14.12.1978
Neðri deild: 32. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1565 í B-deild Alþingistíðinda. (1076)
37. mál, meðferð opinberra mála
Svava Jakobsdóttir:
Herra forseti. Ég þarf ekki að lengja umr. um þetta mál úr hófi fram.
Ég kvaddi mér hljóðs til þess að lýsa eindregnum stuðningi mínum við þetta frv. Ég held að hér sé gott og þarft mál á ferðinni. Það er alveg hárrétt, sem kom fram hjá hv. 1. flm., að löggjöf okkar má bæta í þá átt að gæta betur réttarstöðu sakbornings. Ég minni á það, vegna þess að hv. frsm. nefndi lagasetninguna um Rannsóknarlögreglu ríkisins, að í sambandi við það frv. og breytingar, sem óhjákvæmilega fylgdu þar í kjölfarið, flutti ég brtt. um það, að skylt væri að skipa sökunaut réttargæslumann við rannsókn máls hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins, taldi sem sagt þær heimildir, sem frv. gerði ráð fyrir, ekki nægilegar. Því miður náði brtt. mín ekki fram að ganga. En nú hefur hv. 1. flm. þessa frv. tekið það mál upp og mér er það vissulega ánægjuefni.
Ég held að öll þau atriði, sem hann tekur fyrir í frv. sínu, séu til bóta og mun fyrir mitt leyti sem nm. í allshn. stuðla að framgangi þessa máls.