19.12.1978
Neðri deild: 37. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1802 í B-deild Alþingistíðinda. (1383)

139. mál, nýbyggingagjald

Frsm. meiri hl. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Eins og ég hef þegar tekið fram, er þetta eitt með fleiri frv. sem eiga nokkuð saman í sambandi við nýja tekjuöflun fyrir ríkissjóð. Meiri hl. fjh.- og viðskn. hefur skilað nál. um þetta frv. á þskj. 240 og leggur til að frv. verði samþ. óbreytt. En um þetta gildir sami fyrirvari og hefur verið gerð grein fyrir áður af hálfu þeirra Vilmundar Gylfasonar og Finns Torfa Stefánssonar, fulltrúa Alþfl. í nefndinni.

Hér er um tiltölulega mjög einfalt mál að ræða sem þegar hefur verið gerð grein fyrir við 1. umr. Ég sé því ekki ástæðu til að orðlengja það frekar. Hér er um nýtt skattgjald að ræða á öll mannvirki, sem lúta reglum um fasteignamat. Gert er ráð fyrir sérstöku 2% skattgjaldi, en þó er ráðh. veitt heimild til þess í 2. gr. að undanþiggja ýmsar byggingar þessu.

Meiri hl. n. mælir með því, að frv. verði samþ. óbreytt. Frsm. minni hl.