24.10.1978
Sameinað þing: 7. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 111 í B-deild Alþingistíðinda. (122)

321. mál, jarðakaupalán

Fyrirspyrjandi (Pálmi Jónsson):

Herra forseti. Ég þakka svör hæstv. ráðh. Það kom fram í þeim svörum, að þess má vænta, að greitt verði úr þessum málum á næstunni, og verð ég að lýsa ánægju minni yfir því. Æskilegra hefði þó verið vitaskuld að þetta gæti legið nokkuð hreint fyrir og er vonandi að það dragist ekki mjög lengi að svo verði.

Ekki komu fram upplýsingar um það, hvernig kjör verða á því fjármagni sem samþykkt hefur verið að veita úr Framkvæmdasjóði Íslands. Ég tel að ef það fjármagn verður með venjulegum lánskjörum, sé ákaflega erfitt að hugsa sér að jarðakaupalán geti borið þau lánskjör vegna þeirra ástæðna sem ég gat um hér í fyrri ræðu minni. Ég fagna því þó að hæstv. ráðh. virðist hafa skilning á þessu efni og hef ekkert um það að segja fyrr en í ljós kemur hver niðurstaðan verður.

Hv. þm. Helgi Seljan sagði að hér væri ekki um nýtt mál að ræða. Það er sumpart rétt. Það er rétt sem hann sagði, að á síðasta ári voru þessi lán ekki afgreidd fyrr en undir lok ársins. En fyrr á árum var það svo, að Veðdeild Búnaðarbanka Íslands gat staðið undir því að veita þessi lán og hafði til þess aðstoð það tímanlega, að það þurfti ekki að draga fram á síðustu daga ársins, eins og gerðist í fyrra og eins og sýnilega verður nú. Hins vegar er svo komið fyrir Veðdeild Búnaðarbankans, að hún er gjaldþrota, og hefur raunar verið um bráðabirgðaástand að ræða við afgreiðslu jarðakaupalána á síðustu 1–2 árum. Ég vænti þess að sá afgreiðslumáti, sem hér er boðað að verði um þessi mál nú, verði einnig að teljast til bráðabirgða. Ljóst er að það verður að útvega Stofnlánadeild landbúnaðarins fjármagn með góðum kjörum til að sinna þessu hlutverki.

Menn hafa oft talað um að nauðsynlegt væri að bæta kjör frumbýlinga og auðvelda ættliðaskipti á jörðum. Það verður ekki gert með því að jarðakaupalán verði með svo óhagstæðum lánskjörum sem almennt eru á fé frá Framkvæmdasjóði Íslands. Þess vegna er nauðsynlegt að taka þessi mál til alvarlegrar athugunar og það heldur fyrr en seinna. Nefnd, sem starfaði að endurskoðun laga um Stofnlánadeild landbúnaðarins á síðasta ári, lagði fram tillögur sem fólu í sér breytingar á lögunum er hefðu getað gegnt þessu hlutverki. Því miður var liður í því lagafrv. skorinn niður áður en lögin voru afgreidd, þannig að það leysir ekki vandann nú. Hér á ég við tillögu um svokallað mótframlag ríkissjóðs gegn jöfnunargjaldi, sem hefði þýtt á þessu ári um 300 millj. kr., sem þá hefði verið óverðtryggt fé og unnt hefði verið að nýta til þess að veita jarðakaupalán með góðum kjörum, leysa gjaldþrotahalla Veðdeildar Búnaðarbanka Íslands og byggja þennan lánaþátt upp með eðlilegum hætti og e.t.v. auka fyrirgreiðslu við frumbýlinga umfram það, sem verið hefur, og stefna þannig að því að leysa þeirra vanda.

Ég skal ekki lengja umr. um þetta mál nú í fsp.-tíma. Ég þakka hæstv. ráðh. svör hans og vænti þess, að sá skilningur, sem fram kom í máli hans á þessum efnum, megi duga til þess að hér verði teyst úr með viðunandi hætti.