á Íslandi hefur jafnan verið stopull. Við höfum einhvern veginn ekki náð tökum á þessu verkefni, en mér er sagt, og ég þykist raunar hafa fullar heimildir fyrir því, að þar sem slík starfsemi hefur verið um árabil, t.d. í Bolungarvík, sé hún mjög vinsæl og notist ágætavel. En svo eru aftur aðrir staðir, þar sem aðkomuskip og bátar eru kannske miklu fleiri en t.d. í Bolungarvík, þar sem ekkert eða nálega ekkert er gert til að greiða fyrir aðkomusjómönnum á þann hátt sem hér um ræðir.
Um alllangt árabil hefur verið lítils háttar fjárveiting á fjárl. til styrktar sjómannastofum. Hefur hún verið notuð til þess jöfnum höndum að styðja að stofnun sjómannastofa og til þess að greiða fyrir rekstri þeirra. Hér er þó um næsta óverulegan stuðning að ræða miðað við verkefnin. En kannske er hann ekki óeðlilega lítill miðað við það sem gert er í reynd. Flm. þessa frv. telja eðlilegt og raunar sjálfsagt að haldið verði áfram að veita — og þá í vaxandi mæli ef tilefni gefst — rekstrarstyrki á fjárl. sérstaklega til þessa verkefnis og þá ekki síður eftir að frv. þetta er orðið að lögum.
Fyrir nokkrum árum flutti ég till. til þál. ásamt tveimur öðrum alþm. um að skora á sjútvrh. að undirbúa löggjöf um sjómannastofur. Það var liðið á þinghaldið þegar þessi till. kom fram og hún var ekki afgreidd, en við flm. rituðum þá sjútvrh. og báðum hann um að ganga í málið eigi að síður, sem hann og gerði. Hann skipaði nefnd og hún samdi drög að lagafrv., en það frv. var aldrei flutt. E.t.v. er líka ástæðulaust, þegar nánar er að gáð, að setja sérstaka löggjöf um þetta efni, ef að því ráði yrði horfið að tengja stuðning til stofnkostnaðar lögum um félagsheimili, eins og hér er lagt til, og því síðan fylgt eftir með einhverjum verulegum rekstrarstyrkjum beint úr ríkissjóði. Ég hygg nefnilega að hér á landi sem annars staðar sé sá háttur alveg eðlilegur, að rekstur sjómannastofanna sé í höndum fyrirtækja, félaga eða sveitarfélaga, en fari ekki fram á vegum ríkisins. Hitt leiðir svo af sjálfu sér, að þegar tekið er að veita ákveðna stofnstyrki og svo verulegan rekstrarstyrk, þá hljóta opinberir aðilar að líta eftir því, hvernig fjármagnið er notað, og setja sín skilyrði um frágang og búnað á þessum mannvirkjum og svo um reksturinn, kannske á svipaðan hátt og nú er gert varðandi þá starfsemi sem fellur undir lögin um félagsheimili.
Í ákvæði frv. segir svo um sjómannastofurnar: „Sama gildir um sjómannastofur, sem sömu aðilar eiga og reka, sjálfstætt eða í tengslum við aðra starfsemi“. — Það þykir rétt að hafa þetta svona opið. Aðstæður eru eða geta verið mjög margvíslegar. Sums staðar kæmi kannske til greina að tengja rekstur sjómannastofu við hótel- eða veitingarekstur, kannske við starfsemi vel búinna verbúða o.s.frv. Það yrði þá væntanlega að setja nánari reglur um framkvæmd laganna undir þeim kringumstæðum, ef til kæmi. En ég held þó raunar að yfirleitt geti gilt sömu eða svipaðar reglur og nú er stuðst við um framkvæmd laga um félagsheimili.
Framkvæmd þessara laga heyrir undir menntmrn. Ég legg því til, herra forseti, að frv. verði að lokinni 1. umr. vísað til menntmn.