24.10.1978
Sameinað þing: 7. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 112 í B-deild Alþingistíðinda. (123)

321. mál, jarðakaupalán

Dómsmrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Ég vil geta þess í sambandi við orð hv. fyrirspyrjanda, að Stofnlánadeild landbúnaðarins hefur á undanförnum árum setið að bróðurparti þess fjármagns sem fáanlegt hefur verið frá Framkvæmdasjóði með góðum lánskjörum, þ.e. fjármagn sem er ekki gengis eða verðtryggt. Þetta veit ég að hv. fyrirspyrjandi þekkir. Engu að síður hefur þetta ekki nægt til þess að firra veðdeild bankans mjög miklum fjárhagsvandræðum, því að menn hafa ekki treyst sér til, eins og kom fram hjá hv. fyrirspyrjanda, að lána fé til jarðakaupa með slíkum kjörum, þ.e.a.s. fullri verðtryggingu eða gengistryggingu. Nú hafa menn lagst á eitt til að finna ráð til að bæta úr þessu. Það verður að sjálfsögðu ekki gert nema útvega deildinni fjármagn með það góðum kjörum, að blanda megi þessu tvennu saman og fá út eitthvað hæfilegt. Það hefur mistekist. M.a. var fellt út úr frv. um Stofnlánadeildina á síðasta þingi ákvæði sem átti að stuðla að þessu. Því miður hefur Framkvæmdasjóður ekkert annað fjármagn heldur en annað hvort verðtryggt eða gengistryggt. Spurningin er hvort unnt sé að dreifa þeirri byrði sem slík útlán mundu hafa í för með sér. Ég veit að stjórn Stofnlánadeildarinnar mun athuga það mál mjög vandleg, og ég mun gera það sem í mínu valdi stendur til þess að þau kjör verði viðunandi, þótt um það geti ég að sjálfsögðu engu lofað áður en sæmilegt fjármagn til þess er fundið.