18.12.1978
Efri deild: 34. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1694 í B-deild Alþingistíðinda. (1213)

23. mál, tímabundið vörugjald

Menntmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Mér fannst nokkuð djarft af hv. þm. Eyjólfi K. Jónssyni að rangtúlka orð hæstv. fjmrh. örfáum mínútum eftir að hann kom í stólinn. Hæstv. fjmrh., Tómas Árnason, lýsti því yfir áðan, að vörugjaldið yrði tekið til endurskoðunar á næstunni og hann væri reiðubúinn til þess að standa að slíkri endurskoðun. Hitt er allt annað mál, að hann var ekki reiðubúinn til þess, eins og hann sagði hér, að lýsa því yfir hvaða einstakir vöruflokkar yrðu þar teknir til. meðferðar. Hann lýsti því yfir, að þessi endurskoðun mundi fara fram, og hafði þá vafalaust í huga að fleiri vöruflokkar gætu komið þarna til álita en hljóðfærin ein, það mætti ekki skoða þau ein sér, heldur yrði að líta á gjaldið allt. Og það er einmitt í trausti þessarar yfirlýsingar, að málið í heild verði endurskoðað á næstu vikum, sem ég tel að ekki sé tímabært að gjalda jáyrði við till. sem hér er flutt, enda er hún greinilega búin til í skjótræði og engin trygging fyrir því fyrir dm. að hún fullnægi þeim óskum sem hér hafa verið uppi.