24.10.1978
Sameinað þing: 7. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 104 í B-deild Alþingistíðinda. (113)
17. mál, lögfræðiþjónusta fyrir efnalítið fólk
Dómsmrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Vegna fsp. hv. 10. þm. Reykv. á þskj. 17, 1. tölul., um lögfræðiþjónustu fyrir efnalítið fólk, vil ég segja eftirfarandi:
Í fsp. er spurst fyrir um það, hvað gert hafi verið til að framfylgja þáltill. frá 1975 um þetta efni.
Skömmu eftir að þessi ríkisstj. settist að stjórntaumum setti ég í gang athugun á þessu máli í samræmi við samþykkt samstarfsyfirlýsingar ríkisstj. Ég fékk þá upplýst að upplýsingum hefur verið safnað á undanförnum árum, og m.a. liggur fyrir að endurskoðun var í gangi á fyrirkomulagi í þessum efnum bæði í Danmörku og Svíþjóð, enda þótt nýleg löggjöf sé á þessu sviði í Svíþjóð. Liggur nú fyrir ítarleg sænsk greinargerð um endurskoðun á þessum lagareglum þar í landi. Í Danmörku hafa nú á þessu ári verið endurnýjaðar reglur um fyrirkomulag á lögfræðilegri aðstoð til þess að gera þær handhægar í framkvæmd. Gögn liggja enn fremur fyrir frá Evrópuráði þar sem unnið hefur verið að þessum málum í sérfræðinganefnd. Liggja þar fyrir gögn frá þessu ári.
Lengra var vinnu ekki komið, en mér sýndist að fengnum þessum upplýsingum og með tilliti til samkomulags stjórnarflokkanna og með tilvísun til þáltill., sem hér hefur verið vísað til, sjálfsagt að hraða nú meðferð þessa máls, og því hef ég skipað samstarfshóp til að huga að lagareglum um ókeypis lögfræðiþjónustu fyrir efnalítið fólk. Ég hef lagt fyrir þann hóp að eftirtalin atriði verði tekin til athugunar:
1) Heildarfyrirkomulag slíkrar þjónustu.
2) Skilyrði fyrir því, að fólk fái slíka þjónustu, m.a. hvort miða eigi þann rétt við efnahag eingöngu, hvort einskorða eigi þjónustuna við ákveðna málaflokka, eða tiltekin lögfræðistörf o.fl.
3) Enn fremur verði athuguð ýmis framkvæmdaratriði, þ. á m. greiðslur fyrir þjónustuna og fyrirkomulag á þeim.
4) Áætla þarf kostnað við hið nýja fyrirkomulag. Þessi upptalning er að sjálfsögðu ekki tæmandi. M.a. þarf að hafa í huga hvernig þjónustan nýtist með sem hagkvæmustum hætti um landið allt. Ég hef óskað eftir því, að starfshópurinn skili áliti ekki síðar en 1. mars 1979.
Ég vona að þau gögn, sem aflað hefur verið erlendis frá, ásamt eldri gögnum um þetta efni, muni auðvelda og flýta fyrir vinnu þessa starfshóps, en málið er, eins og glöggt kemur fram af þeim gögnum, sem aflað hefur verið, töluvert flókið og margþætt. Jafnframt verður lögð áhersla á, eins og á var bent af allshn. er hún hafði málið til meðferðar, að samráð verði haft við Lögmannafélag Íslands og einnig lagadeild Háskólans og enn fremur fulltrúa Íslands í þeirri sérfræðinganefnd Evrópuráðsins, sem ég gat um áðan. Er það einlæg von mín, að þetta mál sé nú komið á góðan rekspöl.