19.12.1978
Neðri deild: 37. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1800 í B-deild Alþingistíðinda. (1380)
138. mál, skattur á skrifstofu- og verslunarhúsnæði
Geir Hallgrímsson:
Herra forseti. Það var mér sérstök ánægja að falla frá orðinu til þess að hleypa hv. 2. landsk. þm., Finni Torfa Stefánssyni, að til að gera grein fyrir áliti eins nefndarbrots stjórnarflokkanna. Að öðru leyti gefur hv. frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn., ef meiri hl. á að kalla, mér tilefni til að segja hér nokkur orð. Ég held að hann þurfi ekkert að hlífa okkur við löngum ræðum. Við erum alveg tilbúnir til þess að hlusta á langar ræður og flytja langar ræður ef svo býður við að horfa. En ef hann sem stjórnarsinni óskar eftir að mál nái fram, þá væri betra fyrir hann að byrja ekki á slíkum ræðuhöldum sem hann hljóp til nú rétt áðan.
Hv. þm. var stórhneykslaður á því, að ég teldi niðurgreiðslur núv. ríkisstj. falsa vísitöluna. Þetta er samt staðreynd sem fólgin er annars vegar í því, að inn í vísitöluna er tekið verð á vörum sem ekki eru til, sbr. verð á gamla kjötinu nú í haust, og í öðru lagi með því að vísitölutímabilið er í raun og veru stytt. Í stað þess að miða við vöruverð í byrjun ágúst var miðað við vöruverð í miðjum sept. og í stað þess að miða við vöruverð 1. nóv. er miðað við vöruverð fram í miðjan des., allt til þess að falsa vísitöluna og draga úr kaupmætti launa. Þetta er ekkert ný starfsaðferð hjá fulltrúum Alþb. í ríkisstj. eða hjá hæstv. yfirráðh. núv. ríkisstj., hv. þm. Lúðvík Jósepssyni. Þegar hann var í ríkisstj. á árinu 1973 var kaupgjaldsvísitalan reiknuð út fjórum sinnum. Fjórum sinnum var ýmist gert að auka niðurgreiðslur eða fjölskyldubætur fyrir útreikningsdag kaupgreiðsluvísitölu til þess svo aftur að draga úr niðurgreiðslum eða fjölskyldubótum eftir útreikningsdag, — ráðstafanir sem voru eingöngu til þess fallnar að falsa vísitöluna og draga úr kaupgjaldi, fara á bak við launþega í landinu í stað þess að segja landsmönnum hreinskilnislega hvaða ráðstafanir væru nauðsynlegar til þess að atvinnuvegirnir gætu greitt það kaupgjald sem væri í samræmi við afkomu þeirra. Og hvað er það annað en tilraun til fölsunar á vísitölu, hvað er það annað en að fara á bak við landsmenn þegar í fjárlagafrv. núna er ekki gert ráð fyrir fullum kostnaði, árskostnaði, við niðurgreiðslu kaupgjaldsvísitölunnar um 10.5%, eins og er staðreynd og margupplýst hér í umr. um fjárlagafrv.? Hvað þýðir þetta í raun og veru, að það vantar á milli 2.8 milljarða og jafnvel upp í 4 milljarða að fjárveitingar samkv. fjárlagafrv. standi undir niðurgreiðslum er dugi til þess að lækka kaupgjald um 10.5%? Það þýðir það, að annað tveggja á sér stað á næsta ári, að ríkissjóður verður rekinn með halla, sá halli eykur á verðbólguna, eða hitt, að stórlækka verður niðurgreiðslurnar þegar líður á árið, sem gerir það að verkum, að allt vöruverð hækkar þeim mun meir. Ef við miðum við 2.8 milljarða, þá gæti ég trúað því, að í stað þess að niðurgreiðslan nemi 10.5% mundi hím nema um það bil 7%.
Þetta eru starfsaðferðir Alþb. þegar Alþb. er í ríkisstj., og fulltrúar Alþfl. og Framsfl. eru leiðitamir. Það á að blekkja fólkið og telja því trú um annað en það sem staðreyndir málsins segja til um. Það er þess vegna auðvelt að færa rök að þeirri staðhæfingu minni, að núv. hæstv. ríkisstj. hefur bæði falsað vísitöluna, falsað kaupmátt launa og ætlar að halda uppteknum hætti á næsta ári.
Þá nefndi hv. yfirráðh., hv. 1. þm. Austurl., að fyrrv. ríkisstj. sem og aðrar ríkisstj. hefðu viðurkennt niðurgreiðsluaðferðina sem hagstjórnartæki, og það er alveg rétt. En það er allmikill munur á því, hvort niðurgreiðslurnar eru orðnar svo háar, að það skekki alla verðmyndun í landinu og framleiðsluþætti í þjóðarbúinu, eða hvort hóflega er með þetta hagstjórnartæki farið. Það er auðvitað að stjórnvöld hafa gripið til niðurgreiðslna vegna þess að unnt er að greiða niður kaupgjald í landinu með ódýrara hætti á þann veg en með því að greiða það í beinhörðum peningum af hálfu atvinnuveganna. Þetta liggur í því m.a., að framfærsluvísitalan vegur ekki með réttum hætti útgjaldaþætti hinnar almennu fjölskyldu í landinu. M.a. er þetta skýringin á þessu misvægi. Þess vegna eru niðurgreiðslur vandmeðfarnar og það er ekki eingöngu stigsmunur, heldur eðlismunur á því, hvort til þeirra er varið mörgum tugum milljarða eða nokkrum milljörðum.
Þá nefndi hv. þm. ýmsa skatta er hann taldi fyrrv. ríkisstj. hafa sett á. Ég skal ekki rekja í einstökum atriðum þessa skatta, en sumir eru þess eðlis, að ekki er um skatta að ræða, eins og skyldusparnaður. Það er allmikill munur á því, hvort skattþegnar eiga von á að fá endurgreitt það sem innheimt er hjá þeim og endurgreiðslan sé þar að auki ýmist með fullri verðtryggingu eða bæði fullri verðtryggingu og vöxtum, eins og var um skyldusparnað þann sem lagður var á landsmenn í tíð fráfarandi ríkisstj., eða að slík greiðsla sé innheimt óafturkræft hjá landsmönnum, eins og er um skattafrv. þau sem við erum nú að ræða um.
Það er líka athyglisvert, að núv. ríkisstj. hrósar sér af því sjálfsagt að gera tilhlaup að lækka sjúkratryggingagjaldið, sem fyrrv. stjórnarandstaða, hv. þm. Lúðvík Jósepsson, gagnrýndi sem óréttlátan skatt. Hann treystir sér ekki til að afnema þennan óréttláta skatt eða breyta honum í annað skattform nema að mjög litlu leyti. Og hvernig breytir hann þá þessum skatti í annað skattform? Jú, með því að gefa ákaflega litla lækkun á sjúkratryggingagjaldinu sjálfu á mjög takmörkuðu tekjubili, þar sem tiltölulega fáir njóta þess, en hækkar um leið þau gjöld sem tekin eru af sjúklingunum sjálfum og hljóta kannske að bitna mest á fólki á þessu tekjubili, a.m.k. ekki síður en á öðrum tekjubilum. Hér er því allt á sömu bókina lært. Það, sem menn hrósa sér af að gefa, er tekið aftur með hinni hendinni.
Það má nefna tímabundna vörugjaldið sem sætti mikilli andstöðu og átti að vera tímabundinn skattur. Hvað hefur núv. ríkisstj. gert? Farið í hámark þess skatts og hækkað vörugjaldið að hluta til upp í 30%. En í drögum að fjárlagafrv., sem fráfarandi ríkisstj. eða fráfarandi fjmrh. hafði undirbúið, var gert ráð fyrir því, að skref væri stigið til þess að lækka vörugjaldið almennt niður í 13 prósentustig, en samkv. fjárlagafrv. núna eru það ýmist 18 prósentustig eða 30 prósentustig.
Ekki er lækkaður einn einasti skattur af þeim sem hv. þm. gagnrýndi og taldi fráfarandi ríkisstj. hafa tekið upp. Öllum þessum sköttum er viðhaldið og við þá aukið, en þessu til viðbótar höfum við þm. dæmi um nýjar skattatillögur, nýjar skattaleiðir, þar sem öllum ráðum er beitt og allar leiðir farnar til þess að ná sem mestu af einstaklingum og atvinnufyrirtækjum í landinu. Þetta stingur vissulega í stúf við það sem átti sér stað á tímabili fráfarandi stjórnar.
Það, sem mestu máli skiptir, er auðvitað hver heildarskattheimtan er, og af ríkisins hálfu lækkaði heildarskattheimtan úr 31% miðað við þjóðarframleiðslu niður í 27–28% af þjóðarframleiðslu í tíð fráfarandi ríkisstj. Nú boðar hæstv. ríkisstj. að þetta hlutfall hækki í 30%, og spá mín er sú, að þegar fjárlagafrv. verður endanlega afgreitt og skattar samkv. því endanlega innheimtir, þá verði þetta hlutfall orðið umtalsvert hærra.
Þá skiptir það og máli, eins og hér hefur verið nefnt á, í hvaða formi sú skattheimta á sér stað, sem nauðsynlegt er að hið opinbera standi fyrir. Í tíð fráfarandi ríkisstj. var hlutfall beinna skatta lækkað úr 22% í 18% af heildarskattheimtu ríkisins. Nú er stefnt að hækkun hlutfalls beinna skatta yfir 20% a.m.k., og bendir allt til þess að það hlutfall muni enn hækka. Þarna sjá menn svart á hvítu muninn á skattastefnu fráfarandi ríkisstj. og núv. ríkisstj., og það mun víst og öruggt, að landsmenn munu kveða upp sinn dóm í fyllingu tímans um hvorri skattastefnunni þeir vilja fylgja
Varðandi sérstaklega það skattafrv. sem hér liggur fyrir um aukaskatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði, þá vil ég endurtaka það sem ég sagði við 1. umr. um þessi frv., að það eru ekki rök til þess að gera mun á mismunandi notkun húsnæðis. Í fyrsta lagi er það til þess fallið, að farið sé á bak við hið opinbera í þessum efnum, og eykur þannig á spillingu í þjóðfélaginu, en í öðru lagi og það er veigameira — er verslunar- og skrifstofuhúsnæði út af fyrir sig ekki ónauðsynlegra húsnæði en hvað annað húsnæði annarra atvinnugreina, því verslun og stjórnun fyrirtækja, sem fram fer á skrifstofu, er alveg eins fallin og annar atvinnurekstur til þess að auka framleiðni og afköst í þjóðfélaginu og bæta lífskjör landsmanna.