15.12.1978
Efri deild: 31. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1589 í B-deild Alþingistíðinda. (1116)

129. mál, landskiptalög

Menntmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Ég flyt hér frv. til l. um breyt. á landskiptalögum, nr. 46/1941.

Ef marka má efni þessa frv. liggur beinast við að telja að frv. þetta heyri undir landbrh., og efni þess er ótvírætt nátengt landbúnaðarmálum. En ástæða þess, að frv. þetta er flutt af samgrh., er sú, að hér er um að ræða fylgifrv. með því frv. sem áðan var til umr. um landmælingastjórn.

Þær breytingar á landskiptalögum, sem felast í frv., eru gerðar til samræmis við frv. til l. um landmælingar, og er gert ráð fyrir því, að við landskipti sé ekki öðrum falið að gera uppdrætti en þeim sem til þess hafa fengið löggildingu, sbr. 2. málsgr. 11. gr. frv. til landmælingalaga. Enn fremur er í þessu frv. gert ráð fyrir skilum til Landmælinga Íslands á uppdráttum og landamerkjaskrám, en að um frekari meðferð gagnanna fari síðan eftir 18. gr. nefnds frv.

Ég vil leyfa mér, herra forseti, að leggja til að þessu frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. samgn.