19.12.1978
Efri deild: 37. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1773 í B-deild Alþingistíðinda. (1330)

23. mál, tímabundið vörugjald

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Með tilliti til þess, að því hefur margoft verið lýst yfir, bæði hér í d. og annars staðar, að skipting einstakra vörutegunda í flokka verði tekin til endurskoðunar og rétt sé að hafa hliðsjón af þeirri endurskoðun þegar ákvarðanir eins og þessi eru teknar, þá segi ég nei.