24.10.1978
Sameinað þing: 7. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 113 í B-deild Alþingistíðinda. (124)

321. mál, jarðakaupalán

Stefán Valgeirsson:

Herra forseti. Það eru engin tök á því að ræða þetta mál, eins og raunar þyrfti að gera, í fsp.-tíma á Alþ. En út af því, sem hv. þm. Pálmi Jónsson sagði, að 90 lánsumsóknir lægju fyrir lánshæfar, þá er það einhver misskilningur. Það eru 90 umsóknir sem hafa borist, en um 60 af þeim eru skjöl sem eru fullnægjandi til þess að hægt væri að veita lánin eins og stendur. En þetta skiptir ekki höfuðmáli.

Ég vil vekja athygli á því, að ef orðið hefði samkomulag á síðasta þingi um þær leiðir sem sú nefnd, sem hv. þm. var að tala um, lagði til, þá væri þessi vandi ekki fyrir hendi í sambandi við lánskjör á jarðakaupalánum. Það verður að finna leiðir til þess, að þessi lán sligi ekki þá menn sem eru að hefja búskap. Og ég vil í því sambandi minna á það, að lánskjör, sem Byggðasjóður er með, eru með allt öðrum hætti heldur en við hefðum getað verið með í sambandi við jarðakaupalánin. Þar eru 14%, óverðtryggt, en við höfum orðið að vera á síðasta ári með 18% vexti af jarðakaupalánum.

Því miður er tími ekki til að ræða þessi mál hér frekar. Ég vona að hægt verði að finna einhverja viðunandi lausn á þessu máli. Ekki liggur enn fyrir hvers konar fjármagn við fáum, hvort það verður að einhverju leyti verðtryggt, en það verður annaðhvort verðtryggt eða gengistryggt, eftir þeim upplýsingum sem liggja fyrir, þó að ekki sé vitað hvernig skiptingin verður á því fjármagni.