15.12.1978
Neðri deild: 34. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1606 í B-deild Alþingistíðinda. (1160)
8. mál, niðurfærsla vöruverðs
Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti. Frv. það, sem ég mæli fyrir nú, er flutt til staðfestingar á brbl. um niðurfærslu vöruverðs og verðbótavísitölu í sept. 1978, sem út voru gefin 1. sept. s.l. Þessi brbl. voru gefin út á fyrsta starfsdegi ríkisstj. í þeim tilgangi að gefa ríkisstj. svigrúm til þess að undirbúa ráðstafanir um kjaramál og önnur efnahagsmál. Í lögunum er kveðið á um tilhögun verðbótagreiðslna í septembermánuði bæði fyrir og eftir gildistöku þeirra laga um kjaramál, sem þá voru í undirbúningi og sett voru 8. sept. s.l., en í þeim lögum var endanlega ákveðið um tilhögun verðbóta í septembermánuði.
Um tilefni þessara brbl. er óþarft að fara mörgum orðum. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að á þessum tíma ríkti mikil óvissa um tilhögun verðbótagreiðslna á laun og því var nauðsynlegt að ákveða skipan þessara mála með lögum. Í aðfararorðum brbl. segir m.a., að ákveðnar hafi verið ráðstafanir til niðurfærslu vöruverðs sem komi til framkvæmda einhvern næstu daga til þess að hamla gegn verðhækkunum. Eðlilegt og sanngjarnt þyki að tillit verði tekið til þessa við greiðslu verðbóta á laun frá sama tíma og því beri brýna nauðsyn til að ákveða þessa skipan mála með lögum. Þetta er kjarni málsins.
Lagasetning af þessu tagi er ekki nýmæli. Á síðustu árum hefur nokkrum sinnum verið ákveðið með lögum að meta niðurgreiðsluaukningu til lækkunar á verðbótavísitölu, þó að niðurgreiðsluaukningin verði ekki fyrr en í þann mund að laun eiga að taka verðbótum. Þetta er í alla staði eðlilegt, því að niðurgreiðslurnar koma í stað launa.
Þetta frv. hefur verið afgreitt, eins og það frv. sem ég mælti fyrir nú áðan, í hv. Ed. Ég leyfi mér að leggja til, herra forseti, að frv. verði að lokinni 1. umr. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.