19.12.1978
Efri deild: 38. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1777 í B-deild Alþingistíðinda. (1343)

39. mál, kjaramál

Frsm. meiri hl. (Jón Helgason):

Herra forseti. Frv. til laga um kjaramál, sem hér er til umr., er til staðfestingar á brbl. sem gefin voru út hinn 8. sept. s.l.

Í grg. fyrir þessu frv. er rakinn aðdragandi þessara laga sem öllum mun vera í fersku minni.

Í byrjun sept. var ástandið þannig í þjóðfélaginu að sjávarútvegurinn var að stöðvast og augljóst var að þá mundi fleira þar eftir fylgja. Það var því ekki spurning um það, hvort ríkisvaldið þyrfti að gera einhverjar ráðstafanir, um það munu allir hafa verið sammála. Það hafði hins vegar dregist lengur en æskilegt hafði verið, þar sem þá voru liðnir tveir mánuðir frá því fráfarandi ríkisstj. hafði beðist lausnar og sat aðeins til bráðabirgða frá þeim tíma. Hún hafði því ekki talið sér fært að gera miklar ráðstafanir í þessum efnum, aðeins það sem var algjörlega óhjákvæmilegt. Má þar benda á auknar greiðslur úr Verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðarins, en þær ráðstafanir juku enn á þann vanda, sem við var að eiga í septemberbyrjun, þar sem fjármagnsútvegun hafði verið látin bíða.

Ég minni aðeins á þetta hér vegna þess að mér finnst nauðsynlegt að þetta sé ríkulega haft í huga þegar við ræðum um það mál sem frv. fjallar um.

Í I. kafla laganna er fjallað um kjarasamninga og greiðslu verðbóta á laun. Samkv. ákvæðunum í þessum brbl. var breytt nokkuð ákvæðum laga nr. 3/1978, um ráðstafanir í efnahagsmálum, og síðari breyt. sem á þeim höfðu verið gerðar með lögum nr. 63/1978.

N. fékk á sinn fund þá Jón Sigurðsson forstöðumann Þjóðhagsstofnunar og Ólaf Davíðsson starfsmann hennar til að gefa upplýsingar um þróun kaupgjalds og verðlags á þessu ári. Samkv. þeim upplýsingum, sem þeir gáfu, hefur framfærsluvísitalan hækkað um 135.3 stig frá ársbyrjun til 1. nóv. s.l. Þeir voru einnig beðnir um að reyna að meta hvað framfærsluvísitalan hefði hækkað mikið ef lögin frá því í febr. s.l. um efnahagsráðstafanir — febrúarlögin svokölluðu, — hefðu verið í gildi óbreytt til þess tíma. Þá gerðu þeir ráð fyrir að vísitalan hefði hækkað um 137.9 stig, eða 2.6 stigum meira. Kaupmáttur var hinn 1. des. talinn vera 105 miðað við 100 í ársbyrjun, og er þá ekki tekið tillit til þeirra skattbreytinga og félagslegra umbóta, sem gert er ráð fyrir í 2. og 3. gr. laga nr. 103 frá því í nóvembermánuði s.l. Hins vegar hefði kaupmátturinn verið 95 hinn 1. des. s.l. ef febrúarlögin hefðu gilt. Ársmeðaltal kaupmáttar í reynd er talið munu vera um 99, en hefði orðið 94–95 ef febrúarlögin hefðu gilt.

Það er augljóst að vandi ríkissjóðs verður meiri vegna þeirra ráðstafana sem ríkisstj. hefur gert til þess að draga úr verðhækkunum og hækkun á framfærsluvísitölu. Þar er vitanlega um allháar upphæðir að ræða. Um það er einmitt fjallað í IV. kafla þessara laga, þ.e.a.s. tekjuöflunina til þess að vega á móti þessum útgjaldaráðstöfunum.

Í III. kaflanum er fjallað um niðurfærslu vöruverðs og verðlagseftirlit. í 6. gr. er ríkisstj. veitt heimild til að fella niður sölugjald af einstökum matvörum eða matvöruflokkum. Sú upphæð er talin munu nema um 1.4 milljörðum það sem eftir er þessa árs frá 1. sept., en reiknað með að hún nemi um 5.8 milljörðum á næsta ári. Hér er því um allmikla skattalækkun að ræða sem verður að hafa í huga þegar talað er um skattahækkanir í þessu sambandi.

Eins og ég sagði, þá er í IV. kaflanum fjallað um tekjuöflun, þ.e.e.s. um eignarskattsauka, þar sem er 50% hækkun á eignarskatti. Þessi leið var m.a. farin vegna þess að talið er að samkv. eignarskattsákvæðum hinna nýju skattalaga, sem samþ. voru á s.l. vori og eiga að ganga í gildi um næstu áramót og lagt verður á eftir árið 1980, muni eignarskatturinn hækka sem þessu svarar, þó það verði vitanlega nokkuð misjafnt. Í hv. Nd. voru gerðar breytingar á þessari grein á þá leið, að eignarskattsleysismörk þess fólks, sem fékk elli- og örorkulífeyri eða átti rétt á honum á árinu 1977, skuli hækka um 50% eða sem því svarar, þannig að álagður eignarskattsauki lækkar, enn fremur skuli eignarskattsauki lækkaður hjá þeim sem hafa lægstar tekjur.

Í sambandi við þessa síðasttöldu breytingu flytur meiri hl. fjh.- og viðskn. Ed. brtt., sem eingöngu er orðalagsbreyting, en ekki efnisbreyting. Í greininni, eins og hún kom frá hv. Nd., er talað um „samsköttuð hjón eða sambúðarfólk.“ Er þetta fellt niður þar sem það er framkvæmdaatriði eða hefð við framkvæmd skattalaga að það sambúðarfólk, sem óskar eftir samsköttun eins og hjón, hlýtur sömu skattalegu meðferð. Er því talinn óþarfi að taka þetta sérstaklega fram. Enn fremur er gerð sú breyt., að í staðinn fyrir „skuldlausa eign“ er talað um skattgjaldseign, sem er í samræmi við það sem raunverulega er í framkvæmd.

Við 9. gr. brbl. voru gerðar þær breyt. í hv. Nd., að inn í hana voru tekin ákvæði reglugerðar sem gefin var út um framkvæmd brbl., um hvernig ætti að fara með tekjur manna sem hafa með höndum sjálfstæðan atvinnurekstur. Það snertir einnig 10. gr. Ef ekki hefði verið farið eftir þessum ákvæðum reglugerðarinnar, hefði skattur samkv. 10. gr. orðið miklu hærri. Enn fremur var í Nd. sett inn í 10. gr. ákvæði um að fella skuli niður skatt. samkv. 1. tölul. nái hann ekki 15 þús. kr. Það ætti að koma til góða þeim sem verst eru settir.

V. kafli frv. fjallar um breyt. á lögum um sérstakt tímabundið vörugjald frá 1. júní 1978. Við vorum nú að afgr. þau brbl. frá þessari hv. d. Inn í þau brbl. voru teknar þær breytingar, sem felast í þessum kafla, ásamt fleiri sem voru fluttar af meiri hl. fjh.- og viðskn. Þessi kafli er því orðinn óþarfur. Þess vegna er lagt til að hann falli brott með þeim breytingum sem það hefur á kaflafyrirsagnir og númer á lagagreinum í því sambandi.

Í VI. kafla frv. er fjallað um gjald á ferðalög til útlanda, sem tekið var upp, en á móti var hámarksupphæð ferðagjaldeyris tvöfölduð þannig að það var rýmkað um þann gjaldeyri sem ferðamönnum gafst kostur á að fá. Mun það hafa mælst vel fyrir hjá þeim sem á því þurftu að halda.

Ég vil taka það fram í sambandi við umr., sem urðu áðan um sjúkratryggingagjaldið, og þá ábendingu sem þar kom fram, að það væri ekki eðlilegt að ræða þá tekjuöflun í sambandi við þetta mál. Þetta frv. fjallar eingöngu um tekjuöflun á þessu ári, en ekki tekjuöflun á næsta ári. Um hana fjalla þau frv. sem nú eru til umr. í hv. Nd. Ég tel því eðlilegra að umr. um það, skattamálin almennt á næsta ári og tekjuöflun ríkissjóðs þá, bíði þangað til við fáum þau frv. til umr. hingað í deildina.

Ég sé svo ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta frv. nú, en meiri hl. n. leggur til að frv. verði samþ. með þeim breyt. sem ég hef gert grein fyrir.