18.12.1978
Neðri deild: 35. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1734 í B-deild Alþingistíðinda. (1270)

8. mál, niðurfærsla vöruverðs

Frsm. meiri hl. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur haft þetta mál til athugunar. Nál. hennar er á þskj. 207 og þar kemur fram, að meiri hl. n. mælir með því, að frv. verði samþ. óbreytt, en tveir nm. skila séráliti sem fram kemur á þskj. 208.

Í rauninni er hér um frv. að ræða til staðfestingar á brbl. og hefur efni þess í rauninni þegar komið til framkvæmda, svo að hér er um að ræða staðfestingu á brbl. sem í gildi hafa verið og eru í rauninni búin að skila því sem þau áttu að skila, því að sá tími er raunverulega liðinn sem efni frv. tekur til.

Meiri hl. n. leggur til að frv. verði samþykkt.