15.12.1978
Efri deild: 31. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1598 í B-deild Alþingistíðinda. (1144)
131. mál, flugvallagjald
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Aðeins örfá orð, enda væri ekki verðugt að fara að hella sér yfir hv. þm. Eyjólf Konráð Jónsson þegar hann hefur talað sig dauðan í málinu og mun ég ekki gera það. Við erum hér að ræða um flugvallagjaldið, og ég lái honum að vísu ekki þótt hann víki máli sínu yfir að öflun happdrættisfjár til vegagerðar, sem hann beitti sér fyrir á sínum tíma af miklum dugnaði. Ég hlýt þó eigi að síður að vek ja athygli á því, að eins og það mál var upprunalega afgreitt, þá var til þess ætlast að hér kæmi til aukasjóður til þess að flýta fyrir því, að við fengjum gott vegasamband kringum landið, austur um og norður um, milli Reykjavíkur og Akureyrar. En síðan var mynduð ríkisstj, sem hélt þannig á vegamálunum að þennan sjóð varð að taka til almennrar vegagerðar og vegaviðhalds og hann hvarf. (Menntmrh: Hann týndist í Borgarfirði.) Hann týndist m.a. uppi í Borgarfirði. (Gripið fram í.) Vonlítill er ég um það, ef við skyldum öðru sinni gera sams konar ráðstafanir til fjáröflunar til vegagerðar með happdrættislánum og fengjum síðan álíka stjórn til þess að ráðskast með það fé, að það fé mundi leiða til frekari vegaframkvæmda hér á landi.
Nú vil ég víkja að því máli, sem hér er til umr. fyrst og fremst, sem er flugvallagjaldið.
Fyrir tveimur dögum var tilkynnt að 18 af flugvöllum landsins hefði verið lokað vegna þess að þeir uppfylltu ekki lágmarkskröfur um öryggi. Á hverju einasta þingi í 30 ár hafa verið lögð fram skjöl frá flugmálastjóra upp á það, að lífi og limum íslenskra flugfarþega væri stofnað í óafsakanlega hættu vegna þess að ekki væri séð fyrir fjármunum til þess að koma upp nauðsynlegum öryggistækjum á flugvöllunum okkar. Og með tilliti til þess að Sjálfstfl. mun nú hafa allar götur frá stríðslokum, að embætti flugmálastjóra var stofnað, verið við stjórn — að einum tæpum 6 árum undanskildum, minnir mig — þá mætti til sanns vegar færa að tími sé kominn til þess, eins og það er kallað á nútíma stofnanaíslensku að „eyrnamarka“ sérstaka fjáröflun beint til flugvallanna.
Herra forseti. Ég ætla ekki að ræða þetta frekar, en fannst ég ekki geta vikið mér undan því að minna aðeins á þetta atriði sem lýtur að ástandi öryggismála á flugvöllum.