24.10.1978
Sameinað þing: 7. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 113 í B-deild Alþingistíðinda. (126)

324. mál, varnir gegn mengun af völdum bandaríska hersins

Fyrirspyrjandi (Ólafur Ragnar Grímsson):

Herra forseti. Á undanförnum árum og áratugum hafa komið fyrir hér á landi fjölmörg atvik sem varpað hafa ljósi á þær margvíslegu hættur sem stafa af dvöl bandaríska hersins í landinu. Þessir afburðir hafa falið í sér í senn hættur vegna þeirrar vopnameðferðar, sem þar hefur verið viðhöfð, og enn fremur vegna mengunar af margvíslegri annarri starfsemi sem hefur verið tengd hernum eða farið fram á vegum hans. Ég held að allir, sem líti yfir sögu þessara tilvika, geti verið sammála um þann dóm, að þau hafi í senn sýnt margvíslegar tilraunir af hálfu bandaríska hersins til þess að breiða yfir og fela atburði af þessu tagi og vanmátt íslenskra embættismanna, jafnvel áhuga- og getuleysi þeirra ásamt íslenskum stjórnvöldum til þess að upplýsa mál af þessu tagi.

Oft og tíðum hafa þessi málefni verið aðeins í umr. og fréttum örfáa daga. Síðan hefur þeim verið vísað til einhverra aðila í stjórnkerfinu eða beint til hersins sjálfs og ekkert af þeim frést. Bæði yfirmenn hersins og embættismenn íslenska ríkisins og oft og tíðum stjórnvöld hafa treyst því, að gleymska almennings yrði bandamaður þeirra hvað snertir þær margvíslegu hættur og erfiðleika sem samfara eru dvöl hersins hér á landi. Oft og tíðum hefur þessi áróðursherferð, sem ég vil kalla svo, þ.e.a.s. herferð gleymskunnar, tekist ærið vel.

Það má minna á það, að fyrir nokkrum árum fundust sinnepsgassprengjur á skeljasandsmiðum Sementsverksmiðju ríkisins. Önnur sprengjan sprakk í verksmiðjunni sjálfri og brenndi þar nokkra starfsmenn. Hin var heil og hafði á sér ártalið 1946, sem greinilega útilokaði alla aðra aðila en Bandaríkin sem höfund þessa vopns. Meðferð málsins varð sú, að varnarmáladeild var falið það. Hún vísaði því til sprengjusérfræðinga bandaríska hersins og síðan hefur ekkert frést um þetta mál.

Fyrir nokkrum dögum kom upp fyrir hreina tilviljun, eins og ætíð vill verða um mál af þessu tagi, annað mál skylt þessu, — mál sem greinilega átti af hálfu varnarmáladeildar, bandaríska hersins og íslenskra stjórnvalda að fá sömu meðferð gleymskuherferðarinnar og fleiri af þessu tagi. Ég tel hins vegar að hér hafi verið um svo alvarlegt mál að ræða, að óverjandi sé að þær afsakanir og sá málflutningur, sem hafður var uppi af hálfu varnarmáladeildar í þessu máli, séu látin hjá liða án þess að nánar sé um það spurt hér á háu Alþingi og jafnframt kannað hvaða varanlegar ráðstafanir utanrrn. hyggst gera eða hefur þegar gert til þess að koma í veg fyrir að Íslendingum og þá sérstaklega íbúum á Suðurnesjum stafi varanleg og alvarleg mengunarhætta af dvöl og starfsemi bandaríska hersins á Keflavíkurflugvelli.

Fyrir nokkrum árum voru uppi margvíslegar umr. um mengun drykkjarbóla á Suðurnesjum af völdum starfsemi bandaríska hersins. Það vandamál hefur ekki fengið, eftir því sem mér er kunnugt, varanlega lausn. Greinilegt er að af hálfu íslenska embættiskerfisins og þeirra stjórnvalda, sem hér voru við völd, og bandaríska hersins er í gangi sameiginleg herferð gleymskunnar gagnvart þeim hættum sem íslenskri þjóð stafa af starfsemi bandaríska hersins og dvöl hans hér á landi.

Það mál, sem ég geri á þskj. 17 sérstaka fsp. í tilefni af, var tengt því, að uppgötvaðist fyrir hreina tilviljun, — ég verð að leggja ríka áherslu á það, — að á Keflavíkurflugvelli hafði úrgangsolíu verið veitt út í skurð þaðan sem hún gat borist víða og tengst drykkjarbólum Suðurnesja. Þær fréttir, sem af þessu komu í fjölmiðlum, gerðu þennan atburð mjög dularfullan. Enginn vildi kannast við að hafa veitt þessari olíu út í skurð. Enginn virtist vilja vita um þennan skurð né virtist nokkur vita hver yfir höfuð ætti sökina á þessu. Í tilefni af þessum atburði hef ég borið fram fsp. í 5 liðum sem er á þessa leið:

„1. Telur utanrrh. gilda yfirlýsingu deildarstjóra varnarmáladeildar utanrrn. að „enginn, hvorki íslenskur né bandarískur aðili, vissi að olíu eða öðrum efnum úr flugskýli flughersins á planinu fyrir framan væri veitt út í skurð.“?

2. Hvaða líkur telur utanrrh. að séu á því að bandaríski flugherinn viti hvað gerist í háloftunum yfir og í kringum Ístand fyrst hann veit ekkert um stóra olíuskurði rétt við eigin flugskýli?

3. Hvaða ráðstafanir hefur utanrrh. gert til að komast að raun um hver bar ábyrgðina á þeirri meðferð á úrgangsolíu sem nýlega var fyrir tilviljun uppgötvuð á yfirráðasvæði bandaríska hersins?

4. Hvaða tryggingar eru fyrir því að starfsemi bandaríska hersins mengi ekki drykkjarvatn íbúa á Suðurnesjum?

5. Hvaða breytingar hyggst utanrrh. gera til að koma í veg fyrir að bandaríska herinn feli olíu og aðra mengunarvalda í íslenskri jörð fyrst fyrri loforð hersins hafa í þessu efni reynst haldlaus?“

Það er von mín, að við þessum spurningum fáist skýr svör sem gefi tilefni til þess að átta sig á því hvar á vegi statt íslenska embættiskerfið og stjórnkerfið er til þess að sinna nauðsynlegri eftirlitsskyldu sinni gagnvart bandaríska hernum og framfylgja þeim vörnum sem þarf greinilega að framfylgja gagnvart varnarliðinu.