24.10.1978
Sameinað þing: 7. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 106 í B-deild Alþingistíðinda. (116)
320. mál, ráðstafanir vegna riðuveiki í sauðfé
Fyrirspyrjandi (Helgi F. Seljan):
Herra forseti. Á þskj. 17 hef ég leyft mér að bera fram svo hljóðandi fsp. til hæstv. landbrh.:
„Hvaða ráðstafanir eru helstar á döfinni hjá rn. og Sauðfjárveikivörnum ríkisins til að hefta frekari útbreiðslu riðuveiki í sauðfé? Spurt er sérstaklega um Austurland í þessu efni.“
Mig grunaði það reyndar ekki, þegar ég lagði þessa fsp. inn á skrifstofu Alþingis einhvern fyrsta þingdaginn, að það mál, sem hér er um spurt yrði svo ótrúlega mikið í sviðsljósinu og raun ber vitni um, alveg sér í lagi í fjölmiðlum þar sem þessi veiki virðist hafa breiðst miklu hraðar út jafnvel heldur en hjá bændum, og er þó nóg um þar. En í sumar síðla og haust hafa ályktanir og samþykktir borist okkur á Austurlandi, og dýralæknirinn á Egilsstöðum, formaður Dýralæknafélags Íslands, hafði samband við mig fyrsta dag þingsins einnig og áréttaði það, sem í þessum samþykktum hafði fram komið, og óskaði þess að athygli yrði vakin á málinu hér á Alþingi.
Þær samþykktir, sem urðu hvati þessarar frsp., eru frá almennum sveitarfundi í Hjaltastaðaþingá, sem er næsta sveit við Borgarfjörð eystri, þar sem riðuveiki er nú hvað útbreiddust þar eystra. Þar voru samþykktar strangar varúðarreglur sem til fyrirmyndar mega teljast og vonandi að þeim takist þar með að hindra að veikin berist til þeirra, en hér er um sveit að ræða með tiltölulega mikla sauðfjárrækt.
Önnur samþykkt er svo frá bændum í Reyðarfirði sem leggja til niðurskurð á þeim tveimur bæjum við sunnanverðan Reyðarfjörð þar sem veikin er þó enn einangruð.
Sú þriðja, sem ég leyfi mér hér með að vitna orðrétt í, með leyfi hæstv. forseta, er frá Búnaðarsambandi Austurlands, gerð á aðalfundi þess og er svo hljóðandi:
1) Fundurinn skorar á Sauðfjársjúkdómanefnd að hefja nú þegar aðgerðir til þess að hefta útbreiðslu riðuveiki í sauðfé á Austurlandi. Útbreiðsla veikinnar og tjón af völdum hennar á sambandssvæðinu er orðið það alvarlegt mál, að til skammar er að sauðfjárveikivarnir skuli ekkert aðhafast í þessu máli.
2) Fundurinn skorar á forsvarsmenn tilraunastöðvarinnar á Keldum, að rannsóknir á riðuveiki verði stórauknar.
3) Fundurinn skorar á alþm. Austfirðinga að hlutast til um að veitt verði ríflegt fé á fjárlögum til rannsókna á riðuveiki svo og til varnaraðgerða.
4) Enn fremur skorar fundurinn á landbrh., að hann hlutist til um endurskoðun á reglugerð um varnaraðgerðir gegn riðuveiki þar sem núverandi reglugerð er allsendis ófullnægjandi.
Sumt af þessu er kannske ofsagt miðað við daginn í dag. Ég hygg að á sínum tíma hafi þessi samþykkt hins vegar átt fyllsta rétt á sér. En þessi samþykkt mun hafa verið gerð í júní í sumar og jafnvel ásamt öðrum skipulögðum aðgerðum Austfirðinga orðið til að koma hreyfingu á málið ásamt svo röskum tökum núv. hæstv. landbrh. á því máli.
Eins og fram hefur komið varðandi Austurland eru þrjár sveitir þar verst settar og erfitt að sjá skjót úrræði þar til hjálpar: Borgarfjörður eystri, Norðfjarðarsveit og Breiðdalur. Og svo eru hin einstöku tilfelli á Brú á Jökuldal, Berunesi og Þernunesi við Reyðarfjörð.
Samkvæmt upplýsingum Jóns Péturssonar héraðsdýralæknis er algengt, þegar veikin er komin í hámark, eða þannig hefur reynslan verið á þeim bæjum eystra þar sem veikinnar hefur gætt mest, að þá geti stofninn minnkað eða drepist úr honum árlega milli 20 og 30%, og sjá þá allir hver vá er fyrir dyrum hjá hverjum einstökum bónda sem fyrir því verður.
Til viðbótar við hina skriflegu fsp. og svar við henni vildi ég biðja hæstv. ráðh., miðað við það sem reyndar hefur þegar verið upplýst að nokkru í fjölmiðlum, að upplýsa hvaða bætur væru fyrirhugaðar í kjölfar hugsanlegs niðurskurðar og raunar einnig til þeirra sem árlega verða fyrir stórtjóni, en ekki þykir tækt að grípa til niðurskurðar hjá.