16.12.1978
Sameinað þing: 36. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1631 í B-deild Alþingistíðinda. (1179)
54. mál, fjárlög 1979
Frsm. meiri hl. (Geir Gunnarsson):
Herra forseti. Það er jafnan svo, að þegar stjórnarskipti fylgja í kjölfar alþingiskosninga reynist aðstaða fjvn. til starfa að öðru jöfnu erfiðari en við venjulegan aðdraganda fjárlagafrv. Þegar svo háttar sem nú hefur fyrrv. stjórn unnið að undirbúningi fjárlagafrv., en sú, sem við tekur, breytt því í einstökum atriðum í átt við stefnu sína, en ætlunin að frekari breytingar vinnist á starfstíma nefndarinnar.
Fjárlagafrv. var vegna stjórnarskiptanna ekki lagt fram fyrr en um mánaðamótin okt.–nóv. Til þess að vinna tíma hóf n. þó störf strax og hún hafði verið kosin og hefur haldið 39 fundi auk þess sem undirnefndir, sem vinna að einstökum málaflokkum, hafa haldið fjölmarga fundi. Til n. hafa borist erindi í hundraðatali og mjög margir aðilar hafa komið til viðtals við n. eða undirnefndir.
Enda þótt sú sé niðurstaðan eins og jafnan, að fulltrúar stjórnarflokkanna og stjórnarandstaðan skili sitt hvoru nál., hefur samstarfið í n. verið með ágætum. Ég færi meðnm. þakklæti mitt fyrir samstarfið. Á ég þá ekki síður við fulltrúa stjórnarandstöðunnar, sem hafa unnið störf sín af alúð og af drengskap sem ég met og virði að verðleikum. Þá flyt ég hagsýslustjóra og öðru starfsliði fjárlaga- og hagsýslustofnunar þakkir fyrir ágæt störf og þá ekki síst starfsmanni n., Magnúsi Ólafssyni, fyrir mjög gott framlag. Ég tel að sú reynsla, sem fengist hefur af störfum hans, sýni að það var rétt ráðið þegar sú stefna var tekin upp, að fjvn. fengi fastan starfsmann sem væri starfsmaður fjárlaga- og hagsýslustofnunar utan starfstíma fjvn. Með þessari tilhögun hafa náðst beinni tengsl milli þessara aðila og meiri þjálfun og festa í störfum starfsmanns n. en við var að búast þegar einungis var um að ræða starf í þágu fjvn. í sambandi við fjárlagaafgreiðslu og því æðioft skipti á mönnum.
Mikill tími hefur farið í það hjá fjvn. að ræða við forstöðumenn ríkisstofnana og sveitarfélaga og ýmsa aðra aðila um beiðnir þeirra um fjárveitingar. Óskum um slík viðtöl virðist fjölga með ári hverju og ávallt er sú hætta fyrir hendi, að of lítill tími verði til þess að sinna öðrum nauðsynlegum störfum: athugunum, mati og afgreiðslum, og oft hefur svo farið að tími til þeirra verka hefur orðið æðilítill. N. tók því upp þann hátt að þessu sinni að auglýsa að beiðnir um viðtöl þyrftu að vera komnar fram fyrir 15. nóv., ella væri óvíst að unnt yrði að sinna þeim. Ég held að þessi ákvörðun hafi verið til bóta, og viðtölum lauk fyrr en oft áður. Flestir, sem til þekkja, munu þeirrar skoðunar, að þessi viðtöl séu nauðsynleg til að tryggja tengsl nefndarmanna við þá, sem fjárveitingarnar varða mestu, og til að tryggja að n. einangrist ekki frá þeim mönnum víðs vegar um landið sem í umboði samborgara sinna reyna að koma fram þeim hagsmunamálum sem brýnust eru í hverju byggðarlagi. Jafnnauðsynlegt er á hinn bóginn að tryggja að þessi viðtöl gangi ekki út yfir þann tíma sem n. verður að hafa til að vinna sín verk að öðru leyti. Því er það skoðun mín, að að því beri að stefna að fjvn. hefji viðtöl áður en þing er sett og hafi a.m.k. lokið öllum viðtölum við sveitarstjórnarmenn þegar þing hefst. Sveitarstjórnarmenn vinna hvort sem er ekkert við það að bíða fjárlagafrv., því að fjárhæðir til einstakra framkvæmda sveitarfélaga eru ekki sérgreindar í fjárlagafrv., heldur eru fjárlagaliðir til hvers einstaks framkvæmdaþáttar birtir í einni tölu í frv. Við það að hafa lokið þessum viðtölum við sveitarstjórnarmenn og fleiri aðila þegar þing hefst ynnist dýrmætur tími til afgreiðslu frv. Það gerir fjvn. einnig mjög erfitt fyrir störfum, hve mörg erindi berast seint, allt fram að lokaafgreiðslu, venjulegast algerlega að óþörfu, þótt einstöku sinnum geti gildar orsakir legið að baki. Naumast verður talið að þær þarfir hafi brunnið lengi á mönnum sem fyrst er komið á framfæri í lok nóvember eða jafnvel í desember.
Flestar stofnanir, sem úthluta fjármagni, húsnæðismálastjórn og aðrir lánasjóðir, hafa ákveðinn umsóknarfrest sem er virtur og látinn gilda. Sama regla þarf að komast á varðandi erindi til fjvn. Öruggasta ráðið til þess að koma þeirri reglu á, að erindi berist ekki svo seint sem nú á sér stað, er að sjálfsögðu að sinna þeim erindum alls ekki sem berast eftir tiltekinn tíma nema alveg sérstaklega standi á.
Ég er þeirrar skoðunar, að starfsaðstaða n. yrði öll önnur en nú, ef viðtölum við sveitarstjórnarmenn yrði að verulegu leyti lokið þegar fjárlagafrv. kemur fram og viðtölum við aðra svo til að öllu leyti lokið fyrir mánaðamótin okt.-nóv. og tryggt yrði um leið að erindum héldi ekki áfram að rigna yfir n. þegar hún þarf að nota tímann til allt annarra verka en að kynna sér ný erindi. Auðvitað verður ekki síður að ætlast til þess, að sú ríkisstj., sem hverju sinni situr að völdum, marki í tíma stefnu sína varðandi afgreiðslu fjárlagafrv. og taki þær stjórnmálalegu ákvarðanir, sem afgreiðsla fjárl. á að byggjast á, svo tímanlega, að niðurstöður liggi fyrir áður en 2. umr. fer fram, og svo snemma, að 2. umr. geti farið fram fyrr en á sér stað að þessu sinni og verið hefur hin síðustu ár. Því aðeins að slíkar ákvarðanir liggi fyrir nægilega snemma fyrir 2. umr. til þess að fjárlagafrv. sé við þá umr. í meginatriðum í þeirri mynd sem á að afgreiða það getur nál. haft það gildi sem því er ætlað.
Það eru að vísu nokkuð sérstæðar aðstæður fyrir hendi nú þegar stjórnarskipti hafa nýlega orðið og staðan í efnahagsmálum, ekki síst í ríkisfjármálum, á allan hátt hin erfiðasta við stjórnarskiptin. Þrátt fyrir þessar aðstæður hafði ég vonast til þess, að ákvarðanir og tillögur stjórnarflokkanna varðandi tekjuhlið frv. gætu legið fyrir í tíma áður en 2. umr. færi fram, svo að unnt væri að afgreiða tekjuhlið frv. Ég lýsi óánægju minni yfir því, að hæstv. ríkisstj. og stjórnarflokkunum skyldi ekki vinnast tími til þess að ljúka sínum ákvörðunum fyrr en raun hefur orðið á. Það er að vísu svo, að frv., sem ætlað er að verða grundvöllur að tekjuhlið frv., hafa verið lögð fyrir Alþ. degi áður en 2. umr. fer fram, og það er að vísu meira en sagt verður um fjárlagaafgreiðslu oft og tíðum á undanförnum árum. En að því ber að stefna — og gildir einu hvaða flokkar eru í ríkisstj. — að á annan veg verði unnt að standa að afgreiðslu fjárl., og mér er fullkomlega ljóst að fulltrúar minni hl., sem hafa lagt sig fram um að störf gætu gengið sem greiðast í fjvn., hafa gilda ástæðu til að átelja þessa niðurstöðu og ég ætla ekki á neinn hátt að réttlæta hana með því, að þetta hafi lengst af svona verið. Þetta er ekki viðunandi, hver sem í hlut á.
Eins og ég vék að áðan, taka viðtöl of mikinn hluta af tíma fjvn. eftir að fjárlagafrv. er lagt fram og á því þarf að verða breyting. Það fer því svo, að tími fjvn. er of naumur til að meta till. í fjárlagafrv. varðandi einstakar stofnanir ríkisins í þeim tilgangi að kanna hvort ekki væri unnt að skera niður rekstrarútgjöld eins og hugur allra nm. stendur til. Ef einungis á að koma til tíminn frá þingsetningu til afgreiðslu fjárl. og verulegur hluti hans að fara í viðtöl við ýmsa aðra en forstöðumenn þessara stofnana og sífellt á að sinna nýjum erindum allt til þess að frv. er endanlega afgreitt, þá gefst ekki ráðrúm til að sinna þessu hlutverki sem skyldi, það hefur reynslan ávallt sýnt. Raunhæfur árangur næst ekki að mínum dómi með því að ákveða lækkun til tiltekinna fjárveitinga án nauðsynlegrar undirbyggingar. Það er ekki vænlegast í þessu efni frekar en öðrum að byrja á niðurstöðunni. Eðlilegri aðferð er að kryfja málin fyrst, en til þess þarf tíma og þann tíma þarf að verulegu leyti að fá utan annarra venjulegra og óhjákvæmilegra starfa við afgreiðslu fjárl. Það er því nauðsynlegt að fjvn. eða undirnefnd fjvn. starfi meir en verið hefur milli þinga að slíkum hagræðingarmálum og eftirliti með ráðstöfun fjárveitinga og e.t.v. skipti með sér verkefnum og njóti fulltingis sérfræðinga þegar á þarf að halda í þessum störfum. Á þetta verkefni þarf að leggja ríka áherslu og taka til gagngerðar skoðunar ýmsa þætti ríkisrekstrarins. Ég nefni heilbrigðismál, skólamál, löggæslu, landhelgisgæslu og annan skiparekstur ríkisins, Póst og síma, Rafmagnsveitur ríkisins, Orkustofnun, Framleiðslueftirlit sjávarafurða og rannsóknastofnanir ýmsar. Um þetta hefur verið rætt í fjvn. nú við afgreiðslu fjárl. og áhugi allra nm. er án efa jafnmikill á því, að af átaki í þessu efni geti orðið. Ég tel að það verði ekki lengur við það unað, að fjárveitingar til þessara stofnana og annarra hækki einfaldlega með hverju nýju fjárlagafrv. í samræmi við verðlagsbreytingar, þegar þá er ekki jafnvel til viðbótar um útþenslu að ræða, heldur verði að grandskoða útgjaldaþörfina frá grunni, en til þess þarf tíma og mannafla, og að því leyti sem fjvn. væri ætlað að vinna að þessu verki og að eftirliti með notkun fjárveitinga þarf n. að vinna slík störf að verulegu leyti utan þingtímans eða a.m.k. sérstaklega utan þess tíma þegar afgreiðsla fjárlagafrv. stendur yfir. En nokkur einstök atriði eru þó í athugun nú fyrir 3. umr.
Þá verður einnig að koma til meiri festa um framgang ákvarðana fjvn. og tryggja að í einhverju sé eftir því farið sem hún ákveður. S.l. vor fól fyrrv. fjmrh. fjvn. að taka til skoðunar og gera till. um hvað gert skyldi með óheimilaðar stöður hjá ríkisstofnunum. N. vann þetta verk og heimilaði nokkrar stöður, en lagði til að mörgum yrði hafnað. Gallinn er sá, að síðan virðist lítið hafa verið gert með þessar niðurstöður. Besta dæmið um það er að stofnun ein sem var með þrjár óheimilaðar stöður sem fjvn. lagði til að yrðu lagðar niður. Þegar viðkomandi forstöðumaður kom til viðtals nú í haust voru óheimilaðar stöður ekki lengur þrjár, heldur fjórar, og að sjálfsögðu var erindi forstöðumannsins að sækja um fjölgun á stöðum. Þetta sýnir að það er ekki nóg að fjvn. sé fús að vinna nauðsynleg störf varðandi sparnað í ríkisrekstrinum, það verður líka að sjá um að eitthvert tillit sé tekið til niðurstöðu hennar, en ekki sé farið þveröfugt að.
Auk þess að rækilega þarf að fara ofan í rekstur einstakra stofnana eru án efa skoðunarverðir og áhugaverðir til samanburðar ýmsir útgjaldaþættir sem eru sameiginlegir með flestum stofnunum. Það hefur t.d. komið fram í skriflegu svari hæstv. fjmrh. við fsp. hér á Alþ., að utanlandsferðir ríkisstarfsmanna kostuðu nær 300 millj. kr. á árinu 1977. Það svarar til þess, að kostnaður á næsta ári, 1979, gæti numið um 600 millj. kr. eða ámóta upphæð og beint framlag ríkisins til framkvæmda við alla flugvelli í landinu.
Margt er athyglisvert um þann kostnað sem tilgreindur var í svari hæstv. ráðh. Það var núv. ráðh. sem kom með svarið, þó að upphaflegu fsp. hafi verið beint til hins fyrri. Hjá tveimur bönkum er um að ræða um 50 utanlandsferðir hjá hvorum um sig, þar sem hjá öðrum bankanum er um að ræða að dvalist hafi verið samanlagt 200 daga í bankaheimsóknum í Engiandi, á Norðurlöndum, Tyrklandi og Grikklandi, og alls er dvöl erlendis um 550 dagar hjá þeim banka. Hjá enn öðrum banka er á hinn bóginn ekki um eina einustu utanlandsferð að ræða. Forstöðumenn veigamikilla stofnana ríkisins hafa dvalist erlendis í samtals 2–3 mánuði á ári og aðrir æðstu yfirmenn í þrjá mánuði, og býsna algengt er að menn sæki fundi til nálægra landa og séu 15 daga í ferðinni. Ég er þeirrar skoðunar, að takmarka eigi þennan kostnað með þeim hætti að sækja þurfi fyrir fram og sérstaklega til fjmrn. um greiðslur og kostnaður við utanlandsferðir greiddur af sérstökum lið hjá því rn.
Það er vissulega ávallt nauðsynlegt að gæta sparnaðar og hagsýni í ríkisrekstrinum, en sérstaka kröfu verður að gera í því efni nú þegar ástand efnahagsmála og ríkisfjármála er með þeim hætti, sem raun ber vitni og þegar í átaki til að rétta við hag ríkissjóðs verður að grípa til þess að skera niður brýnustu samfélagslegu framkvæmdir sem miklu skipta almenning hvarvetna í landinu. Fjárhæðir í fjárlagafrv. til verklegra framkvæmda jafngiltu því, að framkvæmdir á næsta ári yrðu um 16% minni að raungildi en í ár. Till. um fjárveitingar til hinna einstöku framkvæmdaþátta á þskj. 168 fela í sér 2000 millj. kr. hækkun framkvæmdafjár frá fjárlagafrv. og svarar framkvæmdaféð þá til 12% lækkunar á raungildi miðað við núgildandi fjárlög.
Fulltrúar stjórnarandstöðunnar í n. töldu að þegar þessi ákvörðun um auknar fjárveitingar til framkvæmda var tekin hafi ekki verið sýnt fram á, hvernig þeim útgjöldum yrði mætt, og tóku því ekki afstöðu til till. um heildarhækkunina, en áttu, eins og venja er, aðild að skiptingu fjárveitinga á einstakar framkvæmdir.
Þó að meginreglan í n. hafi verið að standa gegn ásókn í hækkun útgjaldaliða, þá er það aldrei svo að unnt sé að komast hjá því að sinna ýmsum óskum, og var nú einkum reynt að mæta brýnustu þörfum á því, að framlög til félagslegra málefna rýrnuðu ekki að verðgildi.
Í fjárlagafrv. var miðað við að verðlagsgrundvöllur væri desemberverðlag, og þá gert ráð fyrir 7.5% hækkun verðbótavísitölu 1. des. Sú hækkun nemur í reynd 6.12% og eru launaliðir í frv. því um 700 millj. kr. hærri og útgjöld almannatrygginga um 100 millj. kr. hærri en verðlagsgrundvöllur í desember gefur tilefni til, en ekki er gerð till. um, að verðviðmiðun í fjárlagafrv. verði breytt.
Miðað við óbreytta tekjustofna fjárlagafrv. er talið við endurskoðun á forsendum tekjuhliðar að tekjurnar séu ofmetnar um 1500 millj. kr. í frv., að mestu vegna þess að nú er gert ráð fyrir að tekjur Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins muni reynast lægri en áætlað er í fjárlagafrv.
Til þess að mæta útgjaldaaukningu sem fram kemur í till. fjvn. á þskj. 168, samtals um 3300 millj. kr., og þeim ráðstöfunum, sem tengdar eru setningu laga um tímabundnar ráðstafanir til viðnáms gegn verðbólgu frá því 30. nóv., hefur ríkisstj. nú lagt fram frv. sem miða að því að sjá fyrir þessum útgjaldaþörfum og eiga jafnframt að tryggja að ríkissjóður verði rekinn hallalaust 16 mánuði eftir að núv. stjórn tók við völdum og að skuld við Seðlabankann verði verulega greidd niður, en stefnt er að því að það verði niðurstaðan við lokaafgreiðslu fjárlaga.
Í þeim efnahagsráðstöfunum, sem gerðar. voru um s.l. mánaðamót, fólst ákvörðun um lækkun beinna skatta sem jafngilti 2% af verðbótavísítölu og jafnframt að 3% af verðbótavísitölu yrði mætt með ýmsum félagslegum ráðstöfunum sem gert er ráð fyrir að komi að nokkru leyti til útgjalda hjá ríkissjóði á fjárl. fyrir næsta ár.
Í till. fjvn. á þskj. 168 nú fyrir 2. umr. er um að ræða 130 millj. kr. hækkun fjárveitingar til framkvæmda í dagvistunarmálum, sem er hluti af því viðbótarfjármagni sem veitt verður á fjárl. til félagslegra ráðstafana í sambandi við lög um efnahagsráðstafanir. Enn fremur var ákveðið að hækka niðurgreiðslur um 1/2% af verðbótavísitölu, og er nú flutt till. um það við 2. umr. fjárl.
Þau frv., sem nú hafa verið flutt til að tryggja framgang þessara atriða og tryggja jafnframt það markmið fjárlagaafgreiðslunnar, sem ég áðan nefndi, um hallalausan rekstur ríkissjóðs og endurgreiðstu skulda, verða lögð til grundvallar till. meiri hl. fjvn. við tekjuhlið frv. við 3. umr. Mun í n. verða milli 2. og 3. umr. gerð sérstök grein fyrir áætlunum um breytingar á einstökum tekjuliðum í samræmi við ákvæði fyrrnefndra frv. og á almennum þjóðhagsforsendum varðandi tekjur ríkissjóðs á næsta ári.
Af útgjaldaliðum frv. bíða 3. umr. málefni Orkusjóðs, sem mjög tengjast lánsfjáráætlun, svo og málefni Rafmagnsveitna ríkisins og annarra B-hluta fyrirtækja, enn fremur ýmsar útgjaldaákvarðanir varðandi félagslegar aðgerðir í sambandi við þær efnahagsráðstafanir sem gerðar voru um síðustu mánaðamót. Einnig bíða 3. umr. málefni Lánasjóðs námsmanna, styrkur vegna olíunotkunar til húshitunar, liðurinn Styrktarfé og ýmis eftirlaun svo og ýmis einstök erindi.
Kem ég þá að þeim brtt. sem n. flytur á þskj. 168. Fyrst eru till. varðandi menntmrn.
Framlag til Gjafar Jóns Sigurðssonar hækkar um 1 millj. 283 þús. kr. og verður 5 millj. 72 þús. kr. Er þetta til samræmis við þá ákvörðun Alþingis í sérstakri þál., að þessi fjárhæð skuli jafnan jafngilda launum prófessors.
Raunvísindastofnun Háskóla Íslands, eðlisfræðistofa, hefur sótt um fjárveitingu til að sinna því verkefni að þróa til framleiðslu rafeindatæki sem vonir standa til að geti bætt mjög rekstur frystihúsa, fiskmjölsverksmiðja og ýmissa annarra atvinnugreina, en hjá stofnuninni er nú vísir að hönnun þessara tækja. Fjvn. leggur til á þskj. 168 að Alþ. sinni þessu máli með því að veita á fjárl. til viðbótar við þær fjárhæðir, sem í fjárlagafrv. eru, 15.6 millj. kr. í tækjakaup og 4 millj. 253 þús. kr. til að greiða laun sérfræðings. Þess er að vænta, að fjárveitingin geti stuðlað að því að slík rafeindatæki verði hönnuð og framleidd hér á landi og með þeim hætti geti orðið til nýr atvinnuþáttur jafnframt því sem þær lausnir fáist sem henta sérstaklega okkar aðstæðum. Fjvn. vill með till. sinni bæta aðstöðu Raunvísindastofnunar háskólans til þess að standa að verulegu átaki í þessum efnum, en ætla má að það ráðist af því sem nú yrði gert eða látið ógert í þessu efni, hvort það verkefni að framleiða eða hanna slík rafeindatæki verði í höndum Íslendinga sjálfra eða ekki. Ýmsir aðilar væru færir um að sinna slíkri framleiðslu ef Raunvísindastofnun háskólans yrði nú efld til að tryggja verulegt átak í hönnun tækjanna, en vænn vísir er að þessu starfi hjá stofnuninni eins og ég áðan nefndi.
Þá hefur verið sótt um það til fjvn., að verkfræðistofnun Háskóla Íslands verði veitt viðbótarfé til þess að sinna ýmsum rannsóknarstörfum í tengslum við atvinnulífið og nýta betur en til þessa hefur verið unnt þann tíma sem kennurum er ætlaður til rannsóknarstarfa. Þó að fjvn. geri ekki till. um fjárveitingu í þessu skyni nú telur n. að þessu verkefni þurfi að sinna sérstaklega og er í athugun hjá n. hvernig þetta mál verði leyst.
Þá er lagt til að hækkuð verði fjárveiting til Orðabókar háskólans um 2 millj. kr. til að taka myndir af gögnum Orðabókarinnar á mikrófilmur til öryggis um varðveislu þess mikla verks sem unnið hefur verið hjá stofnuninni.
Till. er gerð um að veittar verði 10 millj. kr. í gjaldfærðan stofnkostnað hjá Íþróttakennaraskóla Íslands, en unnið hefur verið að hönnun íþróttahúss skólans.
Langt er til að framlag til stofnkostnaðar þriggja fjölbrautaskóla verði hækkað, þar af til Flensborgarskóla 2 millj., Fjölbrautaskóla Suðurnesja 23 millj., sem er skuldagreiðsla, og til Fjölbrautaskóla Akraness 15 millj. Þá er lagt til að launakostnaður við Fjölbrautaskólann á Suðurnesjum verði hækkaður um 8 millj. kr. vegna kostnaðar við öldungadeild sem þar hefur verið starfrækt, en fé hefur ekki verið veitt til á fjárlögum.
Fjvn. leggur til að framlag til tækjakaupa hjá Vélskóla Íslands verði hækkað um 5 millj. kr., en skólinn er vanbúinn tækjum og þarf enn á næstu árum að huga að úrbótum í því efni til viðbótar því sem nú er lagt til.
Till. er gerð um að fjárveiting til stofnkostnaðar iðnskóla hækki um 40 millj. og nemi þá 103 millj., eins og fram kemur á þskj. 168, þar sem sundurliðun er á einstakar framkvæmdir. — Enn fremur hækki framlag til stofnkostnaðar héraðsskóla um 13 millj. í 182 millj., sem sundurliðast á þskj. 168.
Lagt er til að veittar verði 3 millj. kr. vegna stofnkostnaðar við Skálholtsskóla og framlag til byggingar grunnskóla og íbúða fyrir skólastjóra hækki um 335.5 millj. og nemi 1979.5 millj. kr., en sundurliðun á einstakar skólaframkvæmdir kemur fram á þskj. 168. Innifaldar í þessari upphæð eru 14.7 millj. kr. til hönnunar 49 nýrra skólabygginga.
Framlag til byggingar skóla fyrir þroskahömluð börn er hækkað um 60 millj. kr. og verður 90 millj. og skiptist á þrjá skóla sem tilgreindir eru á þskj. 168. — Launaliður við stofnanir afbrigðilegra barna er hækkaður um 2.5 millj., en þar er um að ræða laun tveggja kennara við skólann að Dalbraut í Reykjavík frá næsta hausti. Fjvn. leggur fram till. um að framlag til stofnkostnaðar Heyrnleysingjaskólans hækki um 5 millj. kr. vegna tækjakaupa.
Lagt er til að fjárveiting til byggingar dagvistarheimila hækki um 130 millj. kr. í 360 millj. og er það þáttur í framlagi ríkissjóðs til úrbóta í félagslegum efnum í samræmi við efnahagsaðgerðir um síðustu mánaðamót. Sundurliðun á einstakar framkvæmdir kemur fram á þskj. 168.
Á liðnum Náms- og fræðimenn er lagt til að framlag til Félagsstofnunar stúdenta hækki um 10 millj. kr. í 29 millj., og er þá við það miðað að veitt hefur verið fé umfram fjárveitingar á fjárl. þessa árs til þeirrar stofnunar.
Þá er lagt til að framlag til Þjóðminjasafns, yfirfærslur til sveitarfélaga, sem varið er til byggðasafna og varðveislu gamalla húsa, hækki um 3 millj. 450 þús. og verði 20 millj. 450 þús. kr. Hefur n. ákveðið skiptingu á þessum lið í samráði við þjóðminjavörð. Í þeirri upphæð er m.a. gert ráð fyrir framlagi til varðveislu gamals verslunarhúss á Flateyri, og er þá lagt til að sérstök fjárveiting í fjárlagafrv. í því skyni falli niður.
Liðurinn: Listir, framlög hækkar samkv. till. fjvn. um 40 millj. 150 þús. kr. og verður þá alls 281 millj. 541 þús. kr. Er lagt til að þær fjárveitingar, sem hér um ræðir, hækki að nokkru leyti til samræmis við verðlagsbreytingar, en upphæðirnar eru óbreyttar í fjárlagafrv. frá núgildandi fjárl. Þar er um að ræða framlag til Leikfélags Reykjavíkur sem hækkar um 7 millj. kr. í 21 millj., til Leikfélags Akureyrar um 5.5 millj. í 16.5 millj., til leiklistarstarfsemi úr 11 millj. í 22 millj. og er þar haft í huga frv. sem nýlega hefur verið flutt um þessa starfsemi hér á Alþ. Bandalag ísl. leikfélaga hækki um 1 millj. í 2.5, til höfundamiðstöðvar um 600 þús. í 800 þús., til lúðrasveita um 250 þús. í 1.5 millj., til annarrar tónlistarstarfsemi um 1 millj. í 4 millj., styrkir til myndlistarskóla um 1.2 millj. í 3.5, til listasafna um 0.5 millj. í 4 millj., til myndlistarsýninga um 100 þús. kr. í 600 þús., til listiðnaðarmála um 50 þús. í 450 þús., heiðurslaun listamanna hækki um 3 millj. í 12 millj., listamannalaun um 7 millj. í 34 millj., framlag til listkynningar um 200 þús. í 1.2 millj., til Bandalags ísl. listamanna um 50 þús. í 300 þús. og til lista og menningarmála almennt um 1.7 millj. í 8 millj., en þessum lið mun verða skipt af fjvn. í samvinnu við menntmrn.
Þá er lagt til að liðurinn Jöklarannsóknir og mælingar hækki um 200 þús. kr. og verði 400 þús. kr. Rekstrarstyrkir Íþróttasjóðs hækka um 6 millj. í 25 millj. og framlag til byggingar íþróttamannvirkja hækkar um 75 millj. og verður 322 millj. 640 þús. kr., en skrá um framlög til þeirra 189 íþróttamannvirkja, sem áður hafa hlotið styrki á fjárl., kemur fram á þskj. 168 svo og skrá um þau 20 íþróttamannvirki sem hljóta byrjunarframlag.
Framlög á liðnum Æskulýðsmál hækka yfirleitt sem nemur verðlagsbreytingum, en tekið er upp sérstakt framlag, 1.5 millj., til Æskulýðssambands Íslands, sem áður hefur hlotið styrk af fjárveitingu Æskulýðsráðs ríkisins, en Æskulýðsráð ríkisins hækkar um 2 millj. í 7.5 millj., Ungmennafélag Íslands um 9 millj. í 27 millj., Bandalag ísl. skáta um 1 millj. í 6 millj. og Bandalag ísl. skáta vegna framkvæmda við Úlfljótsvatn um 1/2 millj. í 1.5 millj., Íslenskir ungtemplarar um 850 þús. kr. í 2.2 millj., KFUM og K um 1/2 millj. í 1.5 millj. og vegna starfsemi KFUM og KFUK í Vatnaskógi um 300 þús. í 900 þús. og í Vindáshlíð um 250 þús. í 750 þús.
Fjvn. leggur til að framlag til Íþróttasambands Íslands hækki um 30 millj. í 90 millj. kr. og framlag til íþróttamála fatlaðra um 1.5 millj. í 4.5 millj., og er gert ráð fyrir að það skiptist á hin ýmsu félög fatlaðra.
Á liðnum Ýmislegt hjá menntmrn. er lagt til að framlag til Matthíasarsafns á Akureyri hækki um 150 þús. í 250 þús., til náttúrugripasafns á Akureyri um 100 þús. í 700 þús., til náttúrugripasafns á Neskaupstað um 100 þús. í 550 og í Borgarnesi úr 100 þús. í 550. Framlag til Zontaklúbbs Akureyrar vegna Nonnahúss hækkar um 50 þús. í 200, til viðhalds gamla rjómabúsins á Baugsstöðum hækkar um 25 þús. í 75 þús. kr., framlag til húss Guðmundar Böðvarssonar hækkar um 250 þús. kr. í 400 og framlag til minnisvarða Jóns Eiríkssonar hækkar um 100 þús. kr. í 300 og áréttað er að hér sé um lokagreiðslu að ræða. Þá er lagt til að breytt verði texta liðsins Til íslensks dýrasafns og liðurinn orðist svo: Til dýrasafns á Selfossi, en fjárhæðin verði óbreytt, en sem kunnugt er keypti dýrasafnið á Selfossi að verulegu leyti muni Íslenska dýrasafnsins.
Framlög til safnahúsa á Blönduósi, Sauðárkróki, Húsavík og til héraðssafnsins á Egilsstöðum hækka hvert fyrir sig um 100 þús. kr. í 500 þús., og tekinn er upp nýr liður, 200 þús. kr., til safnahúss í Borgarnesi. Lagt er til, að fjárveiting til sögusafns verkalýðsfélaganna hækki um 50 þús. kr. í 300 þús og framlag til Bandalags ísl. skáta, hjálparsveita, hækki um 1 millj. í 3 millj. Framlag til Kvenfélagasambands Íslands hækkar um 1 millj. í 5 millj. og til Kvenréttindafélags Íslands um 100 þús. í 400 þús. kr., til Þjóðdansafélagsins um 50 þús. kr. í 150 og til Hagsmunasamtaka einstæðra foreldra um 100 þús. kr. í 300.
Lagt er til að rekstrarstyrkur til Landakotskóla hækki um 1250 þús. kr. í 3 millj. 750 þús. og styrkur til Hliðarskóla um 1.6 millj. í 4.8.
Framlag til Sambands ísl. karlakóra hækkar um 150 þús. í 300 þús. kr. og styrkur til náms í talkennslu fyrir vangefin börn um 150 þús. kr. í 650 þús. Þá er lagt til að styrkur til hjúkrunarkennaranáms á Norðurlöndum hækki um 150 þús. kr. í 600 þús. og styrkur til fyrrverandi barnakennara um 40 þús. kr. í 200 þús.
Þá er fjárveiting til greiðslu kostnaðar við hreindýraeftirlit hækkað um 400 þús. kr. í 1400 þús. og fjárveiting til greiðslu kostnaðar við eyðingu vargfugls um 300 þús. kr. í 1 millj.
Lagt er til að liðurinn Ýmis framlög hjá menntmrn. hækki um 2 millj. kr. í 16 millj., en fjvn. og menntmrn. veita styrki af þessum lið. — Þá gerir fjvn. till. um að í stað textans Íslenska brúðuleikhúsið komi: Brúðuleikhús, en fjárveitingin verði óbreytt, 600 þús. kr.
Þá er lokið till. varðandi menntmrn.
Ein till. fjvn. varðar utanrrn., en lagt er til að framlag til Alþjóðaframfarastofnunarinnar lækki um 200 millj. 250 þús. kr., en þar er um að ræða leiðréttingu, þar sem framlagið á að ákvarðast í íslenskum kr. og tekur því ekki breytingum samkv. gengisskráningu eins og virðist hafa verið gert ráð fyrir við fjárlagagerð.
1. till. fjvn. varðandi landbrn. er þess efnis, að framlag til Landnáms ríkisins hækki um 25 millj. kr. vegna skuldagreiðslna grænfóðurverksmiðja, en það er hluti af umsömdum greiðslum.
Lagt er til að styrkur til fyrirhleðslna hækki um 12.3 millj. kr. í 53 millj. og kemur sundurliðun á einstakar framkvæmdir fram á þskj. 168.
Styrkur til landþurrkunar hækkar samkv. till. fjvn. um 2.7 millj. í 3.8 millj. og er sundurliðun tilgreind á þskj. 138. — Þá er lagt til að styrkur til félagssamtakanna Landverndar hækki um 350 þús. kr. í 1.2 millj. — Þá leggur n. til að framlag til Bændaskólans á Hólum, viðhaldskostnaður, hækki um 7.5 millj. í 12.8 millj., en á móti falli niður framlag til fyrirhugaðs bændaskóla í Odda, 5 millj. kr.
Koma þá næst till. varðandi sjútvrn. N. leggur til að leiðrétt verði vanáætlun um önnur rekstrargjöld hjá aðalskrifstofu sjútvrn. og liðurinn hækki um 3 millj. kr., enn fremur verði 3 millj. veittar til gjaldfærðs stofnkostnaðar til kaupa á húsbúnaði í nýtt húsnæði sem rn. hefur fengið til afnota.
Þá leggur fjvn. til að hækkað verði framlag til sjóvinnunámskeiða um 1.3 millj. í 4.5 millj. kr. og til skólabáta um 1.5 millj. kr. í 2.5, og lagt er til að 2.5 millj. kr. verði veittar til að halda námskeið í meðferð og stillingu fiskvinnsluvéla.
Tvær till. fjvn. varða dóms- og kirkjumálarn. Hin fyrri er þess efnis að hækka áætlaðan launakostnað við sýslumannsembættið í Borgarnesi um 4 millj. 352 þús. kr. vegna fulltrúa sem starfað hefur við embættið og bindandi fyrirheit munu hafa verið gefin um af yfirvöldum á miðju þessu ári um að fengist fastráðinn. Síðari till. fjvn. varðandi þetta rn. er um 500 þús. kr. hækkun á fjárveitingu til dómprófastsembættisins í Reykjavík til að launa lausráðinn aðstoðarmann, m.a. vegna starfa sem tengjast manntalsskráningu í Reykjavík og Kjalarnesprófastsdæmi.
Er þá komið að till. varðandi félmrn. Er þar fyrst till. um að á liðnum Húsnæðismálastofnun ríkisins verði tekið upp nýtt viðfangsefni: framlag til Byggingarþjónustu Arkitektafélags Íslands 3 millj. kr. Arkitektafélag Íslands hefur rekið byggingarþjónustu fyrir almenning í mörg ár. Þess konar þjónustu er í lögum gert ráð fyrir að Húsnæðismálastofnun ríkisins veiti, og er hér lagt til að veitt verði framlag frá stofnuninni til viðbótar við framlag frá Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins til greiðslu stofnkostnaðar, en gert er ráð fyrir að ekki verði um rekstrarstyrki að ræða.
Þá er lagt til að framlag til embættis ríkissáttasemjara, sem er nýtt í fjárlagafrv., verði lækkað um samtals 12 millj. 819 þús. kr., þ.e.a.s. laun um 10 millj. 872 þús. og önnur rekstrargjöld um 1 millj. 947 þús. kr. Verður þá horfið frá því að gera ráð fyrir ráðningu skrifstofumanns og fulltrúa, og einnig er gert ráð fyrir að laun ríkissáttasemjara verði ekki greidd fyrr en frá miðju næsta ári. Þessar breytingar eru gerðar í fullu samráði við ríkissáttasemjara og var talið rétt að láta reynsluna skera úr um þörfina áður en fastráðið er nokkurt starfsfólk til aðstoðar ríkissáttasemjara.
Á liðnum Ýmis framlög hækka framlög til félagsins Heyrnarhjálpar um 500 þús. kr. í 1.5 millj., til mæðrastyrksnefnda um 270 þús. kr. í 500 þús., til Slysavarnafélags Íslands um 10 millj. í 35 millj. og til Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra úr 3 millj. í 10.5 millj., en á hinn bóginn er lagt til að niður falli annar liður til sama félags, 2.4 millj. kr., sem merktar eru eldspýtnagjaldi, og leggur n. þá einnig til að ákvæði í heimildagr. varðandi eldspýtnagjald til félagsins falli niður og styrkur til þess verði eftirleiðis ákveðinn í fjárl. Tekjur félagsins af þessu gjaldi hafa farið lækkandi í krónutölu og eru t.d. 4 millj. á núgildandi fjárl., en eins og áður sagði 2.4 millj. í fjárlagafrv. nú. Heildarfjárveiting til félagsins hækkar því frá frv. samkv. þessum till. úr 5.4 millj. í 10.5 millj.
Framlag til Neytendasamtakanna hækkar um 1/2 millj. kr. í 1.5 millj. — Lagt er til að Leigjendasamtökunum verði veittur 200 þús. kr. starfsstyrkur, það er nýr liður. — Framlag til sjómannastofa hækkar um 1.5 millj. kr.
samkv. till. n. í 4 millj., framlag til Öryrkjabandalags Íslands um 700 þús. kr. í 2 millj. 200 þús. kr. — Framlag til Ferlinefndar fatlaðra hækkar um 300 þús. kr. í 500 þús. kr., til Blindrafélagsins um 1.5 millj. kr. í 4 millj. og til Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra, byggingarstyrkur, hækkar um 3.5 millj. í 10.5 millj. Þessi till. féll niður á þskj. 168, en hefur nú verið flutt á þskj. 180.
Framlag til landssamtakanna Þroskahjálpar hækkar um 500 þús. kr. í 1.5 millj. Enn fremur leggur n. til að Styrktarfélag vangefinna fái 600 þús. kr. styrk vegna norræns móts á Íslandi á næsta ári. — Framlag til Foreldra samtaka barna með sérþarfir hækkar um 200 þús. kr. í 500 þús., og lagt er til að félaginu Íslensk réttarvernd verði veittur 500 þús. kr. starfsstyrkur, það er nýr liður.
Er þá komið að till. varðandi heilbr.- og trmrn. Er þar fyrst till. um hækkun framlags til gjaldfærðs stofnkostnaðar við Geðdeild Landsspítalans um 168 millj. kr., en sú viðbótarfjárveiting er nauðsynleg til að staðið verði við gildandi verksamning. Nemur þá framlag til þessarar byggingar 399.5 millj. kr. á næsta ári.
Lagt er til að framlag til byggingar sjúkrahúsa heilsugæslustöðva og læknabústaða annarra en ríkissjúkrahúsa hækki um 387 millj. kr. í 1 milljarð 845 millj. og kemur sundurliðun fram á þskj. 168. Í sambandi við þessar fjárveitingar hefur sérstaklega verið leitast við að tryggja að örugglega verði séð fyrir því, að fjárveitingar séu fyrir hendi í samræmi við gerða verksamninga, en á því varð nokkur misbrestur við síðustu fjárlagaafgreiðslu og námu aukafjárveitingar af þeim sökum nokkuð á annað hundrað millj. kr. á þessu ári, en bundnar eru nú með verksamningum á næsta ári um 435 millj. kr.
Í fjárlagafrv. er sérstakur liður til Grensásdeildar Borgarspítalans til byggingar endurhæfingarsundlaugar gegn jafnháum framlögum annars staðar að. Fjvn. leggur til að þessi liður falli niður, en í till. n. um framlög til byggingar sjúkrahúsa er gert ráð fyrir 30 millj. kr. fjárveitingu til þessarar framkvæmdar með sama hætti og til annarra heilbrigðisstofnana, þ.e.a.s. án skilyrða um jafnhátt framlag annars staðar að.
Fjvn. leggur til að styrkur til Hjartaverndar hækki um 10 millj. í 30 millj. kr. og til Krabbameinsfélags Íslands um 12.5 millj. kr. í 37.5.
Þá er lagt til að áætlun um kostnað samkv. farsóttar- og sóttvarnarlögum hækki um 20 millj. í 24 millj. 730 þús. kr. vegna laga sem sett voru á Alþ. s.l. vor um stóraukna þátttöku ríkisins í þessum greiðslum. Er það jafnvel hald ýmissa aðila að þessi liður þyrfti að vera verulega hærri en hér er lagt til.
Framlag til sjúkraflugs er lagt til að hækki um 4.5 mill j. kr. og verði 12 millj. kr. Fjvn. mun skipta þessum lið á milli þeirra aðila sem sjúkraflug annast. Þá leggur n. til að tekinn verði upp að nýju og hækkaður verði um 550 þús. kr. í 2.5 millj. liðurinn starfslaun Ófeigs J. Ófeigssonar læknis, en sá liður var felldur niður í frv.
Lagt er til að liðurinn Áfengisvarnir hækki um 2.5 millj. kr. í 23 millj. 510 þús. kr. og framlag til Stórstúku Íslands hækki um 1.5 millj. kr. í 4.5, en niður falli byggingarstyrkur vegna Templarahallar.
Tvær till. n. varða fjmrn. Fyrri till. er um að liðurinn Lífeyrissjóður bænda hækki um 70 millj. kr. og verði 192.5 millj., en á hliðstæðan hátt hækkar einnig hjá viðskrn. framlag í sambandi við niðurgreiðslur á vöruverði vegna mótframlags í Lífeyrissjóð bænda um 115 millj. 900 þús. kr. En við fjárlagagerð hefur m.a. ekki verið tekið tillit til hækkunar lífeyris um 41.4%.
Síðari till. varðandi fjmrn. er þess efnis, að í stað textans Lífeyrissjóður verkalýðsfélaga komi: Til eftirlauna aldraðra félaga í stéttarfélögum samkv. lögum nr. 63/1971, og fjárveiting hækki um 51.5 millj. kr. í 163 millj. Er það í samræmi við fjárhagsáætlun Atvinnuleysistryggingasjóðs um hlut ríkissjóðs í þessum greiðslum, en ríkissjóður greiðir 1/4 útgjalda, en Atvinnuleysistryggingasjóður 3/4.
Kemur þá að till. varðandi samgrn.
Lagt er til að gjaldfærður stofnkostnaður Vegagerðar hækki um 327 millj. kr. Er þá við það miðað að framkvæmdakostnaður vegna nýrra framkvæmda á næsta ári, þ.e.a.s. framkvæmdir við vegi og brýr, geti numið 5 milljörðum 89 millj. kr. og að um verði að ræða ríkisframlag til vegagerðar sem nemur þessari hækkun, 327 millj. kr., en ekki var gert ráð fyrir ríkisframlagi í fjárlagafrv.
Þá leggur fjvn. til að framlag til hafnarmanavirkja og lendingarbóta hækki um 372.4 millj, kr. og nemi þá alls 1. milljarði 528 millj. 400 þús. kr., en sundurliðun á fjárveitingum til einstakra hafnarframkvæmda kemur fram á þskj. 168.
Þá er lagt til að liðurinn Ferjubryggjur hækki um 8.9 millj. kr. í 36.9 og kemur sundurliðun á einstakar framkvæmdir fram á þskj. 168, og framlag til sjóvarnargarða hækki um 18.7 millj. í 89 millj., sundurliðun kemur fram á þskj. 168. Þess ber að geta, að í upphæðinni til Eyrarbakka og Stokkseyrar, 45 millj. kr., mun 41 millj. kr. vera vegna skuldagreiðslna.
Framlag til Hafnabótasjóðs hækkar um 138.7 millj. vegna hækkunar framlags til hafnargerða, í samræmi við ákvæði laga um að fjárveiting til Hafnabótasjóðs skuli nema 12% af fjárveitingum til hafnarmannvirkja og lendingarbóta.
Þá leggur fjvn. til að styrkur til flugbjörgunarsveita hækki um 400 þús. kr. í 1.1 millj. kr.
Tvær till. fjvn. varða iðnrn. Lagt er til að Iðntæknistofnun fái heimild til að fjölga starfsmönnum um þrjá og launaútgjöld verði hækkuð um 15 millj. 781 þús. kr. Er þar um að ræða framkvæmdastjóra, deildarstjóra og verkfræðing í almennri tækni- og rekstrarráðgjöf.
Fjvn. gerir till. um að fjárveiting til Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins verði hækkuð um 3 millj. og viðbótinni varið til að greiða hluta af stofnkostnaði Byggingarþjónustu Arkitektafélags Íslands, á hliðstæðan hátt og lagt var til með till. varðandi Húsnæðismálastofnun sem áðan var á minnst.
Ein till. fjvn. varðar viðskrn. Lagt er til að liðurinn Niðurgreiðslur á vöruverði hækki um 865.9 millj. kr. í 18 milljarða 902.9 millj. kr. Er þar annars vegar um að ræða 115.9 millj. kr. vegna mótframlags til Lífeyrissjóðs bænda, en væri ekki um mótframlagið að ræða mundi búvöruverð hækka að sama skapi. Hins vegar er um að ræða 750 millj. kr. hækkun á niðurgreiðslum til samræmis við ákvarðanir við setningu laga um tímabundnar ráðstafanir til viðnáms gegn verðbólgu um aukningu niðurgreiðslna sem nemur hálfu prósentustigi af verðbótavísitölu.
Ein till. n. er um framlag til Hagstofu Íslands. Er lagt til að launaliður hækki um 20 millj. kr. vegna ákvörðunar um endurskoðun á vísitölugrundvelli.
Þá er lagt til að framlög til fjárfestinga í flugmálum hækki um 200 millj. kr. frá till. í fjárlagafrv., en gert er ráð fyrir, að hér sé um að ræða tækjakaupalán, en ekki hækkun beinnar fjárveitingar úr ríkissjóði. Sundurliðun á þessum 800 millj., sem til ráðstöfunar verða til fjárfestingar í flugmálum, kemur fram á þskj. 168, en auk þess hefur fjvn. skipt á einstakar framkvæmdir eftirstöðvum af fjárveitingu til sjúkraflugvalla á fjárl. þessa árs.
Á síðustu till. n. hef ég áður minnst, en hún er við 6. gr. og samkv. henni er lagt til að niður falli heimild Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins til að greiða allt að 20 aurum af hverjum seldum eldspýtnastokk til Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. Þetta gjald hefur lækkað í krónutölu undanfarin ár og er því lagt til að félagið fái fjárstyrk sinn með beinu framlagi á fjárl. Þessi ákvörðun er tekin í samráði við framkvæmdastjóra samtakanna.
Ég hef þá lokið við að rekja till. fjvn. við þessa umr. Verði þær allar samþykktar hækkar útgjaldahlið fjárlagafrv. um 3 milljarða 324 millj. 66 þús. kr.