15.12.1978
Neðri deild: 34. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1599 í B-deild Alþingistíðinda. (1150)

Umræður utan dagskrár

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Ég kveð mér hljóðs utan dagskrár í þeim tilgangi að spyrja hæstv. forsrh. hverjar fyrirætlanir ríkisstj. séu varðandi afgreiðslu þeirra mála, sem ríkisstj. hefur flutt hér á Alþ., og varðandi fyrirkomulag á störfum Alþ. fram til hátíða, en nú er aðeins ein vika til Þorláksmessu.

Það er ekki að ófyrirsynju að þessi fsp. er fram borin. Fréttir hafa borist um að flokksstjórn eins stuðningsflokks ríkisstj., Alþfl., hafi gert samþykkt á fundi sínum í gærkvöld, þar sem skilyrtur er stuðningur Alþfl.-manna við afgreiðslu fjárlagafrv. ríkisstj. Það hefur enn fremur borist mönnum til eyrna eftir hádegisfréttir Ríkisútvarpsins nú í dag, að að afloknum ríkisstjórnarfundi mundu tekjuöflunarfrv. þau, sem ríkisstj. hafði í smíðum, verða lögð fram á hv. Alþ. Ráðgert mun hafa verið að 2. umr. um fjárlagafrv. færi fram á morgun, en þótt þangað til séu ekki nema 23 klukkutímar, þá hefur a.m.k. stjórnarandstöðunni ekki.borist nein vitneskja um innihald þeirra fjáröflunarfrv. sem verið hafa í smíðum. Og ekki hefur fremur borist vitneskja um innihald lánsfjáráætlunar, sem góðu heilli hefur undanfarin ár fylgt afgreiðslu fjárlagafrv., en í fyrra tókst einmitt að láta lánsfjáráætlunina fylgja 2. umr. fjárlagafrv. Ekkert hefur borist þm. varðandi efni og innihald þeirrar áætlunar frekar en stjórnarandstöðunni hefur borist vitneskja um fjáröflunarfrv.

Ég hygg því, herra forseti, að það sé ekki að ófyrirsynju og teljist ekki til tafa á þingstörfum að þessi fsp. er fram komin sem ég hér hef flutt og vonast til að hæstv. forsrh. svari.