19.12.1978
Neðri deild: 38. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1812 í B-deild Alþingistíðinda. (1424)

136. mál, Iðntæknistofnun Íslands

Frsm. (Kjartan Ólafsson):

Herra forseti. Iðnn. hefur fjallað um það frv. sem hér er til umr., en frv. er á þskj. 169. N. hefur orðið sammála um að mæla með samþykkt frv., eins og fram kemur í nál., en 2 nm., þeir Gunnar Thoroddsen, hv. 11. þm. Reykv., og Jósef H. Þorgeirsson, hv. 7. landsk. þm., skrifa undir nál. með fyrirvara.

Frv. þetta fjallar um það að framlengja í eitt ár lagaákvæði um lítið gjald sem kallað hefur verið iðnaðargjald og rennur til Iðntæknistofnunar Íslands. Ég vil leyfa mér, herra forseti, að lesa hér kafla úr aths. með frv. hv. þm. hér í d. til glöggvunar, en þar segir á þessa leið:

„Í 45. gr. laga nr. 64 1965, um rannsóknir í þágu atvinnuveganna, eru ákvæði um að greiða skuli gjald til Rannsóknastofnunar iðnaðarins er nemi 2% af kaupi verkafólks og fagmanna hjá iðnfyrirtækjum, verksmiðjum og verkstæðum. Í bráðabirgðaákvæðinu var ákvæði um að gjaldið skuli innheimt til loka ársins 1978 og renna til Iðntæknistofnunar Íslands.

Með þessum lögum“ — þ.e.a.s. ef frv., sem hér er verið að fjalla um, verður að lögum — „er ákvæðið framlengt um eitt ár.“

Þess skal getið, að iðnn. leitaði umsagnar hjá stjórn Iðntæknistofnunar Ístands varðandi efni þessa frv. og frá Iðntæknistofnuninni barst okkur bréf sem hljóðar á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

„Formaður iðnn. hefur í dag óskað eftir umsögn stjórnar Iðntæknistofnunar um ofangreint frv.

Þar sem óskað er eftir svari samdægurs gefst ekki tækifæri til að boða til fundar stjórnar af þessu tilefni. Þess má hins vegar geta, að frv. þetta var kynnt stjórninni á fundi 14. des. s.l. og er umsögn nú látin í té í samráði við formann stjórnar, hr. Braga Hannesson.

Í stuttu máli telur Iðntæknistofnun ekki ástæðu til að gera aths. við frv. Rétt er hins vegar að láta þess getið, að það er skilningur vor, að 91 millj. kr. af jöfnunargjaldi komi óskipt í hlut stofnunarinnar til skilgreindra iðnþróunarverkefna, sem Iðntæknistofnun gerir tillögur um til iðnrn.

F. h. Iðntæknistofnunar Íslands.

Sveinn Björnsson,

forstjóri.“

Þetta er tilvitnunin í umsögn Iðntæknistofnunar. Þeir tala hér í sinni umsögn um það sem sinn skilning, að 91 millj. kr. af jöfnunargjaldi komi óskipt í hlut Iðntæknistofnunar. En um þau efni segir í aths. með því frv., sem hér er til umr., það sem nú skal greint, þar segir á þessa leið:

„Í 9. gr. laganna um Iðntæknistofnun Íslands segir í b-málslið, að hluti af jöfnunargjaldi skuli frá og með 1979 vera einn af tekjustofnum.

Í fjárlagafrv. fyrir árið 1979 er gert ráð fyrir að 91 millj. kr. af jöfnunargjaldi skuli varið til Iðntæknistofnunar Íslands án þess þó að nokkur aukning komi til á starfsemi stofnunarinnar. Þessi fjárhæð af jöfnunargjaldi er því fyrst og fremst vegna launahækkana og verðhækkana milli ára og til þess að bæta upp tekjumissi af iðnaðargjaldi. Þetta veldur því hins vegar, að ófullnægjandi fjárhæð af jöfnunargjaldi getur runnið til brýnna iðnþróunarverkefna, svo sem til starfsemi Útflutningsmiðstöðvar iðnaðarins o.fl.“

Síðan segir áfram í aths. með því lagafrv. sem við erum að ræða í kvöld:

„Til þess að koma í veg fyrir, að áhrif jöfnunargjaldsins til eflingar iðnþróunar verði stórkostlega skert, er talið eðlilegt að ákvæðið um iðnaðargjaldið verði framlengt um eitt ár.“ — Það er einmitt efni þessa frv. að þetta verði gert. Síðan er tekið fram að áætluð fjárhæð iðnaðargjaldsins árið 1979 sé um 70 millj. kr.

Ég sé ekki ástæðu til að orðlengja frekar um þetta dagskrármál. Það liggur sem sagt fyrir, að það er samkomulag nm. í iðnn. að mæla með samþykkt þess, og það liggur einnig fyrir, að Iðntæknistofnunin, sem hefur látið umsögn í té, sér ekki ástæðu til að gera neinar aths. við efni frv.