18.12.1978
Efri deild: 34. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1693 í B-deild Alþingistíðinda. (1212)
23. mál, tímabundið vörugjald
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Ég hygg að við munum vera býsna margir þm. í þessari hv. d. sem undanskilja vildum ýmsa vöruflokka sem nú er ráðgert að innheimta vörugjald af. Ég vildi gjarnan sjá um það, að ekki yrði innheimt vörugjald af hljóðfærum. Það sama gildir um ýmis tæki til íþróttaiðkana sem nú er lagt á vörugjald og verða mun á næsta ári.
Hv. þm. Eyjólfur K. Jónsson upplýsti okkur um það áðan, að hann hefði með aðstoð ráðuneytisstjóra og starfsmanna fjmrn. gengið úr skugga um að hér yrði náð til allra tegunda hljóðfæra. — Hljóðfæri eru mörg, og hér er um að ræða vörur sem gilda mundu 100 millj. kr, í heild í vörugjaldi. Spurningin er þá hvort hv. þm. gæti ekki hugsað sér að nú yrði stigið fyrsta skrefið í þessa átt, þessu yrði náð í áföngum, við gætum fengið hér samþykkt sem yrði stefnumarkandi.
Af hinum mörgu tegundum hljóðfæra, sem hér um ræðir, tilgreindi hv. þm. hrossabrestinn einan. Þá er spurningin hvort hann mundi ekki sætta sig við að hið fyrsta skref yrði það, að niður yrði fellt vörugjald af þessu hljóðfæri hjarta hans, sem mundi þá e.t.v. ekki muna ríkissjóð ákaflega miklu, en gæti þó heitið að þar væri mörkuð stefna til framtíðar, að í þá átt yrði miðað að niður yrði fellt vörugjald af hljóðfærum yfirleitt.
Ég vil beina þessari spurningu til hv. þm. hvort hann mundi ekki geta sætt sig við að þetta yrði byrjunin, og í því mundi ég styðja hann, en greiða atkv. gegn till. í heild að öðrum kosti.