19.12.1978
Efri deild: 37. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1772 í B-deild Alþingistíðinda. (1328)

23. mál, tímabundið vörugjald

Ragnhildur Helgadóttir:

Herra forseti. Ég vil standa við það sem ég sagði, að ég ætla mér ekki að nota þessa fsp. um mikilvægt mál til þess að tefja þingstörf eða tefja afgreiðslu þessa máls. Þess vegna tók ég það fram, að ég óskaði ekki eftir sérstökum fresti þótt hæstv. iðnrh. væri fjarstaddur.

Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir að svara. Ég tel þó ástæðulaust af hæstv. ráðh. að bregðast svo hart og næstum því illa við fsp. um jafnmikilvægt efni. Ég spyr einmitt vegna þess að mér er ljóst, rétt eins og hann tók fram, að hér er um vandasamt og flókið mál að ræða. Þess vegna er ég að spyrja: Ef þetta væri einfalt mál væri hægt að krefjast svara strax og krefjast aðgerða. Það hefði þá auðvitað legið á borðinu fyrir löngu, það er ljóst.

Ég vil í fáum orðum fá að svara því, herra forseti, að hæstv. forsrh. bar saman fsp. mína og afstöðu míns flokks þegar gengið var í EFTA á sínum tíma og gagnrýndi að þá hefðum við ekki rætt um þetta mál. Ég vil ítreka það, að Sjálfstfl. og við öll, sjálfstæðismenn, styðjum heils hugar EFTA-aðild. Okkur var nákvæmlega ljóst í hverju hún var fólgin. Hitt er rangt hjá hæstv. forsrh., að við höfum séð fyrir þá, að vinstri stjórnin mundi koma verðbólgunni upp í um það bil 50% á sínum tíma. Erfitt hefur verið að koma efnahagsmálum þessa lands á réttan kjöl síðan. Það sér hver maður, að atvinnugrein, sem þarf að aðlaga sig nýjum aðstæðum, á auðvitað óeðlilega erfitt uppdráttar við þessi skilyrði. Það er þetta sem gerir að verkum fyrst og fremst, að nú þykir standa upp á ríkisvaldið að gera nýjar ráðstafanir.

Ég er alls ekki talsmaður þess að fresta ei í þeim tollalækkunum sem við höfum þegar samið um. Ég gerði grein fyrir því líka í fyrri ræðu minni og ég ítreka það hér. Við eigum að sjálfsögðu að standa við gerða samninga, sem hafa einmitt orðið okkur mjög til góðs og líka iðnaðinum. Ég tel að EFTA-aðildin hafði orðið það, því að það liggur fyrir að framleiðni í iðnaði batnaði mjög á vissu tímabili. Talið er að þetta megi ekki síst rekja til þess, að menn hafi aukið hagræðingu og bætt ýmis atriði í iðnrekstri sínum einmitt vegna EFTA-aðildar, í aðildinni hafi falist visst aðhald sem íslenskur iðnaður hafi haft gott af. En þetta aðhald getur hins vegar núna orðið iðnaðinum um megn vegna efnahagsástandsins hér innanlands. Það er efni málsins.

Hæstv. ráðh. talaði um að mjög kæmu til greina hinar svonefndu „selektívu“ stuðningsaðgerðir eða aðgerðir til hjálpar einstökum greinum. Ég vil ítreka það, að aðgerðir til stuðnings einstökum greinum iðnaðar geta verið skynsamlegar ef ástæðurnar liggja ljósar fyrir. Það liggur ljóst fyrir, að þá koma einungis til greina ástæður vegna erfiðleika af völdum ólögmætrar eða óréttmætrar samkeppni við sams konar vörur frá EFTA-löndum. Það er allt annað en að rétta einungis einstakar greinar við efnahagslega. Ef rekstur er erfiður hjá einhverju fyrirtæki þarf það alls ekki að vera af slíkum utanaðkomandi áhrifum. Fullnægjandi rannsókn á slíkum áhrifum á íslenskar iðngreinar liggur ekki fyrir, að því er ég best veit, en þegar hún liggur fyrir gætu slíkar aðgerðir verið skynsamlegar að því er við teljum mörg, sjálfstæðismenn. Hæstv. forsrh. upplýsti að mál þessi væru enn í athugun. Ég veit að hæstv. ríkisstj. á erfitt vegna erfiðs samkomulags um ýmis efni, og má rétt vera að ekki sé á þá erfiðleika bætandi, en engu að síður er ljóst að hér þarf að hafa hraðan á.

Ég þakka fyrir orðið, herra forseti, og ég vona að meðferð málsins í dag hafi ekki tafist meira af þessum ástæðum en af ýmsum ræðum hv. stjórnarstuðningsmanna.