18.12.1978
Neðri deild: 35. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1732 í B-deild Alþingistíðinda. (1262)

100. mál, almannatryggingar

Félmrh. (Magnús H. Magnússon):

Herra forseti. Þetta frv. er flutt til staðfestingar á brbl. sem hæstv. fyrrv. ríkisstj. setti 1. júlí s.l. Í aths. við brbl. sagði m.a., með leyfi forseta, að þetta sé „gert í samræmi við ákvörðun ríkisstj. til þess að greiða fyrir samkomulagi um lífeyrismál sem heildarlausn í þeim kjarasamningum, sem undirritaðir voru þann 22. júní 1977, þannig að sú hækkun lífeyrisgreiðslna, sem leiðir af því samkomulagi, valdi yfirleitt ekki lækkun tekjutryggingargreiðslna frá almannatryggingum.“

Hér var um að ræða nálega 65% hækkun skerðingarmarka. Eftir s.l. mánaðamót verða skerðingarmörk tekjutryggingarbóta hjá einhleypingi, sem býr einn, 149 900 kr. á mánuði til 184 100 kr. á mánuði, eftir því hvenær hann byrjar að taka ellistyrk. Samsvarandi tölur fyrir hjón eru 216 100 til 277 500 kr. á mánuði. Eins og hv. þm. vita skerðast tekjutryggingarbætur um 55% af því sem umfram er.

Herra forseti. Ég legg til að frv, verði að lokinni þessari umr, vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og trn. þessarar hv. deildar.