18.12.1978
Sameinað þing: 37. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1735 í B-deild Alþingistíðinda. (1274)

54. mál, fjárlög 1979

Gunnar Thoroddsen:

Herra forseti. Fjvn. flytur á þskj. 168 hvorki meira né minna en 132 brtt., sumar með fjölda undirliða. Þegar komin er fram ósk um að bíða með atkvgr. um einn einasta lið til 3. umr., þá finnst mér að fjvn. geti ákaflega vel fallist á það og þurfi ekki að sækja það fast að atkvgr. fari fram nú. Ég vil eindregið beina því til fjvn.-manna að sýna þá sanngirni að fallast á þessa frestun.