19.12.1978
Neðri deild: 36. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1786 í B-deild Alþingistíðinda. (1361)
146. mál, heimild til lántöku vegna lánsfjáráætlunar 1978
Fjmrh. (Tómas Árnason):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um ábyrgðarheimildir og heimild til lánstöku vegna endurskoðaðrar lánsfjáráætlunar yfirstandandi árs. Undir lok ársins þarf nú sem oft raunar áður að líta til ýmissa atriða er eigi hafa alls kostar gengið fram eins og áætlað hafði verið við lok seinasta árs, þegar þessi mál voru samþ. og skýrsla gefin um þau hér á hv. Alþ., og frv. þetta, sem ég mæli nú fyrir, er flutt í því skyni að afla nauðsynlegra heimilda til lántöku vegna endurskoðaðrar lánsfjáráætlunar 1968 og til veitingar ábyrgða er til þarf svo að hagstæðra lána verði aflað.
1. gr. frv. fjallar um það, að fjmrh. fyrir hönd ríkissjóðs verði heimilað að ábyrgjast með sjálfskuldarábyrgð lán er Akureyrarbær tekur, að fjárhæð allt að 4800 millj. kr. eða jafnvirði þeirrar fjárhæðar í erlendri mynt, til fjármögnunar á hitaveituframkvæmdum. Ábyrgðin skal vera með þeim kjörum og skilmálum sem fjmrh. ákveður, og tekur hún jafnt til greiðslu afborgana og vaxta og annars kostnaðar.
Eins og kunnugt er, hefur Akureyrarbær staðið í stórframkvæmdum við lagningu hitaveitu um tveggja ára skeið. Þessar framkvæmdir hafa verið fjármagnaðar með skammtímalánum og beðið rétts tíma til þess að breyta þeim í lán til lengri tíma. Fyrir milligöngu Landsbanka Íslands er nú slík lántaka fáanleg. Rétt er að geta þess, að ríkissjóður hefur áður ábyrgst lán til hitaveituframkvæmda og má þar geta t.d. Hitaveitu Suðurnesja.
2. gr. frv. fjallar um að fjmrh. fyrir hönd ríkissjóðs verði heimilað að ábyrgjast allt að 230 millj. kr. lán fyrir Lánasjóð ísl. námsmanna á árinu 1978. Heimild þessi komi til viðbótar ábyrgðarheimild í lið LXXV í 6. gr. fjárl. fyrir árið 1978.
Við afgreiðslu fjárl. fyrir yfirstandandi ár var því lýst yfir, að Lánasjóði ísl. námsmanna yrði séð fyrir fé svo að unnt yrði að veita lán er svaraði til 85% af svonefndri umframfjárþörf námsmanna. Til að tryggja að þetta markmið næðist var sett heimild í fjárl. 1978 til 270 millj. kr. lántöku. Breytingar á gengi og verðlagsþróun á árinu hafa orðið mjög á annan veg en ráð var fyrir gert. Vantar því heimild til lántöku að upphæð 230 millj. til viðbótar fjárlagaheimild.
3. gr. fjallar um það, að ríkissjóði verði heimilað að taka lán vegna endurskoðaðrar lánsfjáráætlunar fyrir árið 1978, er nemi allt að 4000 millj. kr. eða jafnvirði þeirrar fjárhæðar í erlendri mynt. Lántökur innanlands á árinu 1978 verða verulega minni en gert var ráð fyrir í lánsfjáráætlun og febrúarlögunum um ráðstafanir í efnahagsmálum. Kemur þar aðallega tvennt til. Annars vegar hefur ekki verið markaður fyrir öll þau innlendu spariskírteini, sem áformað var að gefa út, og vantar um 1500 millj. kr. upp á það fé sem afla átti með sölu spariskírteinanna. Hins vegar munu kaup lífeyrissjóðanna á skuldabréfum Framkvæmdasjóðs verða um 1000 millj. kr. minni í ár en áætlað hafði verið. Auk áðurnefndrar upphæðar hefur 1241 millj. kr. verið varið til ýmissa raforkuframkvæmda og rekstrar Rafmagnsveitna ríkisins svo og 90 millj. kr. til grænfóðursverksmiðja ríkisins vegna rekstrarerfiðleika þeirra. Ég mun gera nánari grein fyrir framkvæmd lánsfjáráætlunar 1978 þegar skýrsla um lánsfjáráætlun fyrir yfirstandandi ár verður lögð fram á Alþ. og skýrsla gefin um hana og umr. í framhaldi af henni.
Ég vil taka það fram, að það er fullt samkomulag um það við stjórnarandstöðuna að leggja fram þetta mál, og vona ég því að það fái greiða leið í gegnum Alþ. áður en þm. fara í jólaleyfi, en það er nauðsynlegt til þess að þessi mál geti gengið fram eins og ætlast er til.
Ég vil svo leyfa mér, herra forseti, að leggja til að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.