15.12.1978
Efri deild: 31. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1588 í B-deild Alþingistíðinda. (1114)
128. mál, landmælingar
Menntmrh. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Ég flyt hér frv. til l. um landmælingar. Landmælingar Íslands hafa nú starfað í rúma tvo áratugi, en þessi stofnun varð ekki til sem sjálfstæð stofnun fyrr en 1956, eða einum og hálfum áratug eftir fullnaðarskilnað við Dani. Fram til þess tíma höfðu Danir séð um allar kortlagningar af landinu, en þær hófust upp úr aldamótunum 1800. Aðalmælingastörfum Dana og kortagerð mun hafa verið lokið árið 1939. Eftir stríð var haldið áfram við kortagerðina á vegum Geodætisk Institut í Kaupmannahöfn, en Íslendingar kostuðu aðeins hluta af því starfi, þ.e. endurskoðun kortanna. Landmælingar Íslands fengu samkv. sérstökum samningi öll gögn varðandi mælingar á Íslandi frá hinni dönsku stofnun og einkarétt á notkun þeirra. Nú starfa hjá Landmælingum Íslands um 20 manns og er mestur hluti starfsliðsins sérhæft fólk á sviði mælinga, loftmyndatöku og kortagerðar.
Landmælingar Íslands hafa stöðugt haldið áfram því verki sem Danir unnu að, haldið áfram grundvallarmælingum á landinu, unnið að endurskoðun korta og kortaútgáfu, loftmyndatöku af landinu vegna mælinga og kortagerðar og eru eini aðilinn sem hefur á hendi slíka myndatöku. Einnig hafa Landmælingar Íslands veitt aðstoð og tæknilega þjónustu við gerð gróður- og jarðakorta sem unnið er að af Rannsóknastofnun landbúnaðarins.
Með bréfi, dags. 16. okt. 1975, skipaði samgrn. 5 manna nefnd til að semja frv. til l. um landmælingastjórn. Skyldi með frv. stefnt að því, að undir landmælingastjórn heyrði stjórnun þríhyrningamælinga á Íslandi og hæðamerkjakerfisins, kortamælingar og kortaútgáfa ríkisstofnana, lóða-, landa- og jarðamarkamælingar. Með skipunarbréfi nefndarinnar fylgdi ályktun Alþingis sem gerð var 7. maí 1975 um landmælingastjórn.
Það frv., sem hér liggur fyrir, er flutt óbreytt frá till. nefndarinnar. Þessi nefnd vann raunar að gerð þriggja frv. um þessi mál, frv. til l. um landmælingar, sem hér liggur fyrir, frv. til l. um mælingu lóða og landa í lögsagnarumdæmum kaupstaða og á skipulögðum svæðum utan kaupstaða, en það er mál sem einnig hefur verið lagt fyrir hv. d. og er næsta mál á dagskrá, og svo einnig frv. til l. um breyt. á landskiptalögum, nr. 46/1941, en það hefur einnig verið lagt fyrir d. og verður tekið til meðferðar hér á eftir.
N. sú, sem rn. skipaði, kynnti sér fyrirkomulag landmælinga á Íslandi með því að ræða við þá sem gerst þekkja þessi mál hér á landi og bárust tvær skriflegar grg. frá forstjóra Landmætinga Íslands, Ágúst Böðvarssyni. Þá skrifaði nefndin bréf til stofnana og aðila sem upp eru taldir í grg., bað um álit þeirra á viðfangsefninu og sendi þeim spurningalista varðandi þörf stofnunarinnar fyrir landmælingar, kortagerð og annað það er varðar viðfangsefni nefndarinnar. Ávöxturinn af þessum samræðum er það frv. sem hér liggur fyrir.
Ég vil leyfa mér, herra forseti, að leggja til að að lokinni þessari umr. verði frv. þessu vísað til hv. samgn.