18.12.1978
Neðri deild: 35. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1714 í B-deild Alþingistíðinda. (1234)

138. mál, skattur á skrifstofu- og verslunarhúsnæði

Fjmrh. (Tómas Árnason):

Herra forseti. Eins og ég greindi frá í framsögu fyrir frv. um breyt. á i. um tekju- og eignarskatt, þá gerði ég grein fyrir þessu máli sem hér er á dagskrá. Vil ég leyfa mér að vísa til þeirrar ræðu og mun ekki fara fleiri orðum um þetta mál að sinni nema tilefni gefist til þess.

Ég legg til að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.