15.12.1978
Efri deild: 30. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1584 í B-deild Alþingistíðinda. (1096)
108. mál, aukin gæði fiskafla
Flm. (Ágúst Einarsson):
Herra forseti. Ég vil einungis þakka þeim hv. þm. sem tekið hafa til máls um þetta atriði. Það væri hægt að ræða það lengur, en tíminn er orðinn naumur. Ég vil einungis taka heils hugar undir þær ábendingar og till. er komu fram í máli þeirra hv. þm., er töluðu, og vænti þess, að við eigum eftir að ræða þetta mál nánar, þar sem við sitjum allir í þeirri n. sem þetta mál fer til. Ég vil þakka þeim góðar umr.